Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.04.2011, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 28.04.2011, Qupperneq 31
** * * * * * * * * * * * ** FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2011 Norðurslóðafræði, æskulýðsfræði og byggðafræði eru meðal áherslusviða í nýrri námsgráðu við Háskólann á Akureyri. Þar verður líka tekin upp fjarkennsla í öllum greinum félagsvísindadeildar í haust. „Við tökum upp tvenns konar nýj- ungar með haustinu svo hér verða nokkur tímamót,“ byrjar Birgir Guðmundsson, formaður félags- vísindadeildar Háskólans á Akur- eyri, sitt spjall. „Í fyrsta lagi verð- ur fjarkennsla í boði í öllum okkar greinum. Menn geta þá verið stað- settir hvar sem er í heiminum en þurfa þó að koma til okkar í náms- lotur tvisvar á önn. Fjarkennslan er í fjölmiðlafræði, sálfræði, nútíma- fræði og í félagsvísindum.“ Félagsvísindum? hváir blaða- maður. „Já, það er hin nýjungin sem er á döfinni. Sérstök námsgráða sem heitir BA í félagsvísindum og þar bjóðum við upp á sérstök áherslu- svið. Í fyrsta lagi getur fólk auð- vitað lært félagsvísindi til 180 ECTS-eininga og er þá komið með góðan alhliða grunn í félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði og aðferðafræði. En auk þess er hægt að taka félagsvísindagráðuna með áherslu á tiltekin svið. Þessi svið eru byggðafræði, ferðamálafræði, kynjafræði, norðurslóðafræði og æskulýðsfræði.“ Birgir segir BA-námið í félags- vísindunum byggt þannig upp í grófum dráttum að almennur félagsvísindagrunnur samsvari um tveggja ára námi, eða 120 ECTS-einingum. Það sem svari til þriðja námsársins geti nemendur svo valið sem námskeið og fög á áhugasviði hvers og eins. „Þarna er verið að svara tvenns konar eft- irspurn. Í fyrsta lagi er fólk ekki alltaf strax í upphafi búið að finna út hvar áhuginn liggur og svo eru þetta áherslusvið sem ekki eru víða í boði.“ Á Akureyri eru stofnanir sem Birgir segir að muni styðja við hinar nýju námsgreinar eftir því sem þörf er á. „Við erum með sterkt bakland á öllum þessum svið- um,“ segir hann. „Rannsóknamið- stöð Háskólans á Akureyri hefur til dæmis verið mikið í byggða- rannsóknum, þannig að verkefni í byggðafræði yrðu unnin í samráði við fólk þar sem gjörþekkir þann málaflokk. Eins eru Ferðamálaset- ur og Jafnréttisstofa hér á háskóla- svæðinu. Við skólann eru líka kenn- arar sem hafa staðið í fararbroddi í æskulýðsrannsóknum og síðast en ekki síst vil ég nefna norður- slóðafræðin, en þau mál eru mikið í umræðunni vegna minnkandi íss á norðurslóðum. Hér höfum við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og kennarar við háskólann eru jafn- framt sérfræðingar við þá stofnun. Fyrst og fremst er þó um almenna félagsvísindagráðu að ræða og það gildir í öllum fögum á félagsvís- indasviðinu að við leggjum áherslu á góðan grunn.“ Leggjum áherslu á góðan grunn „Við erum með sterkt bakland á öllum þeim sviðum sem við bjóðum upp á sem áhugasvið í félagsvísindum,“ segir deildarformaðurinn Birgir Guðmundsson. MYND/HEIDA.IS Ný námsbraut í náttúru- og auðlindafræðum verður til við auðlindadeild Háskólans á Akureyri í haust en sú deild er á viðskipta- og raunvísindasviði skól- ans og Hjörleifur Einarsson er formaður hennar. „Náttúru- og auðlindafræði er hugsað sem tveggja ára nám sem leiði til diplómaskírteinis,“ segir Hjörleifur Einarsson, deildarformaður auð- lindadeildar, og telur þessa nýju braut kjörna fyrir þá mörgu sem vilja læra náttúruvísindi en hafa að öðru leyti ekki gert upp hug sinn um hvert skuli stefna að loknu stúdentsprófi. „Við gerum þetta í samvinnu við Háskólann á Hólum þannig að þeir sem innritast í náttúru-og auðlindafræðinámið geta lokið BS-námi í fiskeldisfræði frá Hólum en þeir geta einnig klárað hjá okkur, annað hvort á líftækni- eða sjávarútvegsbraut. Svo eigum við líka í viðræð- um við aðra ríkisháskóla um frekari samvinnu um þróun námsins.“ Hjörleifur segir auðlindadeildina hafa þróast á sínum tíma út úr sjávarútvegsdeildinni. „Markmið- ið var að bjóða upp á aukna möguleika fyrir nem- endur og horfa á aðrar auðlindir en auðlindir sjáv- ar. Við endurskoðun á námsframboði auðlindadeild- ar um síðustu áramót var ákveðið að halda áfram með sjávarútvegsfræði og líftækni og bjóða upp á diplómanámið. Við viljum í samstarfi við aðra auka við okkar námsframboð með áherslu á matvæli, um- hverfismál, norðurslóðir og sjálfbæra nýtingu auð- linda. Einnig verður rík áhersla á rannsóknatengt framhaldsnám, bæði meistara- og doktorsnám, segir Hjörleifur að lokum. Sjálfbær nýting auðlinda „Við viljum í samstarfi við aðra auka við okkar námsframboð,“ segir Hjörleifur. MYND/HEIDA.IS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.