Fréttablaðið - 28.04.2011, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2011
ÆTLAR ÞÚ
Í HÁSKÓLA Í HAUST?
Umsóknarfrestur um grunnnám á
háskólaárinu 2011–2012 er til 5. júní.
Móttaka rafrænna umsókna er
hafin á www.hi.is
YFIR 400 NÁMSLEIÐIR Í BOÐI
Í HÁSKÓLA ÍSLANDS
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
11
11
06
NÁMIÐ Á ÓTRÚLEGA VEL VIÐ MIG
SIGRÍÐUR REGÍNA SIGUR
ÞÓRSDÓTTIR, BANEMI Í
KVIKMYNDAFRÆÐI
Hvers vegna valdirðu HÍ
og þitt nám?
„Ég hef mikinn áhuga á
öllu sem er á Hugvísinda-
sviði og mér finnst kvik-
myndafræðin sameina
ólíkar greinar sviðsins.
Það kemur allt inn í kvik-
myndir. Ég ákvað að prófa
kvikmyndafræðina og
mér finnst hún ótrúlega
skemmtileg.“
Hvað er það besta við námið?
„Þetta er svo skemmtilegt efni sem ég er að lesa
og ég finn að námið á ótrúlega vel við mig. Mér
finnst gaman að lesa um kenningarnar og fræðin
á bak við greinina. Þetta vekur svo mikinn áhuga
og þá gengur manni betur.“
Hvernig hyggstu nýta námið?
„Ég ætla að taka tvær BA-gráður og ég er að
reyna að ákveða hvaða gráðu ég tek með kvik-
myndafræðinni. Það er erfitt að segja hvað ég
geri nákvæmlega við kvikmyndafræði en ég
hugsa að úr því að ég get lært það í Háskólanum
hljóti ég að geta gert eitthvað við það.“
Góð menntun í HÍ og gott
umhverfi til menntunar
FJÖLBREYTT NÁM OG NÝTIST VEL
STEFÁN ÁRNI JÓNSSON, BS
NEMI Í SÁLFRÆÐI
Hvers vegna valdirðu HÍ
og þitt nám?
„Ég valdi HÍ vegna þess
að ég tel að það sé besti
kosturinn til þess að fá
góða menntun og gott um-
hverfi til menntunar. Ég
valdi sálfræði því ég hef
áhuga á henni. Þetta er
fjölbreytt nám og ég tel að
það muni nýtast mér vel
hvað sem ég geri í fram-
tíðinni.“
Hvað er það besta við námið?
„Í sálfræðinni er sterkur aðferðafræðileg-
ur grunnur og sterkur grunnur í rannsóknum.
Það er líka góður almennur grunnur til þess að
byggja á.“
Hvernig hyggstu nýta námið?
„Ég held að námið nýtist mér á ólíkan hátt, allt
eftir því hvað ég ákveð að læra frekar. Ef ég
ákveð að bæta við viðskiptafræði og fara þá í
stjórnun eða í vinnusálfræði, klíníska sálfræði,
markaðsfræði eða auglýsingasálfræði þá sé ég
fyrir mér að þetta verði mjög góður grunnur.“
ÁKVEÐINN SVEIGJANLEIKI Í NÁMINU
UNNUR ÝR KONRÁÐSDÓTTIR, BSNEMI Í VIÐSKIPTAFRÆÐI
Hvers vegna valdirðu HÍ og þitt nám?
„Ég eignaðist barn og hafði ekki hugmynd um hvað mig langaði að
læra. Ég hugsaði að það væri sniðugt að fara í viðskiptafræði því
námið gæti fært mér vinnu með hentugum vinnutíma með tilliti til
fjölskyldunnar. Ég valdi HÍ vegna þess að mér leist mjög vel á við-
skiptafræðina innan skólans.“
Hvað er það besta við námið?
„Það er ákveðinn sveigjanleiki í náminu. Ég tók mér hlé frá námi
vegna barneigna en næ samt að klára á réttum tíma vegna þess
að ég tók námskeið yfir sumartímann. Mér fannst því þægilegt að
geta stillt námið eftir mínum högum.“
Hvernig hyggstu nýta námið?
„Ég er þegar búin að sækja um meistaranám og stefni á annað-
hvort mannauðsstjórnun eða opinbera stjórnsýslu með áherslu á
mannauðsstjórnun. Það kemur í ljós hvar ég fæ inni.“
ALDREI NEITT ANNAÐ EN HÍ KOM TIL GREINA
SIGURÐUR THORLACIUS,
BSNEMI Í UMHVERFIS OG
BYGGINGAVERKFRÆÐI
Hvers vegna valdirðu HÍ
og þitt nám?
„Það var aldrei neitt
annað en HÍ sem kom til
greina, fannst mér, og ég
valdi þetta nám því ég hef
áhuga á umhverfismálum
og ég held að ég geti gert
eitthvað í því ef ég klára
meistaranám í umhverfis-
verkfræði.“
Hvað er það besta við námið?
„Það er allt frábært við það. Ég hef mikinn áhuga
á þessu og finnst gaman að læra flókna stærð-
fræði og eðlisfræði. Þetta er mjög spennandi og
mér hefur gengið vel.“
Hvernig hyggstu nýta námið?
„Ég er að læra fullkominn grunn fyrir alls kyns
nám og ég held ég verði betur undirbúinn fyrir
flest sem gæti vakið áhuga minn. Námið mun
líka nýtast í atvinnulífinu. Ef ég vildi t.d. starfa
á verkfræðistofu þá nýtist reynslan og námið hér
mjög vel og það sama má segja um annan starfs-
vettvang.“
NÁMIÐ ER SKEMMTILEGT
GUÐRÚN DÓRA ÞÓRUDÓTTIR,
BANEMI Í ÞROSKAÞJÁLFUN
Hvers vegna valdirðu HÍ
og þitt nám?
„Mamma mín er þroska-
þjálfi og svo hef ég verið
að vinna við það síðastliðin
sjö ár. Það lá því bein braut
í námið.“
Hvað er það besta við
námið?
„Námið er skemmtilegt og
maður sér mjög vel hvern-
ig maður getur notað það
í framtíðinni. Ég reikna með því að vinna áfram
sem þroskaþjálfi.“
Hvernig hyggstu nýta námið?
„Ég hugsa að ég vinni í ár að loknu námi og svo
reikna ég með að ég skelli mér í meistaranám.“