Fréttablaðið - 05.05.2011, Page 12

Fréttablaðið - 05.05.2011, Page 12
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR Skóli Ísaks Jónssonar er sjálfseignarstofnun sem unnið hefur að menntun yngstu n emenda grunnskólans í 85 ár, frá 1926. Í Ísaksskóla mótar einlægur, faglegur m etnaður s kólastarfið auk þess sem hann eflir heilbrigða lífshætti. Einkunnarorðin sem Ísak Jónsson valdi s kólanum standast tímans tönn: Starf, háttvísi, þroski og hamingja. Skóli Ísaks Jónssonar STJÓRNMÁL Hugmyndir um þjóðina og fullveldi hafa einkennt íslenska stjórnmálaumræðu um áratuga- skeið og eru í raun gegnumgang- andi í flestöllum deilumálum um utanríkismál, allt frá inngöngunni í NATO árið 1949. Þetta er meginefni nýrrar bókar frá Eiríki Bergmanni Einarssyni stjórnmálafræðingi, en hún ber heitið Sjálfstæð þjóð – trylltur skríll og landráðalýður. Þar greinir Eiríkur umræðuna í kringum nokkur umdeildustu mál síðustu áratuga, aðild Ísland að NATO, EFTA, EES, ESB og svo umræðuna í kringum Icesave og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að efnahagsmálum hér á landi. „Þessi bók er tilraun til að skilja þau áhrif sem hugmyndir um þjóð- ina og fullveldið hafa á stjórnmála- umræðuna,“ segir Eiríkur í sam- tali við Fréttablaðið. Niðurstaða hans er sú að full- veldið sé í raun grundvöllur póli- tískra hugmynda hér á landi. Eiríkur segir að langur aðdrag- andi hafi verið að þessari hug- mynd, sem megi rekja til upphafs sjálfstæðisbaráttu Íslands á fyrri hluta nítjándu aldar. „Íslenskir stúdentar í Danmörku mótuðust af hugmyndum um lýð- ræði og grundvöll ríkja. Danskir lýðræðissinnar afnámu einveldi konungs og það er ekki ólíklegt að við það hafi Íslendingarnir hugs- að með sér að þar sem Danir hafi markað sér stöðu sem þjóð, gætu Íslendingar gert hið sama.“ Eiríkur undirstrikar mikilvægi þessara brautryðjenda fyrir Ísland og Íslendinga. „Þetta voru flottir menn sem tóku alþjóðlega strauma og notuðu til að lyfta Íslandi úr dróma, upp til nútímans svo að úr varð alvöru- ríki á meðal ríkja.“ Þessar hugmyndir hafi síðar orðið grundvöllur stjórnmálaum- ræðu allt fram til dagsins í dag. Að sögn Eiríks eru margir fletir á þessu máli þar sem fólk eða hópar með gagnstæðar skoðan- ir geti rekið mál sín á grundvelli þjóðernis. „Það virðist vera lykilatriði til árangurs í íslenskri pólitík að geta nýtt sér þjóðina og full veldið,“ segir Eiríkur og bætir því við að þó að vissulega sé hægt að beita fyrir sig hugmyndum um þjóðina í neikvæðum tilgangi, séu þær alls ekki neikvæðar í grunninn. Eiríkur telur að þessar hug- myndir um fullveldið og þjóðina verði áfram undirstaða íslenskrar stjórnmálaumræðu. „Þessar grundvallarhugmyndir urðu til í sköpunarsögu íslenska ríkisins og verður ekki breytt svo glatt. Þú skiptir ekki um innræt- ingu í fólki, því að við höfum öll sömu tilfinningu gagnvart hlut- um eins og handboltalandsliðinu, lambakjöti og tungumálinu.“ thorgils@frettabladid.is Fullveldið er undirstaðan Í nýrri bók Eiríks Bergmanns Einarssonar kemur fram að stjórnmálaumræða hér á landi hafi lengi mótast af hugmyndum um fullveldi og þjóðina. Ekki sé útlit fyrir breytingar á því í nánustu framtíð. FULLVELDIÐ GRUNDVÖLLUR STJÓRNMÁLAUMRÆÐU Í nýrri bók sinni segir Eiríkur Bergmann Einarsson að hugmyndir um fullveldi og þjóðina liggi að baki íslenskri stjórnmálaumræðu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEILBRIGÐISMÁL Lýðheilsustöð sam- einaðist embætti landlæknis 1. maí í samræmi við nýsamþykkt lög frá Alþingi. Í lögunum segir að mark- mið þeirra sé „að stuðla að heil- brigði landsmanna, meðal annars með því að efla lýðheilsustarf og tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og stuðla að því að lýðheilsustarf og heilbrigðisþjónusta byggist á bestu þekkingu og reynslu á hverj- um tíma“. Undirbúningur sameiningar hefur staðið yfir allt frá ársbyrjun 2010. Unnið er að því að finna emb- ættinu nýtt húsnæði en fyrst um sinn mun starfsemi hins stækkaða embættis landlæknis fara fram á tveimur starfsstöðvum. Vefsetur Landlæknisembættis- ins verður starfrækt óbreytt enn um sinn en fyrirhugað er að opna nýjan og endurskipulagðan vef bráðlega þar sem efni af vefjunum tveimur verður sameinað. Embætti landlæknis var stofnað árið 1760 og hélt því upp á 250 ára afmæli sitt á síðastliðnu ári. Sú sameining sem nú er staðreynd er því enn ein varð- an í langri sögu skipulagðrar heil- brigðisþjónustu hér á landi, segir í tilkynningu frá embættinu. - shá Lýðheilsustöð sameinaðist embætti landlæknis: Stuðla að heilbrigði

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.