Fréttablaðið - 06.04.2011, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 6. apríl 2011 15
Æseifskviða
Grunnurinn að Icesave-deil-unni er sú einfalda stað-
reynd að þegar eigum þrotabús
Landsbankans var ráðstafað
var það gert þannig að útkoman
varð hagstæðari fyrir þá sem
áttu innlánsreikninga á Íslandi
en í Bretlandi eða Hollandi. Nú
hafa náðst samningar um það
hvernig á að gera þetta upp með
sanngjörnum hætti fyrir báða
aðila. Íslenska ríkið bætir Hol-
lendingum og Bretum upp hluta
kostnaðarins við að gera inn-
stæðueigendur í þeim löndum
jafnsetta innstæðueigendum á
Íslandi. Miðað er við afar lága
vexti, sem er mikið hagsmuna-
mál fyrir íslenska ríkið. Vext-
irnir eru til dæmis um helm-
ingi lægri en Evrópulönd hafa
boðið ríkissjóðum Grikklands
og Írlands sem eiga í miklum
kröggum.
Þetta er góð og sanngjörn
niðurstaða fyrir Ísland og við
eigum ekki að kveinka okkur
undan því að þurfa með þess-
um hætti að koma til móts við
nágrannaþjóðir okkar.
Kostnaður íslenska ríkisins
er áætlaður um 30 milljarðar
króna. Líklega er það fremur
ofmat en vanmat, því að eigur
þrotabúsins eru varlega metn-
ar. Myndin af þrotabúinu hefur
orðið skýrari eftir því sem tím-
inn hefur liðið. Það dregur úr
áhættu. Gengisáhætta hefur
einnig minnkað mikið og mun
fyrirsjáanlega hverfa að miklu
leyti síðar á þessu ári þegar stór
hluti forgangskrafna verður
greiddur.
Verði dómstólaleiðin farin
hverfur engin áhætta en við
bætist óvissa um vexti, skipt-
ingu höfuðstóls (hlutdeild
íslenska ríkisins gæti allt að
tvöfaldast) og greiðslutíma, auk
þess sem öryggisfyrirvarar
Íslands í núverandi samningi
væru ekki lengur tryggir. Það
væri engu betra fyrir íslenska
ríkið að vera dæmt til að greiða
í krónum en að semja um
greiðslur í erlendri mynt. Það
hefur sömu áhrif á innlendan
gjaldeyrismarkað.
Kostnaður vegna tafa við að
ljúka málinu er þegar orðinn
gríðarlegur og eykst enn með
frekari töfum. Sá kostnaður
kemur fyrst og fremst fram á
tvennan hátt.
Í fyrsta lagi vegna verri
vaxtakjara á erlendum skuldum
landsmanna. Þar kostar hvert
prósentustig rúma 30 milljarða á
hverju ári. Þetta lækkar þjóðar-
tekjur.
Í öðru lagi verður fjárfesting
minni vegna lakari aðgangs að
fjármagni og meiri óvissu. Þetta
leiðir til minni hagvaxtar (eða
meiri samdráttar) en ella og
aukins atvinnuleysis. Lítil fjár-
festing er helsti dragbítur á hag-
vöxt á Íslandi nú. Eitt prósentu-
stig í töpuðum hagvexti, sem
ekki tekst að vinna upp aftur, má
meta til um 300 milljarða króna
í framtíðarlandsframleiðslu,
m.v. 5% vexti. Eitt prósentustig í
töpuðum hagvexti sem tekur 10
ár að vinna upp aftur má meta
til um 70 milljarða króna í fram-
tíðarlandsframleiðslu m.v. sömu
forsendur.
Þessi tafakostnaður er lang-
stærsti reikningurinn vegna Ice-
save. Þær greiðslur sem á end-
anum kunna að fara úr ríkissjóði
vegna uppgjörsins verða aldrei
nema lítið brot af þessu. Það er
vitaskuld sorglegra en tárum
taki. Því getur dómstólaleiðin
aldrei skilað Íslendingum nein-
um ávinningi, jafnvel þótt svo
ólíklega færi að dómsmál ynnist.
Þegar líklegur reikningur
ríkisins vegna Icesave, 30 millj-
arðar, er skoðaður má hafa í
huga að íslenska ríkið hafði um
450 milljarða í tekjur á árunum
2003 til 2007, sem beint má rekja
til góðærisbólunnar og þess fjár
sem íslensku bankarnir dældu
inn í hagkerfið, m.a. af Icesave-
reikningunum.
Þótt um helmingur þessa fjár
hafi tapast við gjaldþrot Seðla-
bankans og hallarekstur ríkis-
ins árin 2008 til 2012 kosti mikið
verður ríkissjóður þegar upp er
staðið litlu skuldsettari en hann
var undir lok tíunda áratugarins,
áður en ballið byrjaði, í hlutfalli
við landsframleiðslu.
Féð sem bankarnir dældu inn
í íslenska hagkerfið skilaði sér
líka í því að fjármunaeign lands-
manna jókst um hátt á annað
þúsund milljarða árin 2003 til
2009. Eftir sitja hús, virkjanir,
vegir, jarðgöng, tónlistarhús,
sundlaugar, hafnir og svo fram-
vegis. Árið 2008 voru 8.340
Toyota Land Cruiser jeppar
á landinu, sem myndu líklega
kosta um 80 milljarða króna
nýir. Svona mætti nær endalaust
telja.
Á sama tíma batnaði hrein
skuldastaða þjóðarbúsins gagn-
vart útlöndum og hefur líklega
ekki verið betri í um aldarfjórð-
ung. Ekki síst vegna þess að
erlendir kröfuhafar urðu að sjá
á eftir um 7.000 milljörðum sem
þeir höfðu lánað íslensku bönk-
unum og þeir fá ekki til baka.
Hvað er þjóðarbúið lengi að
afla 30 milljarða króna? Afgang-
urinn af utanríkisviðskiptum
landsmanna, viðskiptajöfnuður-
inn, er nú meiri en nokkurn tíma
áður eða sem samsvarar um 3
milljörðum króna á viku. Það
tekur því þjóðarbúið 10 vikur
að afla nægs gjaldeyris í þetta
verkefni. Jafnvel miðað við allra
svartsýnustu spár um þróun
gengis og endurheimtur eigna
Landsbankans verður reikning-
urinn innan við eins árs afgang-
ur af viðskiptajöfnuði.
Allt útlit er fyrir að málið
verði að fullu gert upp árið 2016,
m.v. núverandi samning. Þangað
til eru 5 ár. Þeir sem telja að
börnin okkar greiði reikninginn
mega hafa það í huga að eftir 5
ár verða þau, merkilegt nokk,
að jafnaði 5 árum eldri en þau
eru núna. Flest þeirra verða enn
börn, þau elstu orðin unglingar.
Þeirra skattgreiðslur munu ekki
renna til að greiða þennan reikn-
ing. Þau erfa hins vegar alla þá
innviði sem góðærið skilur eftir.
Þeir sem vilja fara dóm-
stólaleiðina hafa sumir hverjir
vitnað í ýmsar hetjur Íslands-
sögunnar og bókmenntanna máli
sínu til stuðnings. Vísað í garpa
sem þeir telja víst að hefðu sagt
nei. Það er dálítið til í þessu.
Til dæmis má væntanlega slá
því föstu að Egill Skallagríms-
son hefði sagt nei. Líklega hefði
hann gert það utan kjörstaðar í
ránsferð í útlöndum. Dottið svo í
það og vegið mann og annan.
Það er ekki hægt að vona
annað en að á þúsund árum hafi
meirihluti þjóðarinnar náð meiri
þroska en það. Skilji að það eru
hagsmunir Íslands að berjast á
sanngjarnan hátt fyrir góðum
málstað og taka í útrétta sátta-
hönd þegar hún býðst. Ekki að
ryðjast áfram eins og naut í
flagi, fífldjarfir, ósáttir hver við
annan og vinafáir.
Icesave
Gylfi
Magnússon
dósent í Háskóla
Íslands og fyrrverandi
efnahags- og
viðskiptaráðherra
Þetta er góð og sanngjörn niðurstaða
fyrir Ísland og við eigum ekki að kveinka
okkur undan því að þurfa með þessum
hætti að koma til móts við nágrannaþjóðir okkar.
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
BESTU RITDEILURNAR,
ÁDREPURNAR,
SKAMMIRNAR
OG ALLAR HINAR
AÐSENDU GREINARNAR
ERU Á VÍSI.
Meiri Vísir.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meira úrval afþreyingar, frétta og myndskeiða í topp–upplausn með greiðara
og einfaldara aðgengi fyrir allar tölvur og farsíma. Horfðu, hlustaðu og fylgstu
með öllu því sem gerist, hvar og hvenær sem er á Vísi.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Má bjóða ykkur meiri Vísi?