Fréttablaðið - 06.04.2011, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 06.04.2011, Blaðsíða 42
6. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR26 sport@frettabladid.is KEFLVÍKINGAR urðu á mánudagkvöldið fyrsta liðið sem nær að vinna þrjá framlengda leiki í einni og sömu úrslitakeppn- inni. Keflvíkingar hafa enn fremur unnið alla þessa framlengdu leiki þar sem tap hefur þýtt sumarfrí. Þeir unnu 95-90 sigur á ÍR í framlengdum oddaleik í átta liða úrslitunum og hafa síðan unnið tvo síðustu leiki sína á móti KR í fram- lengingu. Alls höfðu sjö önnur lið náð því að vinna tvo framlengda leiki í einni og sömu úrslitakeppninni. FÓTBOLTI Það verður stórleikur á Stamford Bridge í kvöld þegar Chelsea tekur á móti Manchester United í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinn- ar. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi félög mætast í Meistaradeildinni síðan Manchester United vann 6-5 sigur í vítakeppni í úrslitaleik keppninnar í Moskvu 2008. „Ef mínir leikmenn eru að hugsa um Moskvu-leikinn þá eru þeir augljóslega ekki ánægðir. John Terry (klikkaði á víti) er ekki sátt- ur sem og aðrir leikmenn og þeir ættu því að mæta klárir í slaginn. Það gætu verið örlögin okkar að Chelsea muni nú loksins gera eitt- hvað í Meistaradeildinni,“ sagði Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea. Það ætti að hjálpa til að gera Chelsea-menn enn grimmari að United er 11 stigum á undan Chelsea í ensku úrvalsdeildinni þegar aðeins sjö vikur eru eftir af tímabilinu. Chelsea vann 2-1 sigur í síðsta leik liðanna og hefur aðeins tapað 3 sinnum í síðustu 19 leikjum á móti United. „Við höfum náð góðum úrslitum á móti United, sérstaklega á heimavelli og það mun koma til með að hjálpa okkur. Við verðum í góðum málum ef við náðum góðum úrslitum í kvöld,“ sagði Petr Cech, markvörður Chelsea. „Þeir hafa forskot á okkur af því að þeir hafa verið að ná betri úrslitum úr leikjum okkar en þetta er meistaradeildin og aðalmark- mið okkar í þessum leik er að ná inn einu marki,“ sagði Nemanja Vidic, fyrirliði Man. United. Hinn leikur kvöldsins er síðan á milli Barcelona og Shakhtar Donetsk á Camp Nou í Barcelona þar sem enginn býst við öðru en öruggum sigri heimamanna. - óój Fyrri leikur Chelsea og United í Meistaradeildinni: Tími fyrir Chelsea-liðið að hefna fyrir Moskvu FÓTBOLTI Spennan er að mestu farin úr viðureignum Real Madrid og Tottenham annars vegar og Schalke og Inter Milan hins vegar eftir fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinn- ar í gærkvöldi. Real Madrid og Schalke eru svo gott sem komin áfram eftir frábæra sigra, Real eftir að hafa spilaði manni fleiri í 75 mínútur í 4-0 sigri á Spurs og Schalke eftir 5-2 útisigur á Evr- ópumeisturum Inter. Peter Crouch var hetja Totten- ham á móti AC Milan í sextán liða úrslitunum en það tók hann aðeins fimmtán mínútur að eyðileggja nær alla möguleika Tottenham á að komast áfram á móti Real Madrid. Peter Crouch setti nýtt met í Meistaradeildinni með því að fá tvö gul spjöld á fyrstu fimm- tán mínútum leiksins, hann fékk sitt annað gula spjald fyrir villta tæklingu á Marcelo en hafði feng- ið fyrra gula spjaldið sitt á níundu mínútu fyrir brot á Sergio Ramos. Emmanuel Adebayor reynd- ist Tottenham-mönnum oft erfið- ur þegar hann lék með nágrönn- um þeirra í Arsenal og ekki gekk Spurs-mönnum betur að ráða við Tógó-manninn í gær. Adebayor skoraði tvö skallamörk í leiknum, eitt í hvorum hálfleik, og kom Real með því í 2-0 í leiknum. Ángel Di María og Cristiano Ronaldo gerðu síðan út um leikinn og líklega ein- vígið með tveimur frábærum mörkum á síðustu 18 mínútunum. Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var ekki tilbúinn til að fagna sæti í undanúrslitum Meist- aradeildarinnar. „Nei við erum ekki komnir áfram. Ég þekki Eng- land vel, ég þekki enska hugarfar- ið og ég þekki White Hart Lane. Á móti öllum öðrum menningar- heimum myndi ég segja að við værum komnir áfram en enskir fótboltamenn missa ekki trúna og gefast ekki upp fyrr en á síðustu mínútunni, þannig að þetta er ekki búið,“ sagði Jose Mourinho eftir leikinn. „Við byrjuðum ellefu á móti ell- efu og skoruðum strax mark. Þetta varð vonlaust verkefni fyrir Spurs eftir að þeir urðu tíu inni á vell- inum,“ sagði Mourinho. „Það fór allt úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis,“ sagði Harry Redknapp , stjóri Tottenham, eftir leikinn en Tottenham lenti undir eftir fjórar mínútur og missti síðan Peter Crouch af velli með tvö gul spjöld á 15. mínútu. „Um leið og við vorum að yfir- gefa búningsklefann þá sagði Aaron Lennon að hann hefði enga orku eða kraft. Síðan skora þeir snemma og við fáum síðan rauða spjaldið,“ sagði Redknapp en Lennon var með hálsbólgu. „Ég hélt kannski að við gætum hang- ið í þeim en leikmennirnir höfðu ekki lengur kraft í lokin. Það er erfitt að koma hingað með ellefu menn hvað þá að spila tíu á móti þeim. Þetta var erfiður dagur á móti topp-, toppliði,“ sagði Redk- napp. Evrópumeistarar Internazionale eru í slæmum málum eftir 2-5 tap á heimavelli á móti Schalke. Dejan Stankovic skoraði eftir aðeins 25 sekúndur og Diego Milito kom Inter aftur yfir í 2-1 eftir að Joel Matip hafði jafnað í milltíðinni. Edu skoraði hins vegar sjö mínút- um seinna og Þjóðverjarnir gerðu síðan út um leikinn með tveimur mörkum á fyrstu tólf mínútum síð- ari hálfleiks. Raul skoraði fyrra markið á 53. mínútu og það seinna kom á 57. mínútu og var sjálfs- mark Andrea Ranocchia eftir fyrirgjöf frá José Manuel Jurado. Mark Raul var mark númer 70 hjá honum í Meistaradeildinni. Edu bætti síðan við sínu öðru marki eftir að Inter missti Cristi- an Chivu út af með rautt spjald. ooj@frettabladid.is Afgreitt mál í fyrri leik Real Madrid og Schalke eru komin með annan fótinn inn í undanúrslit Meist- aradeildarinnar eftir örugga sigra í fyrri leik átta liða úrslitanna í gær. KVELUR ENN TOTTENHAM Emmanuel Adebayor skoraði tvö fyrstu mörk Real Madrid í gærkvöldi. MYND/AP ÚRSLITIN RÁÐIN Peter Crouch fær hér sitt annað gula spjald eftir aðeins fimmtán mínútna leik í gær. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY KÖRFUBOLTI Keflavík komst í gær í 2-0 úrslitaeinvíginu gegn Njarð- vík um Íslandsmeistaratitilinn í kvennakörfunni eftir frábæran sigur, 67-64, í Ljónagryfjunni en leikurinn var virkilega spennandi í lokin. Njarðvík fékk gott tækifæri til þess að jafna leikinn á síðustu andartökum leiksins en þær komu ekki skoti að körfunni og því fór sem fór. Bryndís Guðmundsdóttir átti frábæran leik fyrir Keflavík en hún gerði 24 stig og tók 7 fráköst. Keflavík getur því orðið Íslandsmeistari á föstudaginn en þá fer þriðji leikur liðanna fram í Toyota-höllinni. „Að koma í þetta feikisterka hús og vinna þetta frábæra lið er góð tilfinning,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, eftir sigurinn í gær. „Við komum inn í annan leik- hlutann eins og brjálæðingar en það lagði grunninn af þessum sigri. Það er þægilegt fyrir alla að vera 2-0 yfir en þetta er langt frá því að vera búið og við verðum að skrúfa hausinn heldur betur fast á okkur fyrir næsta leik. Njarðvík er með hörkulið eins og allir sáu hér í kvöld og við þurfum bara að spýta í. Þetta eru reynslumiklar stelpur og þær vita að við verðum að koma okkur niður á jörðina til að klára dæmið,“sagði Jón. „Við þurftum að hafa rosalega mikið fyrir því að koma okkur inn í leikinn,“ sagði Sverrir Sverrisson, þjálfari Njarðvíkur, eftir tapið í gær. „Við töpuðum allt of mikið af boltum frá okkur sem Kefla- vík náði að nýta sér. Þegar ég lít yfir leikinn þá voru það þessir tæknilegu mistök af okkar hálfu sem kostuðu okkur þennan sigur. Keflavík kom gríðarlega sterkt inn í annan leikhlutann og eftir það voru þær alltaf skrefinu á undan. Við vorum virkilega nálægt þessu í lokin, en til að vinna lið eins og Keflavík þá verðum við einfald- lega að spila betur. Við þurfum bara einn sigur í Keflavík til þess að fá annan leik á okkar heimavelli og það ætlum við okkur að gera,“ sagði Sverrir. - sáp Keflavík vann í Ljónagryfjunni og er 2-0 yfir á móti Njarðvík í úrslitaeinvíginu: Keflavík einum sigri frá titlinum BRYNDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR Skoraði 24 stig í gær þar af 20 þeirra í fyrri hálf- leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.