Fréttablaðið - 28.04.2011, Side 58

Fréttablaðið - 28.04.2011, Side 58
28. apríl 2011 FIMMTUDAGUR42 golfogveidi@frettabladid.is „Ég fékk golfsett í fertugsafmælis- gjöf og það má eiginlega segja að það sé upphafið að því að ég fór að stunda þessa íþrótt. Að vísu drógu félagar mínir mig á völlinn sumar- ið áður og þá náði ég að fara eina par þrjú holu og það sem meira er þá var það blint innáhögg. Það voru strákar sem sátu í kringum holuna og þeir klöppuðu fyrir mér enda var ég í fuglafæri,“ segir Lárus hreykinn af fyrstu kynnum sínum af golfíþróttinni. Stuðningur strák- anna og þetta fína innáhögg ýtti undir áhugann hjá lögfræðingnum. Lárus hefur spilað golf í um níu ár. Hann segist reyna að vera dug- legur að spila þó ekki gefist alltaf tími til þess. En hvað er það sem heillar hann við íþróttina? „Maður fær fína hreyfingu út úr þessu og ákveðna spennu. Svo er þetta mjög erfið íþrótt og það er mikil áskorun að ná árangri í henni,“ segir hann. Lárus fer reglulega til heitari landa til að sveifla kylfunni og var staddur í Alicante þegar Frétta- blaðið náði tali af honum. „Árangurinn hjá mér á vellinum er því miður undir væntingum. Forgjöfin er núna í 13,7 þannig að þetta er þó aðeins að koma. Það er hins vegar galli hvað ég hef lítinn tíma því þetta er með því skemmti- legra sem ég geri,“ segir Lárus. Hann hefur verið viðloðandi þó nokkrar íþróttir og er varafor- seti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. „Ég tel mig ennþá vera í einhverju sem líkist fótbolta, þótt það megi deila um það, en ég spila tvisvar í viku,“ segir hann hlæj- andi, „ef bakið er ekki að hrella mig.“ Lárus spilar meðal annars reglu- lega golf með Ellerti B. Schram, Stefáni Konráðssyni og Erni Andr- éssyni. Þeir félagar hafa gjarnan farið í þriggja til fjögurra daga ferðir til annarra landa, aðallega Skotlands. „Þessar ferðir hafa yfirleitt verið til að starta sumrinu og þá spilum við 36 holur á dag.“ Lárus hefur einnig spilað golf með kunnáttumönnum í íþróttinni, til dæmis Colin Montgomerie á Lexus- móti, á einum af uppáhaldsgolfvöll- um sínum, Turnberry í Skotlandi. Lárus fór eitt sinn holu í höggi á 2. brautinni á golfvelli Garða- bæjar og Kópavogs en sá því miður ekki þegar kúlan fór ofan í holuna. „Það var mjög gaman að fara holu í höggi en því miður náði ég ekki að njóta þess til botns. Ég sló með sjöjárni en brautin er um 157 metr- ar á lengd. Mér fannst boltinn vera of langur svo ég hætti að horfa á eftir honum og beygði mig á eftir tíinu. Svo fóru félagar mínir allt í einu að orga. Ég hélt að þeir væru að stríða mér en svo reyndist kúlan vera ofan í,“ segir Lárus hlæjandi þegar hann rifjar upp draumahögg- ið. „Ég á allavega skilti upp á það að hafa farið holu í höggi.“ - kh Á GOLFVELLINUM Lárus L. Blöndal er duglegur að spila golf í öðrum löndum. Hér stendur hann á teig á golfvelli á Alicante. MYND/ÚR EINKASAFNI Tvö fyrirtæki bjóða nú upp á kort sem veitir aðgang að fjölda golfvalla víða um land. Annars vegar er það Golfpassinn en hins vegar Golfkortið. Kortin eru í grunninn hugsuð eins, kylfingur kaupir kort fyrir sig eða fjölskylduna og fær aðgang að golfvöllum víða um land. Hægt er að spila í nokkur skipti á hverjum velli. Helsti munurinn á kortunum er fólginn í verði, fjölda valla og staðsetningu þeirra valla sem þau veita aðgang að. Golfpassinn veitir aðgang að 20 golfvöllum, þar á meðal á golfvöll- um á eða við höfuðborgarsvæðið svo sem Ljúflingi, æfingavellinum hjá Oddfellowum, golfvellinum í Grindavík, Ásatúni hjá Flúðum og á Selfossi. Passinn kostar 11.900 krónur fyrir einstaklinginn en 23.800 fyrir fjölskylduna. „Við viljum gefa fólki kost á að spila golf úti um allt land fyrir lítinn pening. Golfið er orðið eitt vinsælasta áhugamál Íslendinga á sumrin og þetta er sniðug leið til að prófa nýja velli og um leið fínt tækifæri til að koma öðrum fjölskyldumeðlimum af stað. Það skemmir heldur ekki fyrir að fólk getur sparað peninga með því að kaupa passann,“ segir Daníel Rún- arsson, hjá Golfpassanum. Golfkortið nær til 23 golfvalla, þar á meðal til nokkurra valla á Vest- fjörðum. Einstaklingskortið kostar 15.200 krónur og fjölskyldukortið 30.400 krónur. Jón Hlíðar Runólfsson, hjá Golf- kortinu, segir að hugmyndin að kortinu sé komin frá Veiðikortinu, sem margir þekkja, en það veitir veiðimönnum aðgang að vötnum víða um land. „Það er svona svip- uð hugmynd á bak við þetta,“ segir hann. Jón Hlíðar segir kortið hafa fengið góðar undirtektir, bæði hjá fjölskyldufólki og einstaklingum. Hann reiknar fastlega með því að geta boðið upp á fleiri velli í framtíðinni. „Við erum ennþá að vinna í því að fá að fjölga völlunum,“ segir Jón Hlíðar. Nánari upplýsingar um kortin má finna á heimasíðunum golf- passinn.is og golfkortid.is. - kh Veitir aðgang að golfvöllum víða um land Lárus L. Blöndal lögmaður þykir liðtækur golfari sem hefur farið holu í höggi: Sá ekki kúluna fara ofan í GOLF Golfkortin og golfpassinn henta þeim sem eru á flakki um landið og vilja ekki skilja kylfurnar eftir heima. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Golfklúbbur Ásatúns Golfklúbbur Byggðaholts Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs Golfklúbburinn Gláma Golfklúbburinn Gljúfri Golfklúbbur Grindavíkur Golfklúbbur Hólmavíkur Golfklúbburinn Laki Golfklúbburinn Lundur Golfklúbbur Mývatnssveitar Golfkl. Oddur (Ljúflingur) Golfklúbbur Ólafsfjarðar Golfklúbburinn Ós Golfklúbbur Selfoss Golfklúbbur Seyðisfjarðar Golfklúbburinn Skrifla Golfklúbbur Staðarsveitar Golfklúbburinn Úthlíð Golfklúbburinn Vík Golfvöllurinn Þórisstöðum Verð 11.900 fyrir einstakling 23.800 fyrir fjölskyldun Golfpassinn Golfvöllurinn Sandgerði Golfvöllurinn Hvammsvík Golfvöllurinn Indriðastöðum Golfvöllurinn Þórisstöðum Golfvöllurinn Reykholti Golfvöllurinn Görðum Golfvöllurinn Ólafsvík Golfvöllurinn Patreksfirði Golfvöllurinn Þingeyri Golfvöllurinn Ísafirði Golfvöllurinn Hólmavík Golfvöllurinn Steinsstöðum Golfvöllurinn Lónkoti Golfvöllurinn Þverá Golfvöllurinn Mývatni Golfvöllurinn Grenivík Golfvöllurinn Ásbyrgi Golfvöllurinn Egilsstöðum Golfvöllurinn Seyðisfirði Golfvöllurinn Eskifirði Golfvöllurinn Hornafirði Golfvöllurinn Efri-Vík Golfvöllurinn Vík Verð 15.200 krónur fyrir einstakling 30.400 krónur fyrir fjölskylduna Golfkortið HÁTT Í ÞÚSUND MANNS hafa skráð sig á opin mót sem haldin verða á sunnudaginn, að því er fram kemur á kylfingi.is. Mótin verða meðal annars Hellu, Hlíðavelli, Suðurnesjum og í Sandgerði. 1000 Nú þegar kylfingar sjá fram á að komast (vonandi) á næstu vikum út til að spila golf á sínum heimavöllum er ekki úr vegi að minna á að vellirnir eru mjög viðkvæmir á þessum tíma, lítil spretta og gróðurinn því lengi að ná sér eftir skemmdir, segir Hinrik Gunnar Hilmarsson, sem annast hefur eftirlit, vallarvörslu og dómgæslu hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Hinni gefur kylfingum eftirfarandi ráð. 1. Eitt það mikilvægasta sem við þurfum að hafa í huga er að gera við boltaför á flötunum. Þessi vísa verður aldrei of oft kveðin. Við viljum góðar flatir en til þess verða allir kylfingar að taka þátt og það gerist ekki öðruvísi en svo að gera við eftir sig – GERUM VIÐ BOLTAFÖR Á FLÖTUM. 2. Þetta gildir einnig um kylfuför. Muna að við verðum að setja torfusnepla aftur á sinn stað. Þarna gildir það að ef ekkert er gert verður varanleg skemmd sem þarf sérstaka aðgerð til að laga. 3. Virða girðingar. Það er jú verið að reyna að verja viðkvæm svæði og því nauðsynlegt að stýra umferðinni. Ef kylfingar halda að ástæðan sé einhver önnur þá er það mikill miskiln- ingur. Þetta skulum við hafa í huga næst þegar okkur dettur í hug að klofa yfir girðingar. 4. Verum þolinmóð, leyfum vallarstarfsmönnum að sinna vorverkunum t.d. yfirsáningu og götun. Muna að þetta er ekki gert til að pirra okkur heldur til þess að gera vellina betri! Vallarstarfsmennirnir eiga jafn erfitt með að vinna í snjó eins og það er erfitt fyrir okkur að spila golf í snjó. Hollráð Hinna Golftímabilið að byrja – viðkvæmir vellir. Vellirnir sem í boði eru bruun-rasmussen.dk Bredgade 33 DK-1260 Kbh. K Tel +45 8818 1111 Verið velkomin á Hótel Holt 5. maí kl. 14-18 Hópur reynslumikilla sérfræðinga frá einu elsta og virtasta uppboðshúsi Skandinavíu, BRUUN RASMUSSEN, meta gömul og ný málverk, bækur, silfur, hönnunar- og listmuni, einnig úr, skartgripi, vín og „design“-húsgögn. Matið er án endurgjalds og án skuldbindinga með hugsanlega sölu á uppboði í huga. Við leitum sérstaklega að verkum eftir Jón Stefánsson, Kjarval, Ásgrím Jónsson, Þorvald Skúlason, Svavar Guðnason, Ólaf Elíasson og marga fleiri. Ef um stóra hluti er að ræða, er best að koma með ljósmynd. Einnig er möguleiki á að fá okkur í heimahús þann 6. og 7. maí. Nánari upplýsingar veita: Nadia Gottlieb, 0045 8818 1183, nag@bruun-rasmussen.dk Hvers virði er þetta ? Ól af ur E lia ss on : “ Tw o ho t a ir co lu m ns ”, 20 05 . Tv æ r h ög gm yn di r ú r r yð fr íu st ál i m eð ra fm ag ns pe ru m . H am ar sh ög g: 2 10 .0 00 d kr .

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.