Fréttablaðið - 06.04.2011, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 06.04.2011, Blaðsíða 28
MARKAÐURINN6. APRÍL 2011 MIÐVIKUDAGUR8 S K O Ð U N Þátttaka í sýningum er dýr fjár- festing. Þær geta verið mikilvæg- ur vettvangur fyrir sprotann þinn til þess að ná markmiðum í sölu eða markaðssetningu. Þessi grein færir fram nokkur atriði sem gott er að hafa í huga þegar taka skal þátt í sýningum. 1. SETTU ÞÉR MARKMIÐ Fimm algengustu ástæður fyrir þátttöku í sýningu eru þær að safna söluábendingum um ný við- skipti, hitta núverandi viðskipta- vini, auka meðvitund um vöru eða vörumerki, kynna nýjar vörur, skapa tengslanet eða skoða sam- keppnina. Áður en þú ferð af stað skaltu gera þér vel grein fyrir hvaða markmiðum þú hyggst ná með þátttökunni og hvernig þú ætlar að mæla árangurinn. Um- fram allt skaltu velja réttu sýn- ingarnar. Ekki er nauðsynlegt að taka þátt í öllum sýningum sem boðið er upp á. Skoðaðu vel hverj- ir eru þátttakendur, bæði sýnend- ur og gestir. Gerðu þér grein fyrir í hvaða tilgangi þeir taka þátt og skilgreindu vel hvernig þú tengist sýningunni. Algengast er að nota sýningar til að búa til og safna nýjum söluábendingum. 2. BÚÐU TIL VERKÁÆTLUN Afar mikilvægt er að búa til verkáætlun fyrir sýninguna með góðum fyrirvara. Algengt er að áætlun fyrir sýningu sé tilbú- in hálfu ári áður en sýningin er haldin. Áætlunin tekur til hluta eins og hverjir fara á sýninguna, hvert hlutverk þeirra er, hvar verður gist, hvaða hlutir verða teknir með, hvernig er hægt að koma þeim á staðinn, hverjir setja upp básinn, hverjir munu hanna básinn og margt fleira. Gott er að skoða tæmandi gátlista sem finnast víða á vefnum. Þú getur þá útbúið þér slíkan lista. Mikil- vægt er að búa til góða fjárhags- áætlun um hvaða kostnaður verð- ur til og hverju þú ert tilbúinn að eyða í sýninguna. Þannig nærðu líka að tengja markmið þín og kostnaðinn við sýninguna. 3. ÁKVEDDU HVERNIG ÞÚ FÆRÐ FÓLK Á BÁSINN Þetta mikilvæga atriði skilur á milli þeirra sem ná árangri á sýn- ingum og annarra. Þarna er gott að nota hugarflug um hvernig þú vekur athygli sýningargesta sem ganga um svæðið. Margir setja upp leik sem safnar nafnspjöld- um gegn því að draga um verð- laun. Þá nærðu líka upplýsingum um mögulega kaupendur. Einnig er gott að hugsa um hönnunina á básnum og nota eitthvað sem gríp- ur augað. Gott er fyrir ný fyrir- tæki að taka fram hvað þau gera með merki fyrirtækisins á básn- um. Góð staðsetning á sýning- arsvæðinu getur líka tryggt þér marga gesti. Gott er að vera þar sem mikil umferð gesta er, svo sem nálægt inngangi eða mat- sölusvæðum. Sérstaklega er gott að nota tímann áður en sýning- in hefst með því að senda út boð til núverandi og ekki síður mögu- legra viðskiptavina um að koma í heimsókn á básinn. Jafnvel aug- lýsa það að þú verðir með bás á sýningunni. Einnig skiptir máli hvernig þú skráir fyrirtækið á sýninguna því margir sýningar- haldarar leyfa þér að setja inn leitarorð um þitt fyrirtæki sem hluta af skráningunni. Réttu leit- arorðin tryggja að áhugasamir kaupendur finna þitt fyrirtæki þegar þeir framkvæma sína leit. 4. SKIPULEGGÐU HVAÐ ÞÚ GERIR Á BÁSNUM Þetta er sérstaklega mikilvægt at- riði sem gleymist oft. Margir stilla bara upp bæklingum og bíða svo eftir því að einhver stoppi og fari að spyrja spurninga. Best er að vera mjög opinn, bjóða fólki góðan daginn þegar það gengur framhjá og jafnvel bjóða því inn á básinn að fyrra bragði. Ekki er gott að vera of ágengur en mundu að mark- miðið er að fá fólk inn á básinn. Þú skalt skipuleggja vel söluræð- una þína þegar einhver stoppar. Hafðu á hreinu 2-3 setningar sem segja hvað fyrirtækið þitt gerir og hvaða lausnir það býður. Þegar þú hefur rétt útskýrt hvað fyrirtæk- ið gerir skaltu spyrja gestinn að hverju hann sé að leita. Það hjálp- ar þér við að finna út úr því hvort þú bjóðir lausnir sem viðkomandi er að leita að. Ef þín vara á við þennan gest ertu í betri stöðu til að útskýra í frekari smáatriðum hvað þitt fyrirtæki hefur fram að færa. Markmið þitt er að fá nafn- spjald eða upplýsingar um gestinn og fylgja málinu svo eftir þegar sýningunni lýkur. Helst ekki eyða meira en 20-30 mínútum í hvern aðila. Á básnum gilda líka nokkrar siðareglur. Ekki borða eða drekka á básnum. Engar töskur eða yfir- hafnir eiga að vera sýnilegar á básnum. Aldrei timburmenn eða eftirköst drykkju. Mundu líka eftir þægilegum skóm því þetta er mjög mikil vinna. Nóg af vatni þarf að vera til staðar ásamt eyðublöð- um til að safna upplýsingum um mögulega viðskiptavini. Mundu að pláss þarf að vera fyrir aukaupp- lýsingar um viðskiptavinina svo auðveldara verði að fylgja málun- um eftir í lok sýningar. Teldu allar söluábendingar í lok hvers dags. 5. ÞEGAR HEIM ER KOMIÐ Gott er að temja sér að taka strax saman skýrslu í kjölfar sýningar, svo sem fjölda söluábendinga sem söfnuðust og fleira. Skilgreindu ábyrgð fyrir þeim málum sem S P R O T A R Ingvar Hjálmarsson tölvunarfræðingur Fimm atriði um árangursríkar sýningar Afar mikilvægt er að búa til verkáætlun fyrir sýninguna með góðum fyrirvara

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.