Fréttablaðið - 28.04.2011, Page 42
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR26
Ástkær móðir okkar,
Þórunn Guðmundsdóttir
áður Hólavegi 15, Siglufirði,
sem lést á dvalarheimilinu Hvammi Húsavík 14. apríl,
verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
30. apríl kl. 14.00.
Albert G. Einarsson
Sigríður Þ. Einarsdóttir
og fjölskyldur.
Yngvi Rafn Baldvinsson
fyrrum íþróttafulltrúi,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði,
lést að morgni sumardagsins fyrsta á St. Jósefsspítala
í Hafnarfirði. Jarðarförin fer fram frá Víðistaðakirkju
föstudaginn 29. apríl kl. 13.
Friðrik E. Yngvason Theodóra Gunnarsdóttir
Björgvin Yngvason Birna Hermannsdóttir
Stefán Yngvason Nína Leósdóttir
Yngvi Rafn Yngvason Alís Freygarðsdóttir
og fjölskyldur.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ragnar Pálsson
áður til heimilis að Hrísalundi 2a,
Akureyri,
lést 21. apríl sl. á Hornbrekku, dvalarheimili aldraðra
Ólafsfirði.
Regína Ragnarsdóttir
Erling Ragnarsson Dagbjört Sigrún Torfadóttir
Örn Ragnarsson Svanhvít Ingjaldsdóttir
Úlfar Ragnarsson
Stefán Ragnarsson
Börkur Ragnarsson
Jóhannes Stefánsson
Anna Ragnarsdóttir
Þröstur Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra
Þórhalls Einarssonar
frá Djúpalæk,
Helgamagrastræti 36, Akureyri,
sem lést 2. apríl sl. Minning hans er ljós í lífi okkar.
Jónína Þorsteinsdóttir
Þórdís G. Þórhallsdóttir Flosi Kristinsson
Arna H. Jónsdóttir Guðmundur V. Óskarsson
Sigurlaug Sigurðardóttir Ari Laxdal
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Dagný Ingimundardóttir
Hraunbúðum, áður Kirkjuvegi 72,
Vestmannaeyjum,
sem lést 16. apríl, verður jarðsungin frá Landakirkju
laugardaginn 30. apríl kl. 14. Blóm og kransar
afþakkaðir, en þeir sem vildu minnast hennar
láti líknarfélög njóta þess.
Helga Tómasdóttir
Geirrún Tómasdóttir
Sigurður Tómasson Guðrún Jakobsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir og tengdasonur,
Helgi Hannesson
Laxakvísl 17, Reykjavík,
varð bráðkvaddur að heimili sínu aðfaranótt páska-
dags. Útför Helga fer fram í Langholtskirkju 3. maí
og hefst athöfn kl. 13.
Ása Dröfn Björnsdóttir
Birgitta Rut Helgadóttir
Líf Helgadóttir
Darri Helgason
Magnea Kristbjörg Andrésdóttir Hannes Helgason
Margrét Guðný Hannesdóttir
Andrés R. Hannesson
Björn Kristjánsson Þuríður Stefánsdóttir
Vinafélag Gljúfrasteins
býður upp á göngu um
miðbæ Reykjavíkur í fylgd
Péturs Ármannssonar arki-
tekts á laugardag. Pétur mun
miðla fróðleik um ýmis hús
þar sem Halldór Laxness
hafði viðkomu um lengri eða
skemmri tíma á yngri árum.
Lesin verða örstutt textabrot
sem tengjast þessum tíma í
lífi hins unga manns. Sum
húsanna standa enn, önnur
eru horfin.
Gangan hefst við Lauga-
veg 32, fæðingarstað Hall-
dórs klukkan 11 og endar
við Vesturgötu 28, sem var
heimili hans á stríðsárun-
um.
Vinafélag Gljúfrasteins
var stofnað 23. apríl árið
2010 en tilgangur þess er
að veita Gljúfrasteini aðstoð
og stuðning og efla vitund
um arf Halldórs Laxness
og mikilvægi hans. Nánari
upplýsingar um gönguna og
viðkomustaði er að finna á
www.gljufrasteinn.is.
Í fótspor Laxness
Í FYLGD PÉTURS ÁRMANNSSON-
AR Gengið verður á milli húsa
þar sem Halldór hafði viðkomu á
yngri árum.
Í tilefni Græns apríls bjóða
Farfuglar öllum náttúru-
unnendum í gönguferð í
Valaból í dag. Lagt verð-
ur af stað frá bílaplani við
Kaldársel klukkan 18 og
reiknað er með að gangan
taki um tvo tíma.
Göngufólk taki með sér
hlýjan og skjólgóðan fatn-
að, en Farfuglar bjóða upp
á heitt kakó og kruðerí
þegar áð verður við Músar-
helli sem hefur verið áning-
ar- og gististaður Farfugla
og annars útivistarfólks í
yfir 70 ár.
Farfuglar vona að sem
flestir sjái sér fært að
koma og njóta náttúru-
paradísar við mörk höfuð-
borgarsvæðisins í góðum
félagsskap.
Nánari upplýsingar veitir
Ásta Kristín Þorsteinsdótt-
ir verkefnisstjóri í síma
868 0979 eða á netfanginu
astakristin@hostel.is.
Ganga, kakó og kruðerí í Valabóli
KALDÁRSEL Náttúruunnendur eru hvattir til að mæta við Kaldársel
klukkan 18 í dag og ganga með Farfuglum í vorinu í Valaból.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þrjátíu ár er frá stofnun
Samkórs Mýramanna. Af
því tilefni munu kórfélag-
ar og gestir þeirra efna til
árlegrar vorhátíðar í Lyng-
brekku á föstudagskvöld.
Samkórinn fær til sín
góða gesti. Átthagakór
Strandamanna syngur og
Ragnar Bjarnason tekur
lagið.
Stjórnandi Samkórs
Mýramanna er Jónína Erna
Arnardóttir. Kórformaður í
dag er Birgir Pálsson, einn
stofnfélaga kórsins og einn
fjögurra sem enn syngja
með kórnum af stofnend-
unum. Hinir þrír eru syst-
ir hans Steinunn Pálsdóttir,
Þorkell Guðbrandsson frá
Mel og Ólöf Guðmundsdóttir
frá Hundastapa. Frá þessu
er greint á skessuhorn.is
Samkór Mýra-
manna 30 ára
SAMKÓR MÝRAMANNAHeldur upp á 30 ára afmæli.
Árlegur fjölskyldudagur
verður haldinn í náttúru-
perlunni Gróttu laugardag-
inn 30. apríl, en á varptím-
anum, frá 1. maí til 1. júlí,
er ekki leyfilegt að fara út
í Gróttu. Gróttudagurinn
stendur frá 9.30 til 13, en þá
er hægt að komast fótgang-
andi út í eyju. Einnig verð-
ur björgunarsveitin Ársæll
á staðnum og ekur þeim
sem ekki treysta sér til
að ganga. Hægt verður að
kaupa kaffi, djús og rjóma-
vöfflur í Fræðasetrinu og í
Vitanum verða sýnd verk
nemenda Grunnskóla Sel-
tjarnarness. Þá mun Lalli
töframaður skemmta gest-
um klukkan 11.
Á Gróttudeginum gefst
tækifæri til að njóta ein-
stakrar náttúrufegurðar og
rannsaka lífríkið í fjörun-
um sunnan við Gróttu, Sel-
tjörn og Bakkavík sem eru
auðugar af lífi. Fuglalífið
á Seltjarnarnesi er einnig
afar fjölbreytt en þar hafa
sést yfir 100 fuglategundir.
Gott er hafa með sér poka
eða fötur til að tína skeljar
og skemmtilegheit í fjör-
unni.
Síðar um daginn kl. 15
verða tónleikar í Seltjarn-
arneskirkju og á Bókasafni
Seltjarnarness opnar Ómar
Óskarsson ljósmyndasýn-
inguna Í ríki fuglanna kl.
16.30.
Síðasti dagurinn í Gróttu í bili
GRÓTTA Gróttudagurinn verður haldinn á laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Strandamenn hafa efnt til
keppni um Hamingjulagið
2011. Það jafngildir þjóðhá-
tíðarlagi í þeirra héraði.
Lagið má ekki hafa heyrst
opinberlega áður. Ekki er
verra að textinn fjalli að ein-
hverju leyti um hamingjuna,
Hólmavík eða Hamingju-
daga, hina árlegu bæjarhá-
tíð Strandamanna, það er þó
alls ekki krafa.
Skila þarf lögum á geisla-
diski til Menningarmála-
nefndar í síðasta lagi föstu-
daginn 29. apríl, merkt
Hamingjudagar á Hólma-
vík – Lagasamkeppni 2011,
Höfðagata 3, 510 Hólmavík.
Keppnin sjálf verður svo
haldin klukkan 20 sunnu-
dagskvöldið 8. maí og þá
verður eflaust mikið stuð í
plássinu. -gun
Samkeppni um Hamingjulagið 2011
HÓLMAVÍK Hamingjulagið má gjarnan snúast um þennan fagra stað
við Steingrímsfjörð en það er þó ekki skilyrði. MYND/JÓN JÓNSSON