Fréttablaðið - 28.04.2011, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 28.04.2011, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011 ATVINNUMÁL Samtök atvinnulífs- ins hafa kynnt ríkisstjórninni hug- mynd um breytta gjaldtöku í sam- göngumálum. Hugmyndin snýst um að færa gjöld af eldsneyti yfir í vegtolla, og gæti komið stórum vegaframkvæmdum af stað, er mat samtakanna. Hugmyndinni er fálega tekið af Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra sem segir að um aukna skattpíningu sé að ræða með breyttum formerkjum. SA hafa lagt áherslu á að hefja átak í samgöngumálum í tengslum við kjarasamninga, en allt frá stöðug leikasáttmálanum árið 2009 hefur verið rætt um slíkt átak. Líf- eyrissjóðirnir höfðu lýst sig áhuga- sama um að koma að fjármögn- un en þeir sögðu sig frá málinu í desember, fyrst og síðast vegna deilna um vegtolla. „Það sem við höfum talið mögu- legt til að brjóta þessa kyrrstöðu í samgöngumálunum er að gjaldtak- an verði flutt af eldsneyti og sett í almenna vegtolla,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, en hugmyndin var rædd óformlega við stjórnvöld í gær. Ríkissjóður leggur hlutfalls- legt gjald á innkaupsverð elds- neytis. Þegar það hækkar eykst skattheimtan. Með því að draga úr þessari gjaldtöku og taka upp fast gjald þegar ekið er um til- teknar samgönguæðar er mat SA að draga megi úr sveiflum á elds- neytisverði. Það tryggi hins vegar örugga og jafna innheimtu til að standa undir framkvæmdum. Sér- stakt tímabundið gjald vegna nýframkvæmda gæti komið til greina samhliða, að sögn Vil- hjálms. Ögmundur Jónasson segir tillög- una ganga út á stórauknar álögur. „Það sem er breytt síðan í fyrra, þegar rætt var um að skattleggja einstakar leiðir vegna fram- kvæmda á viðkomandi stað, er að nú er þessu smurt yfir landið allt. Mín sýn er sú að þetta sé almenn skattlagning sem ég hef efasemd- ir um að stemning sé fyrir í sam- félaginu. Galdrastafur Vilhjálms Egilssonar breytir því ekki að verið er að tala um að afla viðbót- artekna upp á tugi milljarða. Þeir peningar koma úr vösum lands- manna, ekki af himnum ofan,“ segir Ögmundur. - shá Fimmtudagur 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Skólar og námskeið 28. apríl 2011 97. tölublað 11. árgangur Galdrastafur Vilhjálms Egilssonar breytir því ekki að verið er að tala um að afla viðbótartekna upp á tugi milljarða. ÖGMUNDUR JÓNASSON INNANRÍKISRÁÐHERRA FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2011 • KYNNING Háskólinn í Reykjavík hefur markað sér sérstöðu á sviðum tækni, viðskipta og laga. Þaðan útskrifast til að mynda tveir af hverjum þremur í tæknigreinum á Íslandi. „Okkar hlutverk er að skapa og miðla þekkingu til að efla sam-keppnishæfni og lífsgæði,“ segir Ari K. Jónsson, rektor Háskól-ans í Reykjavík, en skólinn hefur öðlast sterkan sess í íslensku há-skólasamfélagi á þeim þrettán árum sem hann hefur starfað. „Við höfum afmarkað ákveðin svið og einbeitum okkur að tækni, viðskiptum og lögum,“ upplýsir Ari og tekur fram að HR sé með afar sterka stöðu á þeim sviðum. Nefna megi að skólinn útskrifi tvo af hverjum þremur í tækni-greinum á landinu og helming allra með viðskiptagráður. „Þá skiptir ekki síður máli að útskrif-uðum nemendum okkar gengur vel að fá vinnu og komast í fram-haldsnám, enda höfum við, til við-bótar við áherslu á sterkt bóklegt nám, einsett okkur að nýta raun-veruleg verkefni til að styrkja þekkingu og þjálfun nemenda og undirbúið þá þannig vel fyrir þátttöku í atvinnulífinu,“ segir Ari. Hann segir tengslin við at-vinnulífið mjög mikilvæg.„Við fáum til okkar kennara úr atvinnulífinu og leggjum áherslu á raunhæf verkefni úr atvinnulíf-inu. Þannig skapast sterk tengsl milli skólans og atvinnulífs-ins sem kemur nemendum mjög til góða því þeir fá tækifæri til að skapa sér eigin tengsl við at-vinnulífið,“ segir Ari.Í HR er einnig lögð áhersla á þverfaglega þekkingu, alþjóðlegt umhverfi og ekki síst nýsköpun. „Við viljum að nemendur kynnist öðrum greinum, siðum og þekk-ingu og læri að skapa nýja þekk-ingu og koma henni á framfæri.“Ari segir stöðu skólans mjög góða í dag. Skólinn sé í jafnvægi með um 3000 nemendur og búi yfir einstakri aðstöðu til kennslu og rannsókna í Nauthólsvíkinni. „Við höfum náð mjög góðum ár-angri í kennslu en ekki síður í rannsóknum,“ segir Ari og telur að það komi fólki stundum á óvart að HR sé fremstur í rannsóknum á sínum sviðum á Íslandi. Ari telur lykilinn að góðum ár-angri skólans felast í nokkrum atriðum. „Við leggjum áherslu á gæði í okkar starfi sem felast ekki aðeins í því að gera kröfur til nemenda heldur einnig í því að allir leggi sig fram bæði kennar-ar og starfsfólk. Þannig sköpum við nemendum þá aðstöðu og veit-um þeim þann stuðning sem þeir þurfa til að þeir geti sinnt sínu námi sem allra best,“ segir Ari og telur framtíðina bjarta. „Við erum að komast í gegnum niður-skurðarskafl og stöndum sterk með góða aðstöðu og skýra stefnu til framtíðar. Við ætlum að halda áfram að byggja upp sterkan há-skóla á sviðum tækni, viðskipta og laga hér í Nauthólsvíkinni..“ Stærsti tækni- og viðskiptaháskóli Íslands „Við leggjum áherslu á gæði sem felast ekki aðeins í því að gera kröfur til nemenda heldur einnig í því að allir leggi sig fram, bæði kennarar og starfs-fólk. Við reynum að skapa nemendum það umhverfi, aðstöðu og hjálp sem þarf til að þeir geti sinnt sínu námi sem allra best,“ segir Ari. MYND/ANTON ● STAÐREYNDIR UM HR■ Nemendur við Háskólann í Reykjavík eru um 3.000 ■ Kjarnasvið HR eru tækni, við-skipti og lög. ■ Boðið er upp á grunnnám, meistaranám og doktorsnám í öllum deildum skólans. Í boði eru um 60 námsbrautir.■ Hægt er að stunda nám á frumgreinasviði sem er undanfari háskólanáms. ■ HR útskrifar í dag tvo af hverjum þremur sem ljúka tæknimenntun á háskólastigi og helming allra þeirra sem ljúka viðskiptamenntun á háskólastigi. ■ Háskólinn í Reykjavík býður tæplega 700 námskeið á ári; rúmlega 500 í grunnnámi og u.þ.b. 160 á meistarastigi með þarfir nemenda og atvinnu-lífsins í huga. ■ Háskólinn í Reykjavík er þekkingarsamfélag þar sem lögð er rík áhersla á góða og persónulega þjónustu við nemendur. ■ Við Háskólann í Reykjavík eru starfræktar 16 rannsóknar-stofnanir. ■ Háskólinn í Reykjavík er stað-settur í Nauthólsvík í nýrri og glæsilegri 30.000 fermetra háskólabyggingu. ■ Um ók Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Nemendur í Förðunarskóla Snyrtiakademíunnar vinna lokaverkefni sín í fantasíuförðun í næstu viku: Förðun ímyndunaraflsins N æstkomandi fimmtudag, 5. maí, munu nítján nemendur í Förðunarskóla Snyrtiaka-demíunnar vinna lokaverkefni sín frá skólanum í svokallaðri fantasíuförð-un. Svanhvít Valgeirsdóttir, skólastjóri Förð-unarskólans í Snyrtiakademíunni, farðaði Sigríði Klingenberg í anda fantasíunnar á dögunum. „Fantasíuförðun er ákveðið listform í förðun þar sem ímyndunaraflið ræður för og ákveðin hugmyndavinna býr að baki,“ segir Svanhvít og bætir við að í þessari gerð förðunar séu í raun engin takmörk fyrir því hvað megi og hvað ekki. Hún segir fólki velkomið að koma í Förðunarskólann næstkomandi fimmtudag og fylgjast með nemendum vinna verk sín milli klukkan 18 og 20. Skólinn er að Hjallabrekku 1. „Nemendur hafa verið í hugmynda-vinnu að verkum sínum alla þessa önn en verkefnin eru unnin út frá listamanni og listave ki sem þau völdu sér þannig að hver förðun verður í anda þeirra listamanna sem fyrir valinu urðu. Fantasíuförðun er þá unnin og stílfærð frá toppi til táar og er bæði skemmti- leg og opnar huga emend- anna.“ juliam@frettabladid.is Konunglegt brúðkaup verður haldið með pompi og prakt á morgun. Af því tilefni ætla margir að klæða sig upp á og skála. Hvernig væri að skarta kóngabláu sem er litur í miklu uppáhaldi hjá hinni íðilfögru Kate Middleton? 30 OPIÐ HÚS APRÍL EIRBERGSDAGURIN N LAUGARDAGINN Úrval af heilsuvörum og hjálpartækjum til sýnis og sölu í verslun okkar að Stórhöfða 25 Fjöldi tilboða Verið velkomin Opið frá kl. 11-16. teg. 11001 í C,D,E skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr. 1.990,- Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18. Lau. 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Vertu vinur Þ E S S I G A M L I G Ó Ð I N Ý K O M I N N A F T U R TUZZI DAGAR 20% AFSLÁTTUR AF TUZZI VÖRUM Allar gerðir af pönnum. Virka líka á spanhellur. Viðloðunarfrí húð. 50% AFSLÁTTU R AF 11 GERÐIR AÐEINS Í 3 DAGA!TRIS TAR PÖNN UM Afnemum virðisaukaskatt af fatnaði og skóm frá fimmtudegi til sunnudags Tax free Safnari í 76 ár Þórður Tómasson, safnvörður Byggðasafnsins í Skógum, er níræður. tímamót 24 Skoðar myndbönd Árni Sveinsson gerir heimildarmynd um íslensk tónlistarmyndbönd. fólk 46 8 5 8 8 6 STORMUR UM TÍMA Í dag má víða búast við stífri SA-átt, 10-18 m/s við S- og SV-ströndina og horfur á stormi um og eftir hádegi. Töluverð rigning suðaustanlands og þurrt að mestu N- og NA-lands. VEÐUR 4 skoðun 18 Hverjir falla í sumar? Fréttablaðið spáir í dag í fallbaráttuna í Pepsi-deild karla í sumar. sport 40 BRUNNURINN BYRGÐUR Margra metra djúpu vatni hefur nú verið dælt úr húsgrunni í Þverholtinu í Reykjavík og sjálfvirkri dælu komið fyrir til að koma í veg fyrir að grunnurinn fyllist aftur af vatni. Eins og Fréttablaðið fjallaði um fyrir páska skapaðist hætta þegar börn léku sér við húsgrunninn þegar hann var fullur af vatni. Til stóð að reisa íbúðir fyrir stúdenta á reitnum, en fallið var frá þeim áformum eftir bankahrunið. Lóðin er nú í eigu Lands- bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DÓMSMÁL Neyðarlögin sem sett voru eftir fall íslensku bankanna haustið 2008 standast eignar- réttarákvæði stjórnarskrárinnar samkvæmt úrskurði héraðsdóms. Dómurinn hafnaði í gær kröfu kröfuhafa um að innstæður í Landsbankanum teldust for- gangskröfur í þrotabú bankans, eins og neyðarlögin kveða á um. Verði úrskurði héraðsdóms snúið í Hæstarétti gæti það kost- að ríkissjóð hundruð milljarða króna. - bj / sjá síðu 6 Héraðsdómur um neyðarlög: Lögin standast stjórnarskrána Vilja færa gjaldtöku af bensíni í vegtolla SA hafa kynnt stjórnvöldum hugmynd um að færa gjöld af eldsneyti yfir í vegtolla. Leiðinni er ætlað að draga úr sveiflum á eldsneytisverði en tryggja öruggar tekjur til framkvæmda. Innanríkisráðherra tekur hugmyndinni fálega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.