Fréttablaðið - 06.04.2011, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 06.04.2011, Blaðsíða 38
6. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR22 BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar LÁRÉTT 2. óskiptu, 6. óhreinindi, 8. sægur, 9. hélt á brott, 11. frú, 12. umstang, 14. afspurn, 16. utan, 17. hljóma, 18. fljótfærni, 20. tvíhljóði, 21. einsöngur. LÓÐRÉTT 1. steypuefni, 3. 950, 4. vegsama, 5. dýrahljóð, 7. formun, 10. rekkja, 13. arinn, 15. hýra, 16. geislahjúpur, 19. ætíð. LAUSN LÁRÉTT: 2. öllu, 6. im, 8. mor, 9. fór, 11. fr, 12. stúss, 14. umtal, 16. án, 17. óma, 18. ras, 20. au, 21. aría. LÓÐRÉTT: 1. gifs, 3. lm, 4. lofsama, 5. urr, 7. mótunar, 10. rúm, 13. stó, 15. laun, 16. ára, 19. sí. ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta Ég vildi að ég væri Íslendingur,“ sagði heimspekingurinn og fjölmiðlamaður- inn Gabriel Albiac í útvarpsþætti einum um síðustu helgi. Ég hafði heyrt af ófáum kanadískum kaupsýslumönnum í svip- uðum hugleiðingum svo ég taldi fyrst að skæður Íslandsfaraldur væri kominn á dreif. En síðan áttaði ég mig á því af hverju Gabriel og svo ótal margir Spán- verjar öfunda okkur þessa dagana. TIL að útskýra það verð ég að fara til Mekka minninganna, það er að segja til Bíldudals, og rifja upp lítið atvik frá bernskunni. Þá var ég sex eða sjö ára og átti yfir höfði mér bólusetningu sem olli mér gífur- legu hugarangri. Þegar ég er að fara til hjúkkunnar mæti ég Loga vini mínum sem var að koma úr bólusetningu. „Var þetta vont?“ spurði ég. „Nei, ekk- ert rosalega,“ segir hann mannalega en þar sem ég vissi að hann lifði eftir vestfirska móttóinu „eigi skal haltur ganga meðan báðir fætur eru jafn langir“ þá var þetta ekki mikil hughreysting. Þess- ar fáu mínútur sem ég beið eftir að vera sprautaður voru skelfi- legar og mikið öfundaði ég þá Loga, sem var reyndar ekki alveg ósærður en gat þó um frjálst höfuð, eða kannski frekar frjálsan rass, strokið. ÖFUND Spánverja er af svipuðum toga. Þeir eru reyndar komnir á hnén en þeir telja sig eiga hrunið eftir. Og eftir hrun er girt niður um mann og bóluefni við eyðslusemi og töffaraskap er látið vella úr nálinni sem rekin er á kaf í aðra rass- kinnina. Í þeirra huga eru Íslendingar ættbálkurinn sem fyrstur fékk þennan skammt. „Var þetta ekki alveg svaka- legt?“ spyrja þeir mig oft með angistar- svip. Ekki nóg með það heldur tala þeir nú um það að við Íslendingar séum vösk þjóð sem hafi hespað þennan ófögnuð af. „Þeir létu bankana gossa, síðan ráku þeir ríkis- stjórnina með pottaglamri og núna eru þeir að klófesta bankamennina,“ sagði til dæmis Gabriel. MEÐ öðrum orðum, þeir eiga ekki aðeins eftir að finna fyrir nálinni heldur óttast þeir einnig aðfarirnar. Þeir gætu þess vegna lent hjá lækni sem er skjálfhent- ur og spyr tíðinda meðan hann dundar við að koma nálinni í rassinn. Og þar sem „spænska veikin“ þrífst enn þurfa þeir kannski að koma daginn eftir og fá sprautu í hina rasskinnina. Ísland orðið töff á ný Fríða var hörð á því að viðhalda goggunarröðinni Æ, æ, æ, æ! Einhvern tímann hefði maður nú skellt sér á svona nokkuð! Það var þá! Og aldrei aftur! Skál fyrir því! Æ... Æ, æ, æ! Ég get ekki beðið eftir því að geta flutt héðan, farið í háskóla og stjórnað mér alveg sjálfur. ... áður en ég ákveð að flytja aftur heim í svona sex, sjö ár á meðan ég leita að vinnu. Hæ, við komumst ekki sím- ann núna. Skildu eftir skilaboð eftir rifrildi krakk- anna... Ég fæ að tala fy rst! Nei, ég! Þú fékks t síðast! Ónei! Vííst! Nehei! Frábær skilaboð. Jæja, þeir sem reyna að ná í okkur vita alla vega að þeir hafa hringt í rétt númer. - Lifið heil www.lyfja.is Úrval gjafa á góðu verði FERMING 2011 2.990 kr. Puma Animagical fyrir dömuna Ferskur og nútímalegur dömuilmur frá Puma í flottum umbúðum. PUMA animagical dömu EDT 40 ml Maybelline Með kaupum á einu stykki úr Maybelline línunni fylgir snyrtibudda og augnblýantur – frítt. Tilboðið gildir til 20. apríl. 2.990 kr. Puma Animagical fyrir herrann Töff og stílhreinn herrailmur frá Puma í fjörugum umbúðum. PUMA animagical herra EDT 40 ml Skrautlegt, skemmtilegt og sívinsælt Hárskraut, skart og frábært úrval af öllum þessum gjöfum sem alltaf koma sér vel. OROBLU Fermingartilboð 20% afsláttur af ALL COLORS Tilboðið gildir til 20. apríl. ÍS L E N S K A S IA .I S L Y F 5 44 24 0 3. 20 11 Lágmúla - Laugavegi - Garðatorgi - Smáralind - Smáratorgi - Setbergi - Borgarnesi - Grundarfirði Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Blönduósi - Hvammstanga Skagaströnd - Sauðárkróki - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.