Fréttablaðið - 28.04.2011, Blaðsíða 16
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR16 16
hagur heimilanna
Þrátt fyrir að komið sé fram í
lok apríl og farið sé að örla á síð-
búnu sumri er enn ekki of seint
að klippa garðplöntur líkt og tré
og runna.
Að sögn Ingvars Magnússonar,
skrúðgarðyrkjufræðings og ann-
ars eiganda fyrirtækisins Garð-
meistara ehf., hefur kalsatíðin
sem verið hefur í vor haft þau
áhrif að gróður fer mjög seint
af stað þetta árið. Því mæli ekk-
ert gegn því að að klippa tré um
þessar mundir.
„Þetta er bara rétt að komast
af stað núna,“ segir Ingvar og
bætir við að í raun sé ekkert sem
banni að klippa flestallar tegund-
ir allan ársins hring. Þó sé jafnan
betra að klippa plönturnar þegar
þær eru enn í vetrardvala.
„Það er alltaf betra að klippa
áður en fer að blæða úr sárun-
um, en blæðingarnar byrja þegar
allt er komið af stað í trjánum.
En þetta fer annars allt eftir teg-
undum. Sumar þeirra þola vel að
vera klipptar á sumrin en aðrar
ekki, þannig að það er ekki hægt
að nefna einhvern einn tíma sem
er best til þess fallinn að klippa.“
Ingvar segir að garðyrkjufyr-
irtæki séu enn á fullu að klippa í
görðum fólks og verði að því um
það bil fram í miðjan maí, þegar
þau snúi sér að öðrum verkefn-
um.
Spurður segir hann að í raun sé
ekki hægt að ræða um að tré séu
klippt of snemma árs.
„Nei, það er ekki svo. Eins og
staðan er núna hjá okkur erum
við að klára síðustu kúnnana í
trjáklippingum og förum svo út í
hellulagnir, en yfirleitt eru garð-
yrkjumenn að byrja klippingar
jafnvel strax í janúar. Nú hefur
verið svo mikill snjór að þessi
vinna fór seinna af stað, því að
það er erfitt að klippa þegar snjór
er á trjám.“
thorgils@frettabladid.is
Ennþá er óhætt að
klippa trjáplöntur
Sérfræðingar segja ekki
vera of langt liðið á sumar
til að klippa garðplöntur.
Kuldatíð hefur tafið fyrir
plöntuvexti í ár. Hægt er að
klippa tré allan ársins hring
en betra er að klippa áður
en vöxtur er kominn of vel
á veg.
VORVERKIN Þrátt fyrir að komið sé undir lok apríl er enn ekki of seint að klippa trén í
garðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Á vef Garðaþjónustu ÁJ ehf. má finna nokkra fróðleiksmola um klippingar á
trjám.
Þar segir meðal annars að fyrir utan þá staðreynd að best sé að klippa
garða á meðan plönturnar liggja í dvala, auðveldi það líka að átta sig á
vaxtarlagi plöntunnar.
Þá séu sumarklippingar að færast í vöxt en þær séu nokkurs konar við-
haldsklippingar til að viðhalda þeirri lögun sem klippt var eftir um veturinn,
sérstaklega eigi þetta við um limgerði.
Varðandi skrautrunna, líkt og birkikvist, er ekki mælt með að klippa þá á
vorin, heldur frekar síðsumars, eða að hausti.
Loks má geta þess að mælst er til þess að rósarunnar séu einungis snyrtir
af kunnáttufólki, enda hafi verklag við klippingu rósa mikil áhrif á blómgun
þeirra.
Heimild: gardathjonusta.is
Fróðleiksmolar um trjáklippingu
Ef fríska þarf upp á ferðatöskurnar fyrir sumarfríið
er gott að skella smá matarsóda í töskuna og hafa
hann í henni í einn til tvo daga.
Síðan er taskan opnuð, ryksuguð vel og
vandlega og allur matarsódinn fjarlægður.
Ef geyma á ferðatöskur eða aðrar töskur í langan
tíma á milli notkunar er gott að setja smá matar-
sóda í töskuna til að koma í veg fyrir vonda lykt.
GÓÐ HÚSRÁÐ
Vond lykt í töskunum
Icepark, sem rekur langtíma-
bílastæði við Keflavíkurflugvöll,
hækkaði verð á 10 daga stæðum
um 45 prósent 15. apríl síðastlið-
inn. Verðið var áður 5.010 krónur
en var hækkað upp í 7.400 krónur.
Félag íslenskra bifreiðaeig-
enda (FÍB) sendi frá sér tilkynn-
ingu í gær þar sem hækkanirnar
eru sagðar ósvífnar. Þá er bent
á að tekjur af bílastæðagjöldum
skiptist á milli flugstöðvarinnar
og Icepark. Engin önnur bílastæði
eru í boði við flugstöðina.
Hækkun gjaldskrár á bílastæð-
um er um 27 prósent fyrstu sjö
dagana, en nærri 50 prósentum
frá degi átta og að degi ellefu sagði
Hjördór Guðmundsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Isavia, sem rekur
Keflavíkurflugvöll, í samtali við
Vísi í gær. Gjaldskráin hafi ekki
verið hækkuð frá árinu 2006.
Hjördís sagði að þegar gjaldið
hafi verið ákveðið hafi verið miðað
við rannsóknir sem sýni að flestir
leggi bílum í stæðin í viku til tíu
daga. Þá hafi verið tekið mið af því
hvað kosti að leggja bíl í Reykja-
vík.
Til samanburðar má geta þess
að 10 daga bílastæði við Kastrup-
flugvöll í Danmörku, kostar frá
tæpum 10.000 krónum upp í 43.000
krónur, sé pantað á netinu. - sv
Bílastæði við Keflavíkurflugvöll hækka verulega:
FÍB segir hækkun
hjá Icepark ósvífna
„Bestu kaupin mín voru þegar ég
ákvað að lifa á súpu í tvo mánuði og
varði mínum fyrstu og einu ritlaunum
í að kaupa Macintosh SE-borðtölvu
árið 1989,“ segir Birgitta Jónsdóttir,
þingkona Hreyfingarinnar.
Sama ár kom út fyrsta ljóðabók
Birgittu, Ljósdinglar. Hún var þegar
byrjuð að vinna að annarri bók og taldi
heillavænlegt að skipta ritvél sinni út
fyrir öllu nýtískulegra vinnutæki.
„Þetta var vinnutæki til fram-
búðar sem sparaði mér marga
klukkutíma,“ segir Birgitta sposk
og rifjar upp að tölvan hafi enst
mjög lengi.
Birgitta gaf móður sinni
tölvuna í kringum 1995. Hún
fékk græjuna til baka
nokkrum árum síðar en
þá virkuðu engin forrit
lengur. Tölvan varð því
að stofustássi á heimili
Birgittu. „Tölvuskjárinn var jafn stór og
póstkort og á hann setti ég litað kort,“
segir hún en bætir við að tölvan hafi
endað í Sorpu.
Verstu kaupin segir Birgitta vera raf-
magnsbor sem sölumaður prangaði inn
á hana fyrir fjórum árum. „Ég skil ekki
af hverju ég keypti hann því ég bora
mjög lítið nema einstaka skrúfur fyrir
málverk. Þegar einhver braust inn í
geymsluna mína var jólagjöfum
til barnanna stolið ásamt born-
um. Ég sakna borsins ekki og
vona að þjófurinn njóti hans,“
segir Birgitta og bætir við að
eftir þetta hafi hún farið til
nágrannanna og fengið bora
lánaða hjá þeim. „Þetta
er alltaf tækifæri til að
hitta þá,“ segir hún
og mælir með því að
fólk gefi þá hluti sem
það hættir að nota.
NEYTANDINN: BIRGITTA JÓNSDÓTTIR ÞINGKONA
Notar gamla tölvu sem stofustáss
KEFLAVÍKURVÖLLUR FÍB segir hækkun
Icepark ósvífna í ljósi þess að ferða-
mannatíð sé að hefjast. MYND/VÍKURFRÉTTIR
1.400 KRÓNUR kostar ferð með almenningsvagni milli Reykjavíkur og Selfoss. Verðið hefur staðið í stað í áratug. Snemma árs 2001 kostaði farið 780 krónur, en sú tala
uppreiknuð miðað við vísitölu neysluverðs endar í 1.414 krónum.
Dalahringur er nýr og bragðmildur
hvítmygluostur. Lögun ostsins gerir það
að verkum að hann þroskast hraðar en
aðrir sambærilegir mygluostar á
markaðnum. Gríptu með þér
Dalahring í næstu verslun.