Fréttablaðið - 05.05.2011, Page 2

Fréttablaðið - 05.05.2011, Page 2
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR2 Kristín, truflaði jafnréttis- baráttan leitina? „Það er jafn rétt skýring og hver önnur.“ Kristín Ástgeirsdóttir varð sextug á dög- unum og segir í viðtali við Fréttablaðið að hún hafi ekki enn fundið þann rétta, en hún er ógift og barnlaus. SKIPULAGSMÁL Samkvæmt tillögu embættis skipulagsstjóra Reykja- víkur gæti Félag múslima fengið byggingarlóð austast í Sogamýri. Skipulagsráð hefur sent tillögu um tilbeiðsluhús á lóðinni til umsagnar hjá hverfisráðinu, umhverfisráði og Skipulagsstofnun. Sjálfstæðismenn sátu hjá í skipu- lagsráðinu og sögðu margar aðrar lóðir henta betur fyrir tilbeiðslu- hús. Vegna staðsetningarinnar yrðu byggingar á Sogamýrarlóð- inni að vera í mjög háum gæða- flokki „enda er lega lóðarinnar þannig að hús á henni munu sjálf- krafa verða kennileiti í borginni,“ bókuðu þeir. Fulltrúar meirihlutans í skipu- lagsráði sögðu undirbúninginn vandaðan og hafa staðið í mörg ár. Páll Hjaltason, varaformaður ráðsins, ítrekar að þótt hugmyndin með Sogamýrarlóðinni sé að efna gamalt loforð við Félag múslima sé lóðin ekki formlega skilgreind félaginu til handa. Þá segist hann ekki deila áhyggjum sjálfstæðis- manna af þeim svip sem tilbeiðslu- hús á þessum stað muni setja á umhverfið. Til dæmis sé áætlað að hús múslima verði lágreist og aðeins um 400 fermetrar. „Lóðin er í laut þannig að hús þar verður naumast mikið kennileiti.“ - gar Meirihluti skipulagsráðs kveðst hafa bestu lausnina en sjálfstæðismenn ósáttir: Ætla múslimum lóð í Sogamýri SOGAMÝRI Lóð sunnan við Suðurlands- braut á móts við leikskólann Steinahlíð er nú hugsuð undir tilbeiðsluhús fyrir Félag múslima. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ALÞINGI Árið 2009 hafði 1.251 Íslendingur yfir tólf milljónir í árstekjur. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrir- spurn sem Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, lagði fram á þingi um miðjan mars. Einar spurði jafnframt hvernig þessi hópur skiptist eftir starfs- stéttum. Í svari ráðherrans segir að þær upplýsingar geti hann ekki veitt, þar sem fjöldinn er fundinn í skattframtölum ein- staklinga en þar komi ekki fram neinar persónugreinanlegar upp- lýsingar. - sh Ráðherra svarar þingmanni: 1.251 með tólf milljónir á ári DÓMSMÁL Héraðsdómur fram- lengdi í gær gæsluvarðhald yfir karlmanni á þrítugsaldri sem var handtekinn í Leifsstöð í mars með 36 þúsund e-töflur og 4.400 skammta af LSD í fórum sínm. Maðurinn hefur setið í varð- haldi síðan hann var handtekinn og mun, samkvæmt úrskurðinum frá í gær, gera það til 20. maí hið minnsta. Maðurinn var handtekinn við komuna frá Kanaríeyjum ásamt konu sem nú hefur verið látin laus. Efnin voru falin í fölskum töskubotni. Lögregla bíður nú gagna frá Spáni sem talin eru nauðsynleg rannsókn málsins. - sh Flutti býsn af dópi frá Kanarí: E-töflumaður áfram í haldi EGYPTALAND, AP Leiðtogar Fatah og Hamas, tveggja helstu hreyf- inga Palestínumanna, undirrit- uðu í gær sáttasamning við hátíð- lega athöfn í Kaíró í Egyptalandi. Mahmoud Abbas, forseti Pal- estínustjórnar og leiðtogi Fatah, undirritaði samninginn ásamt Khaled Mashal, leiðtoga Hamas. Abbas sagði áhyggjur Ísraela af samkomulaginu ástæðulausar og hafnaði gagnrýni þeirra. „Þeir eru bræður okkar og fjöl- skylda,“ sagði hann um Hamas. „Okkur greinir oft á, en við náum samt lágmarkssamkomulagi.“ - gb Palestínumenn undirrituðu: Gefa lítið fyrir áhyggjur Ísraela ABBAS OG MASHAL Leiðtogar Fatah og Hamas í Kaíró í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MENNTAMÁL Lánþegum Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) sem eru í námi erlendis er farið að fjölga á ný, að sögn Guðrúnar Ragnarsdóttur framkvæmda- stjóra. „Það var niðursveifla á milli skólaáranna 2008-2009 og 2009- 2010. Námsmönnum sem fengu lán hjá LÍN vegna náms erlendis fækkaði þá um tíu prósent. Nú er þetta á uppleið en námsmennirn- ir safna hins vegar miklu hraðar skuldum en áður vegna falls krónunnar,“ segir Guðrún. - ibs Námsmenn erlendis: Lánþegum LÍN fjölgar á ný SIGLINGAR Vestmannaeyjaferjan Herjólfur sigldi til Landeyja- hafnar í gær í fyrsta sinn eftir rúmlega fjögurra mánaða hlé á siglingum þangað vegna erfiðra aðstæðna. Ýmist hefur ölduhæð eða hvass- viðri hamlað því að hægt yrði að dýpka Landeyjahöfn nægilega til þess að Herjólfur gæti athafnað sig þar. Ferjunni hefur þess í stað verið siglt til Þorlákshafnar þessa fjóra mánuði. Ferjunni er nú siglt eftir flóða- töflum og eru þrjár ferðir áætl- aðar í dag, ein snemma morguns og tvær síðdegis. - gb Herjólfur loks í Landeyjahöfn: Komst í höfn eftir langt hlé HERJÓLFUR Í LANDEYJAHÖFN Ferjan lögst að bryggju í gær eftir fjögurra mánaða hlé. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðiseftir- lit Reykjavíkur hefur ítrekað farið fram á lagfæringu lagna á Fluggörð- um á Reykjavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í bréfi Heilbrigðis- eftirlitsins til Jóns Baldvins Páls- sonar flugvallarstjóra, sem dagsett er 2. maí síðastliðinn. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá því á þriðjudag að skólp flæddi um flugbrautir í Vatnsmýr- inni og út á götur vegna ónýtra lagna á svæðinu. Hefur þetta gerst af og til síðan árið 2006. Ekki liggur ljóst fyrir hver ber ábyrgð á skólplögnum á flugvallar- svæðinu. Í bréfi Heilbrigðis- eftirlitsins kemur þó fram að í úttekt Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hinn 21. maí árið 2007 hafi komið í ljós að fráveitulögnin framan við flugskýli 23 annaði ekki flæði frá aðliggjandi lögnum. Þeir sem eiga aðild að lögninni eru Fluggarðar – Lóðafélag, Flugfélag Íslands og Skeljungur hf. Ábyrgð var sögð í höndum rekstraraðila á flugvallar- svæðinu, en ekki OR. Jón Baldvin flugvallarstjóri vísar þessu á bug og segir ábyrgðina liggja hjá Reykjavíkurborg. „Þessum lóðum er úthlutað af borginni og við erum ekki í neinu forsvari fyrir það,“ segir Jón. „Við erum búin að gera það sem við getum í þessu máli og ég vísa þessu alfarið á Reykjavíkurborg.“ Kristín Soffía Jónsdóttir, for- maður heilbrigðisnefndar Reykja- víkur, segir málið fyrst hafa komið á borð eftirlitsins í september árið 2006. Þá hafi niðurstaðan verið að eigendur flugskýla á Fluggörðum greiddu sjálfir kostnað af endur- nýjun og nýlagningu holræsa á lóð sinni. OR teldi sig aðeins eiga eitt ræsi á lóðinni og að gatnagerðar- gjöld yrðu jafnframt felld niður. „[Fluggarðar – Lóðafélag, Skelj- ungur og Flugfélag Íslands] hafa ekki getað komið sér saman um eðlilegt viðhald og lagfæringar sem þörf er á til að leysa þetta vanda- mál,“ segir Kristín. Þar sem eig- endur hafi ekki brugðist við hafi árið 2008 verið ákveðið að bjóða út verkið og láta vinna það á kostnað eigenda. Erfiðleikar í útboði leiddu til þess að enn hefur ekki verið farið í það verk. Kristín segir að þar sem engar kvartanir hafi borist fyrr en nú hafi verið talið að málið væri í eðlilegum farvegi hjá eigendum. „Næstu skref eru að funda með eigendum og setja málið í ferli aftur,“ segir hún. Boðað hefur verið til fundar hinn 24. maí næstkom- andi. sunna@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Þrítugur karlmaður var á þriðjudag úrskurðaður í gæsluvarðhald til laugardags eftir að hafa reynt að nauðga ungri stúlku á Austurvelli nóttina áður. Þetta staðfestir Björgvin Björgvins son, yfirmaður kyn- ferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Stúlkan, sem er nítján ára, hafði verið á skemmtun ásamt skóla- félögum sínum. Hún var á heim- leið á þriðja tímanum þegar ráðist var á hana. Vinir hennar voru þá skammt undan en urðu árásarinn- ar ekki varir. Maðurinn reyndi að koma vilja sínum fram við stúlkuna og veitti henni áverka við aðfarirn- ar, þó ekki ýkja alvarlega. Henni tókst að komast undan honum, láta félaga sína vita og hringja á lögreglu. Stúlkan leitaði síðan á neyðar móttöku vegna nauðgana. Vitni sáu manninn hlaupa burt og upp í nálægan bíl og náðu niður bíl- númerinu. Það varð til þess að lög- regla átti ekki í erfiðleikum með að hafa uppi á manninum. Maðurinn er fæddur árið 1981 og hefur játað brotið. Hann hefur ekki komið við sögu lögreglu áður vegna sambærilegra brota. - sh SPURNING DAGSINS Byrjaðu góðan dag vel – Fáðu þér létta ab mjólk á hverjum degi Nú fáanleg í handhægum ½ lítra umbúðum Létta AB mjólkin er einhver hollasti morgunverður sem völ er á. AB mjólkin inni- heldur milljarða gagnlegra mjólkursýrugerla sem valda því að óæskilegir gerlar eiga erfitt uppdráttar í meltingar- veginum. Regluleg neysla tryggir að meltingarflóran er alltaf í lagi og ónæmiskerfið starfar með hámarksafköstum. Þrítugur maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald: Reyndi að nauðga stúlku á Austurvelli Annar í haldi grunaður um tvær nauðganir Yfirvöld fréttu fyrst af skólpinu árið 2006 Heilbrigðiseftirlitið hefur ítrekað farið fram á lagfæringu lagna við flugvöllinn í Vatnsmýri. Skólp flæðir um götur vegna ónýtra lagna. Töldu málið í eðlilegum farvegi þar sem fáar kvartanir bárust. Flugvallarstjóri segir borgina bera ábyrgð. Sigurður Pálmason, framkvæmdastjóri Þyrluþjónustunnar, segir ástandið við völlinn algjörlega óviðunandi. Stærsti skólppollurinn á svæðinu er fyrir utan húsnæði Þyrluþjónustunnar. „Borgin og Orkuveitan vilja ekki taka ábyrgð á þessari lögn,“ segir Sigurður. „Þeir vilja heldur hafa hérna mannaskít flæðandi um allt.“ Sigurður segir vandamálið liggja í skipulaginu á svæðinu, sem enginn vilji taka á af hendi borgarinnar. „Þetta er vítavert. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gefur út starfsleyfi fyrir flugvöllinn en er ekki að fylgja því eftir að Reykjavíkurborg lagi þessa mengun sem borgin ber sjálf ábyrgð á.“ Segir málið vítavert af hálfu borgarinnar SAUR FLÆÐIR UM VATNSMÝRINA Skólp hefur nú flætt yfir garða og götur á flug- vallarsvæðinu í Vatnsmýri eftir leysingarnar í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ungur maður sem handtekinn var um þarsíðustu helgi, grunaður um að hafa nauðgað nítján ára stúlku í heimahúsi og beitt hana öðru ofbeldi, er jafnframt grunaður um að hafa nauðgað sautján ára stúlku í lok mars. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manninum, sem gildir til 27. maí. Manninum er haldið í gæsluvarðhaldi vegna almannahagsmuna. Maðurinn er talinn hafa, í félagi við annan, haft samræði við eldri stúlk- una gegn vilja hennar. Bæði stúlkan og hinn maðurinn er sammála um að sá sem er í varðhaldi hafi verið mjög ofbeldisfullur og stýrt öllum aðgerðum þeirra með heiftarlegum skipunum svo þau hafi ekki þorað annað en að hlýða. Í yfirheyrslu hjá lögreglu sagðist hann kannast við að vera „skap- mikill“ maður. Yngri stúlkan hefur borið að maðurinn, sem er fæddur 1988, hafi umturnast þegar þau ætluðu að hafa samræði, orðið mjög ógnandi, beitt hana ofbeldi og stjórnað öllum hennar gerðum. Hann hafi slegið hana utan undir, bitið hana og þvingað hana til kynlífsathafna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.