Fréttablaðið - 05.04.2011, Page 38
5. apríl 2011 ÞRIÐJUDAGUR30BESTI BITINN Í BÆNUM
„Ég færi á Saffran og fengi mér
sesar-salatið þar. Það er alveg
rosalega gott en því miður fer ég
ekki nógu oft þangað.“
Eyrún Helga Guðmundsdóttir, klippari.
„Við erum að fara að heimsækja Charlies-stelpurn-
ar, sem við erum búnir að vera að vinna með,“ segir
Pálmi Ragnar Ásgeirsson úr upptökustjórateyminu
StopWaitGo.
Pálmi og félagar héldu til Los Angeles í gær, en
þar taka Klara, Alma og Steinunn í stúlknahljóm-
sveitinni Charlies á móti þeim. Félagarnir ætluðu
í svipaða ferð í fyrra en hún datt upp fyrir. Þeir
hyggjast vera í þrjár vikur úti í sólinni og hafa í
nógu að snúast.
„Við erum að fara á fundi og reyna að koma okkur
á framfæri úti – efla tengslin við fólkið sem við
erum búnir að vera í samstarfi við í tvö, þrjú ár án
þess að hafa hitt,“ segir Pálmi. Ásamt því að hafa
samið og útsett lög fyrir Charlies hafa strákarnir
unnið með söngvaranum Friðriki Dór auk þess að
hafa unnið lagið Geðveikt fínn gaur með grínistan-
um Steinda Jr., en það naut mikilla vinsælda.
Spurður hvort markmiðið með ferðinni sé að
koma ár sinni þannig fyrir borð að þeir geti samið
og útsett fyrir erlenda listamenn segir Pálmi svo
vera. „Það er möguleiki. Við erum að fara að hitta
alls kyns fólk sem getur komið okkur í samband
við hina og þessa,“ segir hann. „Ég þori ekki að lofa
neinu, en það er markmiðið til lengdar. Við erum að
fara á alls kyns fundi með hinum og þessum sem við
verðum að sjá hvað kemur út úr.“ - afb
Til Los Angeles á fund Charlies
EFLA TENGSLIN StopWaitGo-drengirnir Pálmi Ragnar Ásgeirs-
son, Ásgeir Orri Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson fóru til Los
Angeles í gær, en þar ætla þeir að efla tengslin við tónlistar-
bransann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég er mjög spenntur og hlakka
mikið til að skrifa þetta – mig
hefur alltaf dreymt um að gera
bíómynd,“ segir sjónvarpsmaður-
inn Auðunn Blöndal.
Auddi er byrjaður að skrifa
handrit að hasarmyndinni Leyni-
lögga ásamt Agli Einarssyni,
Hannesi Þór Halldórssyni og
Huga Halldórssyni. Stikla við
myndina sló í gegn á dögunum, en
hún var framleidd fyrir sérstaka
stiklukeppni Audda og Sveppa sem
fór fram í þætti þeirra á Stöð 2.
Verkefnið er á byrjunarstigi en
Sena hyggst koma að því sem með-
framleiðandi.
„Við erum komnir með þráð í
gegnum myndina – um hvað hún
á að fjalla,“ segir Auddi. „Fólk sá
náttúrlega mikið af því í treilern-
um. Við verðum samt að passa
okkur á því að það verði ekki allt
gefið upp í honum.“
Auddi og félagar stefna að því
að handritið verði tilbúið í sumar,
en þá fer lengra ferli í gang;
klára þarf fjármögnun og ganga
frá öðrum lausum endum. Ef allt
gengur upp yrði myndin frum-
sýnd á næsta ári.
Fjölmargir þekktir leikarar
komu fram í stiklunni og Auddi
segir þá vera spennta fyrir því
að koma fram í kvikmyndinni.
Á meðal þeirra sem komu fram
í stiklunni eru Gísli Örn, Björn
Hlynur, Hjalti Úrsus, Steindi
Jr., Ingvar E., Heiðar Austmann
og Íris Björk, kærasta Audda
og fyrrverandi ungfrú Reykja-
vík, Hörður Magnússon, Hemmi
Gunn og Egill Einarsson, sem
leikur elskhuga Audda. „Það eru
allir tilbúnir að leika þessi hlut-
verk í bíómynd. Mönnum finnst
það mjög fyndið,“ segir Auddi.
Miðað við stikluna verður
myndin lögguhasar en augljóst
er að grínið verður aldrei langt
undan. „Við viljum að hún svín-
lúkki þannig að það séu flott has-
aratriði, en aldrei stutt í grínið,“
segir Auddi, sem bjóst aldrei við
viðbrögðunum sem stiklan fékk,
en þau urðu til þess að handrits-
skrif hófust. „Það ræddu marg-
ir um að þeir vildu sjá treilerinn
sem bíómynd.“
atlifannar@frettabladid.is
AUÐUNN BLÖNDAL: MIG HEFUR ALLTAF DREYMT UM AÐ GERA BÍÓMYND
Ætla að gera hasarmynd
úr Leynilöggustiklunni
SKRIFA HANDRIT Auddi, Egill og Hannes vinna nú að handriti við kvikmyndina Leynilögga, en stikla myndarinnar sló í gegn á
dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég hef alltaf verið heillaður af Finn-
um. Ég hef að vísu aldrei komið þang-
að, en er alltaf á leiðinni,“ segir leik-
stjórinn Ragnar Bragason.
Finnska ríkissjónvarpið YLE hefur
keypt sýningarréttinn á sjónvarps-
þáttunum Heimsendi án þess að hafa
séð svo mikið sem einn þátt. Leik-
stjórinn Ragnar Bragason vinnur
nú að handriti þáttanna ásamt Pétri
Jóhanni Sigfússyni, Jörundi Ragnars-
syni og Jóhanni Ævari Grímssyni.
Þeir voru einnig á bak við Vaktaþætt-
ina víðfrægu, ásamt borgarstjóran-
um Jóni Gnarr, en eins og fram hefur
komið í Fréttablaðinu hafa þættirnir
Nætur-, Dag- og Fangavaktin verið
sýndir á YLE við góðan orðstír.
„Það er kominn góður fílingur eftir
sýningar á Vaktaseríunum,“ segir
Ragnar. „Þetta er sami hópurinn og
sama fyrirtæki á bak við Heimsendi
og þeir treysta því. Ætli þeim hafi
ekki litist vel á hugmyndina.“
Tökur á Heimsendi hefjast í byrjun
júní. Þættirnir gerast á geðdeild og
verða teknir upp á Kjalarnesi á yfir-
gefnu geðdeildinni Arnarholti. Sýn-
ingar hefjast í október. - afb
Finnar kaupa óséðan Heimsendi
ARNARHOLT Á KJALARNESI Þættirnir
Heimsendir eftir Ragnar Bragason og félaga
gerast á geðdeild og verða teknir upp á
Arnarholti. Finnska ríkissjónvarpið hefur
keypt sýningarrétt á þáttunum þrátt fyrir að
tökur hefjist ekki fyrr en í sumar.
Allt sem þú þarft
Lesendur okkar
eru á öllum aldri
– og við þjónum
þeim öllum