Fréttablaðið - 05.04.2011, Qupperneq 26
5. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR18
timamot@frettabladid.is
ROKKARINN KURT COBAIN lést þennan dag (1967-1994).
„Í dauðanum er maður fullkomlega hamingjusamur og sálin lifir einhvers staðar áfram. Ég óttast
ekki dauðann. Honum fylgir alger friður og í besta falli von um að verða annar í nýju lífi.“
Haukur Guðlaugsson organisti er átt-
ræður í dag. Í tilefni þess heldur hann
útgáfutónleika í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 10. apríl klukkan 16.30.
Á tónleikunum mun Haukur leika valin
lög af nýútkomnum diskum, Organ
flóra, en á þeim er að finna upptökur
á orgelleik Hauks í kirkjum víða um
land.
Upptökurnar spanna allt frá árinu
1956 til ársins 2010 en annar diskanna
var tekinn upp á síðustu átta árum.
Haukur segir flóru íslenskra orgela
fjölbreytta en hann valdi verkin með
það fyrir augum að þau nytu sín sem
best, í hljómburði hverrar kirkju.
„Hljómburðurinn í rýminu er svo
stór hluti af orgelinu,“ segir Haukur.
„Gamla Dómkirkjuorgelið sem ég spil-
aði á hér í Reykjavík er nú komið upp
í Reykholt. Það má segja að það sé allt
annað hljóðfæri þar, því það er mikið
meiri hljómburður í Reykholtskirkju.“
Haukur hefur spilað víða þó að
flestar upptakanna á disknum séu úr
kirkjum á höfuðborgarsvæðinu. Þá eru
þar upptökur úr Víkurkirkju og Egils-
staðakirkju og verkin eins misjöfn og
þau eru mörg. Hann segir ómögulegt
að gera upp á milli kirkna, hvað þá
hljóðfæra.
„Hallgrímskirkjuorgelið er lang-
stærsta hljóðfærið, með mestu mögu-
leikana, og hljómburðurinn í kirkjunni
er mikill. Gömlu harmóníumorgelin
hafa líka sinn sjarma en á þau nær
maður svo næmum blæbrigðum.“
Haukur hóf píanónám þrettán ára
og lauk burtfararprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík árið 1951. Á
árunum 1955 til 1960 nam Haukur
við Staatliche Hochschule für Musik
í Hamborg og lauk framhaldsnámi í
Accademia di Santa Cecilia í Róm. Þá
hefur Haukur stundað kórstjórn og
kennslu og var söngmálastjóri Íslensku
þjóðkirkjunnar frá 1974 til 2001.
Haukur hélt námskeið fyrir organ-
ista og kóra á hinu forna biskupssetri
í Skálholti í 27 ár auk þess sem hann
hefur staðið fyrir útgáfu um sjötíu
bóka og hefta fyrir kóra og organista.
Á löngum ferli hefur hann ekki bara
haldið tónleika hér á landi heldur víða
í Evrópu og Bandaríkjunum og leik-
ið einleik á orgel með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands. Haukur er heiðursfélagi
bæði í Félagi íslenskra organleikara
og í Félagi íslenskra tónlistarmanna
og var sæmdur riddarakrossi Hinnar
íslensku fálkaorðu árið 1983. Árið 2008
hlaut hann Liljuna, sérstök tónlistar-
verðlaun íslensku kirkjunnar.
En er Haukur að setjast í helgan
stein áttræður?
„Nei, ég vona að ég geti haldið áfram
að spila, áhugann vantar ekki. Hann
er meðfæddur og ég losna ekkert við
hann,“ segir Haukur hlæjandi en hann
grípur í orgelið á hverjum degi. „Sumir
þurfa að beita sig hörðu til að æfa sig
en það hefur aldrei verið tilfellið hjá
mér.“ Haukur heldur upp á afmælið
með fjölskyldunni, börnum, barna-
börnum og barnabarnabörnum í dag.
heida@frettabladid.is
HAUKUR GUÐLAUGSSON ÁTTRÆÐUR: HELDUR ÚTGÁFUTÓNLEIKA ORGAN FLÓRU
Tónlistaráhuginn meðfæddur
ALLS EKKI HÆTTUR Haukur Guðlaugsson organisti heldur útgáfutónleika í Hallgrímskirkju á
sunnudaginn í tilefni áttræðisafmælis síns. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ástkær móðir okkar, amma og
langamma,
Pálína Magnúsdóttir
til heimilis í Furugerði 1, Reykjavík,
lést á Landspítalanum háskólasjúkrahúsi í Fossvogi
föstudaginn 1. apríl sl. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 8. apríl kl. 15.
Hörður Steinsson
Karítas Skarphéðinsdóttir Neff
Pálína Ósk Lárusdóttir
Anna Rós Lárusdóttir
Rebekka Rut Lárusdóttir
Agnes Sigríður Sigvaldadóttir
og langömmubörn
Elsku mamma, amma og
langamma okkar,
Jóhanna Dagbjartsdóttir
Austurvegi 5, Grindavík,
áður Ásabraut 13, Grindavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, laugardaginn
2. apríl. Útförin verður frá Grindavíkurkirkju,
fimmtudaginn 7. apríl kl. 11.00.
Dagbjört Óskarsdóttir
Sævar Óskarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Minn yndislegi eiginmaður, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Carl A. Bergmann
úrsmiður Rauðhömrum 14, Reykjavík,
andaðist á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar,
laugardaginn 2. apríl.
Guðrún K. Skúladóttir
Skúli Bergmann Soffía Traustadóttir
Guðmundur K. Bergmann Hugrún Davíðsdóttir
Helga Bergmann Karl Dúi Karlsson
Bryndís Bergmann Pétur Gísli Jónsson
Lilja M. Bergmann Ólafur Þór Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ragnar Valdemarsson
verkstjóri Lindasíðu 29, Akureyri,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 31. mars.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
7. apríl kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent
á Heimahlynningu á Akureyri.
Sigrún Ásdís Ragnarsdóttir
Jónas Magnús Ragnarsson Aðalheiður Eiríksdóttir
Sóley Ragnarsdóttir Bjarki Páll Jónsson
Jónas Atli Kristjánsson Eydís Eva Ólafsdóttir
Garðar Darri Gunnarsson
Eiríkur Jónasson Kristín Einarsdóttir
Sigrún Arna Jónasdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma
Þórey Einarsdóttir
kennari, Mávahlíð 23, Reykjavík,
sem lést á Krabbameinslækningadeild Landspítalans
föstudaginn 25. mars, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag kl. 15.
Smári Þórarinsson
Örvar Þóreyjarson Smárason Birgitta Birgisdóttir
Vala Smáradóttir Illugi Torfason
Adda Smáradóttir
Alda Örvarsdóttir og Þórey Illugadóttir
Okkar ástkæri
Þórhallur Einarsson
frá Djúpalæk, Helgamagrastræti 36,
Akureyri,
lést á sjúkrahúsinu á Akureyri, laugardaginn 2. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Jónína Þorsteinsdóttir
Þórdís G. Þórhallsdóttir Flosi Kristinsson
Arna H. Jónsdóttir Guðmundur V. Óskarsson
Sigurlaug Sigurðardóttir Ari Laxdal
barnabörn og fjölskyldur þeirra
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Eberhardt Marteinsson
Hvassaleiti 17, Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ sunnudaginn
27. mars. Hann verður jarðsunginn frá Grensáskirkju
í dag þriðjudaginn 5. apríl kl. 15.00.
Marteinn Eberhardtsson Steinunn Ragna Hauksdóttir
Einar Eberhardtsson Hellen S. Helgadóttir
Karen Eberhardtsdóttir
Hilmar Eberhardtsson
barnabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
mágkona, amma og langamma,
Hrefna Vilhelmína
Björgvinsdóttir
Svínaskálahlíð 11, Eskifirði,
lést laugardaginn 2. apríl síðastliðinn á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað. Útförin auglýst síðar.
Guðmundur Björgvin Stefánsson Dóra Dröfn Böðvarsdóttir
Viktor Stefánsson
Stefán Ingvar Stefánsson Gunnhildur Björk
Jóhannsdóttir
María Hjálmarsdóttir
Sverrir Vilbergsson Elín Þorsteinsdóttir
Haraldur Benediktsson Brynja Halldórsdóttir
Ingvar Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.