Fréttablaðið - 05.04.2011, Page 28

Fréttablaðið - 05.04.2011, Page 28
5. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR20 BAKÞANKAR sr. Sigurðar Árna Þórðarsonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. dóms, 6. utan, 8. missir, 9. kletta- sprunga, 11. bókstafur, 12. goðmögn, 14. kál, 16. samanburðart., 17. hyggja, 18. stígandi, 20. gjaldmiðill, 21. spaug. LÓÐRÉTT 1. eymsl, 3. ólæti, 4. keppikefli, 5. fyrir- boði, 7. snuður, 10. svif, 13. veitt eftir- för, 15. tónleikaferðir, 16. mælieining, 19. ætíð. LAUSN LÁRÉTT: 2. mats, 6. án, 8. tap, 9. gjá, 11. ká, 12. tótem, 14. salat, 16. en, 17. trú, 18. ris, 20. kr, 21. grín. LÓÐRÉTT: 1. bágt, 3. at, 4. takmark, 5. spá, 7. njósnir, 10. áta, 13. elt, 15. túra, 16. erg, 19. sí. Nei nei nei... þú ert að misskilja! Ég heiti Samúel Lokason, ekki samloka! Nei, hvað erum við með hér? Grimsby Town? Eee... já. Já, það hafa sko verið betri tímar á Blundell Park! Það var leiðinlegt með þetta mark í uppbótartíma á móti Gillingham! Þínir menn áttu skilið stig í þeim leik! Frábært! Loksins smá virðing! Það gerist nú ekki oft! Og ekki nóg með það! Harðir stuðn- ingsmenn eins og þú fá að hafa heiðurs- hatt kráarinnar! Grimsby? Með hverjum hélt hann áður? Wycombe! Það var nú meira ruslið! ... og foreldrar Heimis labba inn og sjá þurrkarann fullan af poppkorni, ha? Og þau bara standa þarna með þennan ruglingslega, tóma svip sem foreldrar eru alltaf með! Já, einmitt þennan! Sum börn gefa frá sér hljóð sem líkjast fuglasöng eða tónlist. Þetta er geðveikt flott, Lóa! SOS BJ ÖRGUN Fermingarnar eru byrjaðar og já við lífsspurningunum hljóma í kirkjunum. Hvað ætli þetta unga fólk þrái mest? Hluti eða kannski eitthvað annað? Kanntu að gefa? SÍÐUSTU fimm árin hafa fermingar- ungmenni í Neskirkju skrifað á blað vonir sínar og drauma um framtíðina. Þessi líklega fimm hundruð svör eru merkileg, nánast alltaf heiðarleg, sum skemmtileg og kúnstug, en önnur átakanleg. Draumar um frægð spretta fram og mörg vilja verða afreksfólk á einhverju sviði. Nokkur stefna á vit ævintýra og ætla að stunda áhættuleik og hasaríþróttir. Útlitsmál eru stundum nefnd, þau vilja gjarnan vera mjó og sæt. Vinnumál eru líka flestum ofarlega í huga. Störfin eru ekki lengur rígbundin við kyn. Og menntunareinbeitnin er skýr. Á hverju ári skrifa svo einhver, að þau þrái að eignast hest, hund eða annan álíka vin. Unglingarnir minna gjarnan á, að við eigum að vinna að vel- ferð allra jarðarbarna, stuðla að jöfnuði og vernda náttúruna. STÓRU draumarnir? Hvaða gjafir þráir meirihluti fermingar- barna? Hvað er oftast nefnt? Nei, það eru ekki hörðu pakkarnir, sem eru þeim efst í huga, heldur raunveruleg dýrmæti. Fermingarungmenni þrá, að fjöl- skylda þeirra sé hamingjusöm, að öllum líði vel og að í framtíðinni eignist þau sjálf góðan maka og gjöfult fjölskyldulíf: „Mig dreymir um góða fjölskyldu.“ „Mig dreymir um að vera hamingjusöm í fram- tíðinni.“ „Ég vil verða hamingjusamur.“ „Mig dreymir um, að vera hamingjusöm til æviloka.“ „Mig dreymir um að eignast góðan mann.“ Nokkur stynja upp, að þau þrái meiri ást síns eigin fjölskyldufólks. Slíkt stingur í hjartað. Eiga ekki allir menn rétt á elsku „ástvina“? ERTU á leið í búð til að kaupa fermingar- gjöf? Staldraðu við og íhugaðu fyrst óskir og þrá fermingarungmennisins. Getur verið, að það hafi nákvæmlega sömu grunnþarfir og þú? Hlutir eða hamingja? Peningar eða tími? Harðir pakkar eða meiri mýkt? Getur þú gefið eitthvað af þér, nánd, gleði, fegurð og elskusemi? Ferm- ingarungmenni eru ekki hlutafrík heldur hamingjufólk. Unglingar slá vissulega ekki hendi á móti pakka, en mikilvægast er þeim hið góða líf. Þau vilja hamingju fremur en dót. Þú mátt trúa því því þau skrifa það, staðfesta það, sjálf. Hamingjan er alltaf heimafengin og aldrei keypt. Iðkum gleðina fremur en að pakka henni inn. Það er í stíl við kirkjujá. Manstu hver er aðalspurningin í fermingunni? Fermingargjöfin í ár Fyrirtækjaþjónusta OFFICE 1 óskar eftir reyndum sölumanni. Office1 leitar að öflugum sölumanni í starf viðskiptastjóra. Leitað er að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum til þess að starfa með öflugum og skemmtilegum hópi fólks í ört stækkandi deild innan fyrirtækisins. Helstu verkefni: Samskipti við viðskiptavini Sala og ráðgjöf til viðskiptavina Öflun viðskiptasambanda Efling og viðhald núverandi viðskiptatengsla Tilboðsgerð og samningar Hæfniskröfur: Menntun eða góð starfsreynsla sem nýtist í starfi Áreiðanleiki Skipulögð og markviss vinnubrögð Góð framkoma og jákvæðni Snyrtimennska og stundvísi Geta unnið sjálfstætt og hæfni í mannlegum samskiptum. Góð kunnátta í excel og helst í notkun OLAP teninga. Önnur tölvukunnátta æskileg m.a. Axapta. Frumkvæði í starfi, metnaður, áhugi og þjónustulund eru skilyrði. Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl n.k. Umsóknir ásamt ferilskrá og meðmælum berist til ragnar@egilsson.is Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.