Fréttablaðið - 28.04.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 28.04.2011, Blaðsíða 4
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR4 GENGIÐ 27.04.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,6112 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 111,97 112,51 185,48 186,38 164,16 165,08 22,015 22,143 21,080 21,204 18,385 18,493 1,3621 1,3701 180,34 181,42 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Óli Tynes fréttamaður vill koma eftir- farandi á framfæri: „Í grein um Sól- heima í Fréttablaðinu 20. apríl sagði ég að vegna fjárskorts hefði þurft að segja upp hjúkrunarfræðingi, iðju- þjálfa og öryggisfulltrúa/umsjón með byggðahverfi. Þetta er rangt. Fólkið hætti sjálft, hvert af sínum ástæðum. Hins vegar var ekki endurráðið í þessi störf vegna fjárskorts. Vandi Sólheima er sá sami, en ég biðst velvirðingar á þessum mistökum.“ ÁRÉTTING Aumir og stífir vöðvar? Voltaren Gel® (Díklófenaktvíetýlamín 11,6 mg/g) er notað sem staðbundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum. Lyfið má ekki bera á skrámur, opin sár eða á exem, varist snertingu við augu og slímhúðir, notist eingöngu útvortis og má aldrei taka inn. Þegar lyfið er notað án ávísunar læknis skal hafa samband við lækni ef einkenni batna ekki eða versna innan viku. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða lyfjafræðings áður en lyfið er notað, þó skal það ekki notað á síðasta þriðjungi meðgöngu. Voltaren Gel® er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Lítil hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Verkjastillandi og bólgueyðandi við verkjum í mjóbaki, öxlum og vöðvum Nýtt lok! Auðvelt að opn a VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 21° 19° 23° 15° 21° 17° 14° 14° 21° 15° 23° 22° 34° 16° 15° 12° 12°Á MORGUN 3-8 m/s Hvassara SV-til. LAUGARDAGUR Fremur hægur vindur. 8 7 5 9 8 8 8 7 6 7 4 14 16 10 9 11 11 7 6 10 18 11 9 4 10 10 7 7 5 6 13 10 MILT Í VEÐRI Áfram verður held- ur vætusamt S- og V-til á landinu en horfur á blíðskap- arveðri norðaustan til. Þar má búast við allt að 15°C hita á morgun og laug- ardaginn. Það lægir strax í kvöld og útlit er fyrir hæglætis- veður næstu daga. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður STJÓRNSÝSLA Þingmaður Suðurkjör- dæmis segist efast um að nokkurn tíma hafi staðið til að flytja starf- semi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja og efast um heilindi Ögmundar Jónassonar innanrík- isráðherra í málinu. Hugmyndum um flutning Gæsl- unnar hefur verið skotið á frest um óákveðinn tíma eftir að niður- staða hagkvæmnimats, sem gert var fyrir innanríkisráðuneytið, leiddi í ljós að rekstrarkostnaður Gæslunnar gæti aukist um tæpar 700 milljónir á ári við flutningana. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks úr Suðurkjördæmi, segir í samtali við Fréttablaðið að ef flutningur verði sleginn af, sé það vanvirðing við íbúa svæðisins. „Það eru sex mánuðir liðnir frá fundinum í Reykjanesbæ þar sem ríkisstjórnin kynnti aðgerð- ir fyrir Suðurnesin og þetta var helsta trompið. Ég held að það hafi aldrei staðið til af hendi Ögmund- ar Jónassonar að flytja Gæsluna. Mér sýnist þetta hafa verið yfir- varp hjá stjórninni til að kaupa sér tíma í áframhaldandi aðgerð- arleysi.“ Í samtali við Fréttablaðið segir Ögmundur að stjórnvöld hafi unnið málið af heilindum. „Við hefðum ekki ráðist í þessa hagkvæmnikönnun ef hún hefði verið einhver sýndarmennska,“ segir Ögmundur og leggur áherslu á að flutningur sé ekki útilokaður. „Hvort sem mönnum líkar betur eða verr er það staðreynd að flutn- ingur mun hafa í för með sér umtalsvert aukinn rekstrarkostn- að, en við erum ekki búin að slá út af borðinu þessar hugmyndir til lengri tíma litið. Heildarhagsmun- ir kunna að hníga í þá átt að flytja Gæsluna, en það gerum við ekki nú þegar ríkissjóður er galtómur.“ Í matinu kemur fram að stærst- ur hluti aukins rekstrarkostnaðar liggi í nauðsynlegum breytingum á starfsmannahaldi. Vegna staðsetn- ingar muni Gæslan þurfa að fjölga starfsfólki og einnig breyta vakta- fyrirkomulagi þannig að starfsfólk verði á viðveruvakt en ekki bak- vakt eins og nú er. Þá er þess getið að breytingar á Njarðvíkurhöfn, þar sem varðskip Gæslunnar myndu vera staðsett, myndu kosta um 250 milljónir og breytingar á húsnæði við Kefla- víkurflugvöll yrðu líka kostnaðar- samar. Í matinu kemur einnig fram að ýmsir vankantar séu á núverandi aðstöðu Gæslunnar, og þó að hún sé viðunandi til skemmri tíma litið sé úrbóta þörf þegar horft er til lengri tíma. Í samtali við Fréttablaðið sagð- ist Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, ekki hafa kynnt sér niðurstöðu mats- ins og gæti því ekki tjáð sig um efnisatriði hennar. „En það eru mikil vonbrigði að heyra að þetta sé niðurstað- an í máli sem menn báru miklar væntingar til.“ thorgils@frettabladid.is Efast um vilja Ögmundar til að flytja Landhelgisgæsluna Þingmaður Suðurkjördæmis segist efast um vilja innanríkisráðherra til að flytja starfsemi Landhelgisgæsl- unnar til Reykjanesbæjar. Ráðherra segist hafa unnið af heilindum, en kostnaður við flutninga sé of mikill. ÖGMUNDUR JÓNASSON RAGNHEIÐUR ELÍN ÁRNADÓTTIR FÉLAGSMÁL Kosið verður á milli tveggja frambjóðenda í embætti formanns Blaðamannafélags Íslands á aðalfundi félagsins í kvöld. Sitjandi formaður, Hjálmar Jónsson, gefur kost á sér til end- urkjörs. Hann var kjörinn for- maður í fyrra eftir harða kosn- ingabaráttu sem lauk með því að sitjandi formaður, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, dró framboð sitt til baka á síðustu stundu. Ingimar Karl Helgason, sem meðal annars hefur verið frétta- maður á Stöð 2 og RÚV, bauð sig fram gegn Hjálmari fyrir viku. Kjörfundur verður opinn frá hádegi í dag, en einnig verður kosið á fundinum. - sh Hjálmar og Ingimar berjast: Tveir í kjöri til formanns BÍ HJÁLMAR JÓNSSON INGIMAR KARL HELGASON BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti hvetur Sádi- Arabíu og önnur olíuframleiðslu- ríki til þess að herða olíufram- leiðslu sína vegna þeirrar óvissu og samdráttar í framleiðslu sem orðið hefur vegna Líbíustríðsins og ólg- unnar víðar í ríkjum Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum undanfarið. „Við höfum rætt við helstu olíu- framleiðendurna, eins og Sádi- Araba, til að gera þeim grein fyrir að það verði þeim ekki hagstætt ef efnahagslíf okkar verður valt á fót- unum vegna hás olíuverðs,“ sagði Obama í sjónvarpsviðtali í gær. Olíuframleiðsan í Líbíu var ein- ungis tvö prósent heimsframleiðsl- unnar, þannig að ekki þarf að auka framleiðsluna mikið annars staðar til að vega upp á móti framleiðslu- minnkuninni. Þá ítrekaði Obama á þriðjudag áform sín um að afnema skattfríðindi bandarískra olíufyrir- tækja, en viðurkenndi jafnframt að varla muni sú ráðstöfun lækka elds- neytisverð til neytenda. - gb Bandaríkjaforseti vill afnema skattfríðindi bandarískra olíufyrirtækja: Hvetur til meiri olíuframleiðslu OBAMA Barack Obama hélt sjónvarps- ræðu í gær þar sem hann ítrekaði áform sín um að afnema skattfríðindi olíufyrirtækja. REYKJAVÍK Til stendur að ráða 55 starfsmenn til leikskóla Reykja- víkurborgar til að mæta stórum árgangi leikskólabarna sem inn- ritast í skólana í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Meðal þeirra starfa sem borgin mun auglýsa eru fimmtán störf leikskólastjóra sem og störf aðstoðarleikskólastjóra. Fjár- framlög til Leikskólasviðs voru í ársbyrjun aukin um 500 milljónir til að skapa leikskólapláss fyrir árganginn stóra. Reykjavíkurborg auglýsir: 55 störf í boði á leikskólunum N O R D IC PH O TO S/ A FP FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó SA FER HVERGI Í BILI Starfsemi Landhelgis- gæslunnar verður ekki flutt til Reykjanesbæjar á næstunni eftir að hag- kvæmnimat leiddi í ljós aukinn rekstrarkostnað. Þingmaður svæðisins er ósáttur við niðurstöðuna, en ráðherra segir að flutningur sé ekki sleginn af borðinu til lengri tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.