Fréttablaðið - 28.04.2011, Blaðsíða 50
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR34
bio@frettabladid.is
> I‘LL BE BACK
Þessu fleygu orð eru eignuð Arnold
Schwarzenegger úr Terminator. Og nú virð-
ist sitthvað benda til þess að Schwarzen-
egger ætli að snúa aftur í þetta frægasta
hlutverk sitt en bandar ískir
vefmiðlar voru uppfullir
af fréttum þess efnis í
gær. Ekkert hefur þó
verið staðfest.
Páfagauksmyndin Rio, þar sem
Jesse Eisenberg og Anne Hath-
away tala fyrir aðalpersónurn-
ar, er vinsælasta kvikmyndin á
Íslandi um þessar mundir sam-
kvæmt upplýsingum frá Smáís.
Þetta er hliðstætt því sem er að
gerast í hinni stóru Ameríku en
þar situr páfagaukurinn einnig
í efsta sæti. Myndin er frá sömu
framleiðendum og gerðu hinar
vinsælu Ísaldarkvikmyndir og
því er ekkert skrýtið að smáfólkið
skuli flykkjast í bíó með foreldrum
og forráðamönnum.
Fjölskyldumyndin Hopp hefur
einnig notið töluverðra vinsælda
og hefur komið sér vel fyrir í öðru
sæti. Fast á hæla hennar kemur
Arthur með ólíkindatólinu Russell
Brand og Óskarsverðlaunaleik-
konunni Helen Mirren í stærstu
hlutverkunum en í fjórða sæti er
hasarmyndin Hanna með Cate
Blanchett og Eric Bana. Fimmta
vinsælasta kvikmynd vikunnar
er síðan hryllingsmyndin Scream
4 úr smiðju Wes Craven.
Íslenska kvikmyndin Okkar
eigin Osló getur vel við unað því
alls hafa 23 þúsund séð myndina.
Heldur minni aðsókn er á Kurteist
fólk, en tæplega sex þúsund hafa
borgað sig inn á hana.
Páfagaukurinn Blu
flýgur hátt
Þrjár kvikmyndir eru frumsýndar
um helgina og þær gætu vart verið
ólíkari. Fyrsta ber að nefna dönsku
verðlaunamyndina Hævnen eftir
Susanne Bier en hún hlaut bæði
Golden Globe og Óskarsverðlaun
sem besta erlenda myndin. Hævnen
verður sýnd í Háskólabíói á vegum
Græna ljóssins en hún, líkt og flest-
ar myndir Bier, tekur á siðferðis-
legum atriðum eins og hefnd og
fyrirgefningu. Þá þykir hún nokk-
uð beitt ádeila á danskt þjóðfélag,
sem er ekki alveg eins slétt og fellt
og það gefur sig út fyrir að vera.
Stórmyndin Thor eða Þór með
Chris Hemsworth, Natalie Port-
man og Anthony Hopkins í helstu
hlutverkum verður frumsýnd í
Laugarásbíói. Þór er í myndinni
dæmdur til refsingar á jörðinni
fyrir kæruleysi og vanrækslu. Á
meðan tekur hinn lævísi Loki völd-
in í Ásgarði og að endingu neyðist
Þór til að kyngja stoltinu og bjarga
heimkynnum sínum.
Þriðja myndin er síðan Lincoln
Lawyer sem Sambíóin frumsýna.
Myndin skartar Matthew McCon-
aughey í kunnuglegu hlutverki
sleips lögfræðings með munninn
fyrir neðan nefið sem tekur að sér
mál glaumgosa en sá reynist vera
úlfur í sauðargæru. Í öðrum hlut-
verkum eru þau Ryan Phillippe,
Marisa Tomei og William H. Macy.
Danskt drama og þrumuguð
Sumardagurinn fyrsti rann
upp með öllu sínu hreti;
vindi og rigningu, eins
og hefð er fyrir. Dagur-
inn markaði einnig upphaf
tímabils sem hinn venju-
legi kvikmyndahúsagestur
hlakkar yfirleitt til: sumar-
smellatímans.
Á sumrin koma stórmyndirnar frá
kvikmyndaverunum í Hollywood.
Formúlukenndar og sneisafullar
af tæknibrellum, stjörnum hlaðn-
ar gamanmyndir eða framhalds-
myndir; sumarmyndirnar eru
kapítuli fyrir sig og gróði þeirra
hefur oft bjargað bókhaldinu hjá
skuldsettum framleiðslufyrir-
tækjum.
Sumarið í ár er engin undan-
tekning og þegar líða tekur á
næsta mánuð fara myndirnar að
skjóta upp kollinum ein af öðrum.
Ritstjóri imdb.com, Col Need-
ham, tók saman lista yfir þær
myndir sem hann ætlaði að fylgj-
ast sérstaklega með og þar kenn-
ir margra grasa. Athygli vekur
að hann nefnir ekki þriðju Trans-
formers-myndina eftir Michael
Bay, sem verður frumsýnd hér
á landi í júlí. Fyrsta myndin í
flokknum þótti vel heppnuð has-
armynd með eindæmum en númer
tvö, eins og svo oft áður, náði ekki
að fylgja þeirri velgengni eftir.
Transformers 3 er síður en svo
eina framhaldsmyndin þetta sum-
arið. Fyrst ber auðvitað að nefna
lokakaflann Harry Potter and
the Deathly Hallows. Ekki þarf
að hafa mörg orð um hana, þetta
er síðasta myndin um töfrastrák-
inn Harry og þar með lýkur tíu
ára samfelldri sigurgöngu þessa
ævintýris á hvíta tjaldinu. Næst
er það fjórða myndin um sjóræn-
ingjana á Karíbahafinu. Fram-
leiðsla hennar kom nokkuð á óvart
enda voru flestir sammála um að
þriðja myndin hefði verið meira en
nóg. Framleiðandinn Jerry Bruck-
heimer tók hins vegar þá ákvörð-
un að sparka Orlando Bloom og
Keiru Knightley frá borði og fá í
staðinn Penelope Cruz og miðað
Kveðjustund Harry og
geimveruslagur í vestrinu
Þeir Manni, Lúlli og Dýri eru sennilega
eitt ólíklegasta þríeyki sem til er: loð-
fíll, letidýr og sverðtígur. Þeir kynntust
fyrst þegar þeir björguðu litlu barni frá
blóðþyrstri hjörð Dýra og hafa síðan þá
haldið hópinn.
Myndirnar, sem eru orðnar þrjár
talsins, hafa notið mikilla vinsælda
og skilað gróða upp á 2 milljarða dala,
eða 225 milljarða íslenskra króna. Það
kemur því ekkert óskaplega á óvart að
ráðast eigi í gerð fjórðu myndarinnar,
en stefnt er að frumsýningu hennar
á næsta ári. Þeir Ray Romano, John
Leguizamo og Denis Leary verða sem
fyrr í sínum hlutverkum og Queen Lati-
fah snýr að sjálfsögðu aftur í hlutverk
Elínar.
Og nú hefur verið tilkynnt að
Jennifer Lopez muni bætast í þenn-
an fríða og föngulega hóp þegar
hersingin verður vitni að myndun
meginlandsins (en þremenning-
arnir hafa áður upplifað ísöld,
bráðnun jökulsins og risaeðlu-
skeiðið). Lopez mun ljá Shiru,
þokkafullri sverðtígurs ynju,
rödd sína sem fangar hið ann-
ars kalda hjarta Dýra.
Þetta er ekki hið eina sem
áhorfendur mega eiga von á
frá Ísaldarhópnum, því búið
er að skipuleggja sérstakan
jólaþátt fyrir sjónvarp og
væntanlegur er tölvuleikur
fyrir síma.
Ísaldarþríeykið snýr aftur
GÓÐIR FÉLAGAR Þeir Manni, Lúlli
og Dýri snúa aftur í fjórðu mynd-
inni, þar sem þeir fylgjast með
myndun meginlandsins. Jennifer
Lopez bætist í hópinn sem þokka-
full sverðtígursynja.
HASAR AF BESTU GERÐ Kvikmyndin Þór
um samnefndan þrumuguð hefur fengið
prýðilega dóma og þykir velheppnuð
hasarmynd. Danska verðlaunamyndin
Hævnen eftir Susanne Bier ætti einnig
að falla mörgum vel í geð.
við þær stiklur sem hafa birst
á netinu gæti sú ákvörðun hafa
bjargað þessum annars ágæta sjó-
ræningjabálki.
Col Needham spáir tveimur
„hefðbundnum“ hasarmyndum
miklum frama í miðasölu sum-
arsins. Annars vegar Cowboys &
Aliens eftir leikstjóra Iron Man
og hins vegar The Green Lantern
með Ryan Reynolds í aðalhlut-
verki. Kvikmyndaáhugamenn hafa
lengi beðið spenntir eftir fyrr-
nefndu myndinni sem segir frá
því, eins og nafnið gefur kannski
til kynna, þegar geimverur láta á
sér kræla í villta vestrinu. Dani-
el Craig, Harrison Ford og Sam
Rockwell, ásamt þokkagyðjunni
Oliviu Wilde, heyja grimmilega
baráttu fyrir lífi jarðarbúa með
sexhleypum. The Green Lantern
er eftir leikstjóra hinnar frábæru
Bond-myndar Casino Royale,
Martin Campbell, og skartar
auk þess Gossip Girl-stjörnunni
Blake Lively í aðalkvenhlutverk-
inu. Super 8 er önnur kvikmynd
sem fastlega má gera ráð fyrir að
blandi sér í baráttuna um miðana
en þar leiða saman hesta sína J. J.
Abrams og Steven Spielberg.
Sumargamanmyndirnar eru
alltaf vinsælar og gefa stundum
hasarmyndunum langt nef þegar
þær skríða upp á topp. Hangover
II gæti þess vegna skotið öllum
dýru tæknibrellutröllunum ref
fyrir rass en að þessu sinni leitar
hin heilaga þrenning uppi vand-
ræði í Bangkok. Larry Crowne er
að mati Col Needham einnig líkleg
til vinsælda en þar fá áhorfendur
að sjá Tom Hanks og Juliu Roberts
saman á hvíta tjaldinu. Og það eitt
og sér hljómar mjög söluvænlega.
Að endingu er það Friends with
Benefits með Milu Kunis og Just-
in Timberlake í aðalhlutverkum.
freyrgigja@frettabladid.is
GLEÐILEGT SUMAR Hollywood-
kvikmyndaverin bjóða upp á miklu veislu í sumar.
Harry Potter kveður stóra sviðið, Daniel Craig berst
við geimverur í villta vestrinu og Jack Sparrow snýr
aftur með Penelope Cruz upp á arminn. Ekki má heldur
gleyma hinni heilögu þrenningu í Hangover-genginu sem
málar Bangkok rauða svo eftir því er tekið.
EKKERT LÁGFLUG Páfagaukurinn Blu er vinsælastur allra á Íslandi og í Ameríku. Fjöl-
skyldumyndin Hopp, gamanmyndin Arthur, hasarmyndin Hanna og hryllingsmyndin
Scream 4 eru allar á topp fimm samkvæmt upplýsingum frá Smáís. F13270411 RIO
TVEGGJA TÍMA
HLÁTURSKAST...
MEÐ HLÉI
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
„Mjög vel heppnaður farsi, hraður
og ótrúlega fyndinn“ – IÞ, Mbl