Fréttablaðið - 06.04.2011, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 06.04.2011, Blaðsíða 9
Áfram-hópurinn eru þverpólitísk grasrótarsamtök fólks sem telur að best sé fyrir okkur að ljúka Icesave málinu með samþykkt fyrirliggjandi samnings í þjóðaratkvæðagreiðslunni 9. apríl nk. Starf hópsins byggir á frjálsum framlögum einstaklinga og fyrirtækja og sjálfboðavinnu fjölda fólks. Viljir þú leggja fjárhagslegt lið: 0111-26-100244 og kt. 640311-0530. Það munar um allt. Já er fyrir þjóðarhag – sátt og endurreisn – gegn áhættu og óvissu Hvað kostar ICESAVE? Já Nei Nei Nei Mat samninganefndar á kostnaði sem að lokum fellur á ríkissjóð Hér bætist við munurinn á fyrirliggjandi samningsvöxtum og þeim sem gætu staðið til boða í kjölfar dóms. Samvæmt upplýsingum unnum fyrir Lárus Blöndal, hrl., fulltrúa stjórnarandstöðunnar í samninganefndinni er munurinn á 5,55% vöxtum og fyrirliggjandi samningsvöxtum Íslendinga miðað við sama höfuðstól 171 milljarður. Hér er mjög varfærið mat og miðað við 5,55% á meðan samningsvextir Íra vegna neyðarlána eru t.d. 5,8%. Hér bætist enn við aukinn vaxtakostnaður vegna tæplega 500 milljarða hækkunar á höfuðstól. Samkvæmt upplýsingum Lárusar Blöndal, hrl. og fulltrúa stjórnarandstöðunnar í samninganefnd yrði hann líklega 150 til 200 milljarðar. Til varúðar er miðað við lægri mörkin. Lánshæfismat Íslands mun lækka ef samningurinn verður felldur. Ef síðan tekst að ljúka málaferlunum á 5 árum verður kostnaðurinn a.m.k. 135 milljarðar – og hækkar ef málin dragast. Útreikningar Tryggva Þórs Herbertssonar hagfræðings (FB.01.04.2011.) sýna að aukin vaxtabyrði þjóðarbúsins verður á bilinu 135–216 milljarðar. Hér eru neðri mörkin notuð. Hér vantar margvíslegan kostnað og tekjuskerðingu ríkisins, fyrirtækja og almennings á þessu erfiða tímabili sem framundan væri og nefnt hefur verið Fimm ára frostið. Ísland vinnur dómsmálin 175 milljarðar: Seðlabankinn TIL SAMANBURÐAR Dæmi um framlög vegna endurfjármögnunar fjármálafyrirtækja 122 milljarðar: Landsbankinn 60 milljarðar: Íbúðalánasjóður 46 milljarðar: Arion banki 28 milljarðar: Íslandsbanki 11 milljarðar: Sparisjóður Keflavíkur Ísland dæmt til að greiða lágmarkstrygginguna Kostnaður við JÁ og NEI í milljörðum króna. Athugið að möguleikinn „EKKI BORGA NEITT” – er ekki til. Ísland dæmt til að greiða viðbótartryggingu vegna mismununar 135 306 45632

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.