Fréttablaðið - 05.05.2011, Page 18
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR18 18
hagur heimilanna
„Bestu kaupin eru sjálfvirk ítölsk
DeLonghi-kaffivél sem fékkst í
Heimilistækjum árið 2006. Hún
hefur aldrei klikkað og veitir mér
gleði á hverjum degi,“ segir Guðrún
Johnsen, lektor við Háskólann í
Reykjavík.
Hún segir vélina hafa kostað sitt,
um sextíu þúsund krónur, á sínum
tíma. Tengdafaðir hennar kom til
móts við fjárútlát fjölskyldunnar
með peningagjöf til manns Guð-
rúnar á fertugsafmæli hans.
„Á endanum bárum við
ekki stóran kostnað vegna
vélarinnar, en allan
ábatann,“ segir Guðrún,
hlær og bætir við að
kostir kaffivélarinnar séu
slíkir að nú þegar hún fari
sjaldnar til annarra landa
en áður geti hún hellt
upp á og ímyndað sér að
hún sé á einu af kaffihúsum
Starbucks. „Gestirnir njóta
þess líka, þeir muna alltaf
eftir því hvað kaffið var
gott þegar þeir komu
síðast.“
Guðrún telur sig hafa gert sín
verstu kaup sama ár og kaffivélin
var keypt. Þá keypti fjölskyldan
notaðan bíl fyrir 1,8 milljónir króna.
Guðrún leitaði sér upplýsinga um
bílinn og ákvað að kaupa hann
vegna lágrar bilanatíðni þessarar
tilteknu bílategundar.
En raunin varð önnur. Sjálfskipt-
ingin í bílnum bilaði á sama tíma og
bankarnir fóru í þrot haustið 2008.
Bílinn fór á verkstæði en varð
að vera þar í tíu vikur þar
sem gjaldeyrir var ekki til í
landinu til kaupa á vara-
hlutum. „Þetta var mjög
sárt enda bíllinn eini
fjölskyldubíllinn. Svo
kostaði viðgerðin
fimm hundruð
þúsund krónur, sem
var tæpur þriðjungur
af kaupverði bílsins.
Þetta voru verstu
kaupin,“ segir Guðrún
Johnsen.
NEYTANDINN: GUÐRÚN JOHNSEN, LEKTOR VIÐ HR
Elskar kaffivélina
GÓÐ HÚSRÁÐ Pítsukassar
Góð leið til að brjóta saman pítsukassa
Oft getur verið vandasamt að brjóta saman pítsukassa svo hann passi í
ruslapokann eða rennuna með góðu móti. Í staðinn fyrir að hoppa ofan á
kassanum og bögglast við að brjóta hann saman er hægt að bleyta upp í
pappanum með því að stinga honum stutta stund undir bununa í vasknum
eða sturtunni. Þá linast pappinn upp og auðveldlega er hægt að vöðla hann
saman eins og leir eftir að búið er að vinda mesta vatnið í burtu.
18.961 BARN sótti leikskóla í desember 2010 samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands og hafa aldrei verið fleiri. Fjölgunin frá fyrra ári nam 1,8 prósentum, en um 30 prósentum frá árinu 2000.
Þá voru 14.574 börn skráð í leikskóla í desember.
Bíóferð fyrir fjögurra
manna fjölskyldu, tvo full-
orðna og tvö börn á aldr-
inum 9-12 ára, getur auð-
veldlega kostað nálægt sjö
þúsund krónum. Þessa upp-
hæð þarf fjölskyldan að
greiða ef keypt er lítil kók
og lítill poki af poppkorni
handa hverjum og einum
ásamt bíómiðum þegar
engin tilboð eru.
Hjá Sambíóunum er almennt miða-
verð fyrir fullorðna 1.200 krónur
og miðaverð fyrir 9-12 ára 1.100
krónur. Verð bíómiðanna fyrir fjöl-
skylduna er þess vegna 4.600 krón-
ur. Lítil kók kostar 285 krónur og
lítill poki af poppkorni kostar 270
krónur. Samtals kostar meðlætið
2.220 krónur fyrir fjóra.
Alls þarf fjölskyldan að greiða
6.820 krónur fyrir skemmtunina
án tilboða.
Alfreð Árnason, framkvæmda-
stjóri Sambíóanna, segir miða-
verð hafa hækkað um 50 krónur 2.
maí síðastliðinn. „Árið 2002 kost-
aði bíómiðinn 800 krónur en ef við
reiknum verðhækkunina miðað við
neysluverðsvísitölu 2011 ætti bíó-
miðinn að kosta 1.313 krónur en
hann kostar aðeins 1.200 krónur.“
Almennt miðaverð fyrir börn
yngri en 9 ára er 700 krónur og
fyrir eldri borgara og öryrkja
900 krónur. Miði í lúxussal kostar
2.400 krónur. Þrívíddarmiðaverð
er hærra fyrir alla aldurshópa eða
sem nemur um 16 prósentum, að
sögn Árna.
„Ástæðan fyrir því að miða-
verð á myndir sýndar í þrívídd
er hærra en á myndir í tvívídd
er dýrari tæknibúnaður sem not-
aður er við sýningarnar auk þess
sem myndirnar eru dýrari í fram-
leiðslu. Þær njóta hins vegar mik-
illa vinsælda. Í fyrra voru 22 pró-
sent af sýndum myndum í þrívídd
en í ár verður fjöldinn að öllum lík-
indum 30 prósent.“
Til þess að draga úr kostnaði við
bíóferð er um að gera að nýta sér
tilboðin sem í boði eru. Á þriðju-
dögum kostar miðinn hjá Sam-
bíóum 750 krónur fyrir fullorðna.
Um helgar er boðið upp á Sparbíó
fyrir fjölskylduna. „Til þess að
létta undir með fólki bjóðum við
auk þessa mörg önnur tilboð sem
lesa má um á vefsíðunni okkar.“
Jón Eiríkur Jóhannsson,
rekstrar stjóri Háskólabíós og
Smárabíós, segir almennt miða-
verð, sem er 1.200 krónur, lækka
um 100 krónur sé miðinn keyptur á
netinu. Þessi kvikmyndahús bjóða
jafnframt upp á tilboð á þriðjudög-
um og um helgar og það gerir einn-
ig Laugarásbíó.
Almennt miðaverð í Laugarás-
bíói er 1.100 krónur. Sé miðinn
keyptur á netinu er gefinn 50
króna afsláttur.
ibs@frettabladid.is
Bíóferð fjölskyldunnar
kostar um 7.000 krónur
Í BÍÓI Bíóferð er góð skemmtun en hún getur verið dýr séu tilboð kvikmyndahúsanna ekki nýtt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Orkuveita Reykjavíkur hefur nú farið í gang með tilraunaverkefni síðustu
mánuði þar sem íbúum Reykjavíkur er gefinn kostur á að lesa sjálfir af
orkumælum og hringja inn álesturinn. Bréf voru send út til íbúa og segir
Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, að besti árangurinn
í einum mánuði hafi verið þegar um 40 prósent hafi lesið sjálf af mælum
sínum og tilkynnt tölurnar..
„Það er mjög gott til að byrja með,“ segir Eiríkur. „Ef þetta gefst vel
munum við halda þessu áfram. Álesturinn er partur af innheimtukerfi, sem
viðskiptavinirnir bera endanlega kostnaðinn af. Það er verið að leita að hag-
ræðingu í því eins og öðru með því að prófa þessa leið.“
■ Orka
Minna en helmingur les af og hringir inn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun á næst-
unni byrja að sekta þá eigendur sem enn hafa
nagladekk undir bílum sínum. Eigendur og
umráðamenn ökutækja sem eru búin nagladekkj-
um eru beðnir um að gera þar bragarbót á.
Lögreglan mun rukka eigendur um fimm þúsund
krónur fyrir hvert nagladekk, og raunar sömuleiðis
fyrir hvern óhæfan hjólbarða, eins og það er orðað.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu, sem
mun hefja sektir mánudaginn 9. maí. - sv
■ Samgöngur
Fimm þúsund króna sekt fyrir nagladekk
ÞRÝSTIJÖFNUNAR HEILSUDÝNUR OG HEILSUKODDAR
Stillanlegt og þægilegt
Stillanlegir dagar í maí.
6 mánaða vaxtalausar greiðslur!
0%
vextir
30%
afsláttur
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA AF LANDSBYGGÐINNI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.