Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.04.2011, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 05.04.2011, Qupperneq 20
5. APRÍL 2011 ÞRIÐJUDAGUR2 ● jóga Rope Yoga er hug- og heilsu- rækt sem hentar báðum kynjum á hvaða aldri sem er. Elín Sig- urðardóttir í fyrirtækinu elin.is hefur kennt Rope Yoga í sjö ár, nú í Bæjarhrauni 2 í Hafnarfirði. „Rope Yoga byggist á æfingum sem gerðar eru með hjálp banda og ganga út að styrkja óvirkustu vöðva líkamans til móts við hina aflmeiri. Þær losa um spennu, laga meltinguna og öll úrvinnsla eykst, bæði líkamlega og tilfinninga- lega. Því fer fólk afslappað úr tím- unum og endurnært.“ Þetta segir Elín Sigurðardóttir um Rope Yoga sem hún iðkar og kennir í eigin fyrirtæki. Hún er þar líka með lyftingaaðstöðu og hlaupabretti og býður upp á námskeið með blöndu af Rope Yoga og TRX þjálfun sem snýst um æfingar í böndum sem hanga í loftinu. „Þær æfingar líkj- ast lyftingum en þar er bara unnið með eigin líkamsþunga,“ lýsir hún. Elín telur Rope Yoga sérlega góða þjálfun fyrir fólk með verki í baki eða hnjám og segir marga koma til hennar á námskeið að ábendingu lækna og sjúkraþjálf- ara. „Það er í raun alveg sama hvað hrjáir fólk, Rope Yoga er allra meina bót og eykur liðleika og styrk enda fáum við til okkar eldra fólk, íþróttafólk í keppnis- formi og allt þar á milli. Þetta eru öflugar æfingar þó að í þeim sé viss slökun líka.“ Elín er íþróttafræðingur að mennt og tvöfaldur ólympíukepp- andi í sundi. Fólk sækir til hennar í æfingar úr Vesturbæ Reykjavík- ur, Grafarvogi og Álftanesi, auk nágrannabyggðanna. Það hefur meira að segja keyrt frá Akra- nesi. Hún tekur fram að Rope Yoga sé ekki aðeins líkamsrækt heldur auki líka á andlegt jafn- vægi. „Hugmyndafræðin um mátt viljans, sem Guðni Guðmunds- son Rope Yoga-meistari er nýbú- inn að skrifa bók um, er stórt at- riði í þjálfuninni,“ segir hún. „Við beinum fólki inn á þá línu að auka heimild sína í lífinu til velsældar, gleði og kærleika.“ Hug-og heilsurækt „Þetta eru öflugar æfingar þó að viss slökun sé í þeim líka,“ segir Elín um Rope Yoga sem hún kennir í fyrirtækinu elin.is í Bæjarhrauni 2. MYND/STEFÁN Að leita hins eilífa sannleika Upphaflega var jóga miklu víðfeðmara hugtak en í dag. Notalegt og gefandi andrúmsloft í fallegu hlýju umhverfi. Þannig er aðkomunni að jógastöðinni Yoga Shala, Engjateigi 5, einna best lýst. Ingibjörg Stefánsdóttir, jóga- kennari og leikari, segir ýmislegt spennandi á döfinni. „Við erum farin af stað með alls konar ný og spennandi nám- skeið ofan á þau sem fyrir eru, svo sem meðgöngujóga, krakkajóga og jóga sem er styrkjandi fyrir bak og maga,“ tekur hún sem dæmi og þvertekur fyrir að jóga sé slæmt fyrir alla þá sem eru bakveikir þegar hún er spurð. „Alls ekki en það er meðal annars háð því að kennarinn sé með rétta menntun að baki,“ bætir hún við og tekur fram að allir kennarar á Yoga Shala stöðinni búi yfir áralangri reynslu af iðkun og kennslu jóga. Mikill metnaður er lagður í starfið og til marks um það segir hún gjarnan sóst eftir hæfileik- um erlendra gestakennara. Frá því í haust hefur hin sænsk-jama- íska Maria Lawino Johnson kennt á stöðinni og verður hún einmitt með byrjendanámskeið um næstu helgi. Ingibjörg gefur henni orðið. „Ég ætlaði að vera stutt en ílengdist vegna þessu hversu frá- bært Ísland og íslenska þjóð- in eru,“ segir Maria, sem hefur í starfi sínu sem jógakennari ferðast um hnöttinn þveran og endilangan og finnst landsmenn sérstaklega opnir fyrir jóga. „Þið eruð hreinskilin og tilbúin að horf- ast í augu við eigin kosti og galla, sem er nauðsynlegt í jóga.“ Fleiri gestakennarar eru á leið- inni á stöðina á næstu mánuðum, alls staðar að úr heiminum og hver með sínar áherslur. „Einn leggur áherslu á ashtanga vinyasa, annar á forest yoga, heitt jógaflæði og innan um eru ýmis þekkt nöfn í geiranum. Andrúmsloftið er því stundum alþjóðlegt hér og allir velkomnir, enda þarf ekki að vera einhver sérstök jóga týpa eða vel að sér í þessum fræðum til að geta stundað jóga hjá okkur,“ útskýr- ir Ingibjörg og segist vilja að allir gangi út með bros á vör og sól í hjarta. Hún getur þess að stöðin verði opin í allt sumar. Frekari upplýs- ingar sé að finna á yogashala.is. Viljum að öllum líði vel Ingibjörg, Eva og Maria taka vel á móti viðskiptavinum Yoga Shala Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Jóga er sagt eiga uppruna sinn á gullöld Indverja fyrir 26.000 árum og hafa á þeim tíma snert öll svið tilverunnar. Orðið jóga er dregið af Yuj, sem á sanskrít þýðir að tengja eða sam- eina. Sameiningin sem orðið vísar til er á milli sjálfs einstaklings- ins og alheimsvitundarinnar eða alheimsandans. Jóga gengur út á það að ná þessari sameiningu. Jóga er sagt hafa orðið til á Indlandi fyrir nærri 26.000 árum á tímabilinu Sat Yuga sem oft er kallað gullöldin. Sat Yuga tímabilið einkenndist að sögn af algjörum friði og mikilli bless- un á öllum sviðum sem leiddi til þess að fólk fór að leggja sig eftir því að uppgötva hinn ei- lífa sannleika og oftar en ekki gerðust menn einbúar til þess að geta einbeitt sér að leitinni að honum. Í fornleifum frá þessum tíma hafa fundist óyggjandi merki um ástundun jóga; margar myndir af mönnum í jógastellingum hafa fundist grafn- ar í steina auk annars sem rennir stoðum undir þær hugmyndir sem fólk gerði sér um uppruna jógans. Upphaflega var jóga miklu víð- feðmara hugtak en í dag. Í því fól- ust í raun allar lífsreglur fólks, svo sem um mataræði, hrein- læti, bænagjörð, félagslíf og vinnu, auk hugmyndafræðinnar og æfinganna sem nauðsynlegar eru til að komast í tengsl við alheiminn. Í jóganu fólst öll afstaða mannsins til tilverunn- ar, auk strangrar siðfræði og reglna um iðkun hennar sem voru hornsteinar pers- ónulegrar, félagslegrar og kosmískrar þróunar. Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is s. 512 5462 og Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is s. 512 5432. Seljavegur 2 - 101 Reykjavík www.jogastudio.is - jogastudio@hotmail.com Hatha jóga Hot power yoga Hot jóga Slökunarjóga Chakradans Hugleiðsla Heilun Ný námskeið að hefjast Hot power yoga – hefst þriðjudaginn 12. apríl. Byrjendanámskeið – hefst máudaginn 11. apríl.Elín Sigurðardóttir www.elin.is elin@elin.is S: 696-4419 Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði Námskeið hefjast 5. og 6. apríl. www.elin.is/ Rope yoga og TRX VOR TILBOÐ í Yogashala 4 mánuðir á verði 3 Með þriggja mánaðarkortum sem keypt eru í apríl fylgir aukalega einn mánuður Byrjendanámskeið á Laugardag og sunnudag (9.-10.april) kl. 13.30-17.00 Yndisleg yogastöð með spennandi tímum og frábærum kennurum. Stundarskráin er á netinu www.yogashala.is Yoga shala Engjateig 5, 2. hæð, sími 553 0203 www.yogashala.is reykjavík

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.