Fréttablaðið - 05.05.2011, Page 20
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR20
Umsjón: nánar á visir.is
Fyrirhuguð skráning svissneska
hrávörurisans Glencore Inter-
national á markað í London er sú
umfangsmesta sem sést hefur í
breskum fjármálageira. Hluta-
bréf fyrirtækisins verða jafnframt
skráð á markað í Hong Kong.
Áætlað er að hlutabréfaverðið
muni hlaupa á 480 til 580 pensum
á hlut. Miðað við það gæti mark-
aðsverðmæti fyrirtækisins legið
öðru hvoru megin við 36,5 millj-
arða punda, jafnvirði rúmra 6.700
milljarða króna.
Glencore stjórnar um helmingi
af öllum málmviðskiptum heims-
ins og er aðaleigandi Century
Aluminium, sem aftur á og rekur
Norðurál á Grundartanga.
Hópur kjölfestufjárfesta hefur
samþykkt að kaupa samanlagðan
31 prósents hlut í fyrirtækinu í
útboði fyrir skráningu á markað.
Breska ríkisútvarpið segir stærsta
kaupandann vera Aabar Invest-
ments frá Abu Dhabi. Félagið á
sömuleiðis hlut í bílaframleiðand-
anum Daimler og ítalska bankan-
um UniCredit. Ekki þykir ólíklegt
að bandarísku fjárfestingarsjóð-
irnir BlackRock og Fidelity verði
í fjárfestahópnum.
Verði samið um launakjör á þeim
nótum sem nú er rætt um á milli
ASÍ og SA leiðir það til meiri
verðbólguþrýstings en spár hafa
gert ráð fyrir. Greining Íslands-
banka sagði í umfjöllun sinni í
gær að tilboð upp á þrettán pró-
senta launahækkun á næstu
þremur árum og fimmtíu þúsund
króna eingreiðsla við undirritun
samnings þýði að launakostnað-
ur vinnuveitenda aukist að jafn-
aði um sex prósent það sem eftir
lifir árs.
„Er þá bæði reiknað með áhrif-
um ríflega 4 prósenta samnings-
bundinnar hækkunar og ein-
greiðslunnar,“ segir í umfjöllun
Íslandsbanka og sagt ljós að mörg
fyrirtæki komi til með að þurfa
að velta kostnaðaraukanum að
verulegu leyti út í verðlag. „Á
það sérstaklega við um fyrirtæki
sem veita innlenda þjónustu og
framleiða vörur fyrir innlendan
markað, en útflutningsgreinar
hafa líklega öllu meira borð fyrir
báru að taka á sig slíka hækkun
vegna hagstæðra rekstrarskil-
yrða að öðru leyti.“
Greining Íslands banka segir
þó engu að síður líklegt að launa-
hækkun á borð við þá sem nú sé í
umræðunni skili launafólki nokk-
urri kaupmáttaraukningu á næstu
misserum. „Útlit er nú fyrir að
verðbólga í lok árs verði tæplega
3,5 prósent og að á næsta ári verði
verðbólgan í grennd við 3,0 pró-
sent. Miðað við það gæti kaup-
máttaraukningin orðið í kring um
1,0 prósent hvort ár.“ - óká
Kaupmáttur launa gæti aukist um eitt prósent miðað við samningsdrög:
Líkur aukast á meiri verðbólgu
Hækkandi framleiðsluverð í Evr-
ópu ýtir undir vangaveltur um
mögulega stýrivaxtahækkun Seðla-
banka Evrópu.
Framleiðsluverð í Evrópu í mars
hækkaði um 6,7 prósent milli ára,
en það er sögð mesta hækkun frá
því í september 2008.
„Hærra framleiðsluverð og
hækkandi orkuverð veldur aukn-
um áhyggjum af hærra neysluverði
sem þrýstir á Seðlabanka Evrópu
að hækka stýrivexti enn frekar,“
segir í umfjöllun IFS Greiningar
í gær.
- óká
Framleiðslukostnaður eykst:
Mesta hækkun frá 2008
Dr. Daniel Levin lögmaður var kos-
inn stjórnarformaður Íslandsbanka
á aukaaðalfundi í fyrradag. Hann
tekur við af Raymond Quinlan.
Eins og fram kom í ítarlegu við-
tali við Levin í Fréttablaðinu í
nóvember 2008 þekkir hann vel til
aðstæðna hér. Hans fyrstu kynni af
landinu voru þegar hann vann með
Seðlabankanum að fyrstu skulda-
bréfaútgáfu í Bandaríkjunum árið
1993. Eftir það tók hann vinfengi
við þjóðina, hefur bæði kennt við
Endurmenntunarstofnun og haldið
hér fyrirlestra.
Levin er með sérþekkingu í
stjórnarháttum fyrirtækja og
hefur í um aldarfjórðung sérhæft
sig í ráðgjöf og uppbyggingu fjár-
málageirans í löndum þar sem inn-
viðir samfélagsins hafa hrunið.
Hann var meðal annars ráðgjafi
stjórnvalda í Rússlandi eftir fall
kommúnismans, við fall pesóans í
Suður-Ameríku, og víðar svo sem
í Austur-Evrópu, Afríku, SA-Asíu
og í Kína. Þar að auki á Levin sæti
í stjórnsýslunefnd Liechtenstein
sem vinnur að þekkingarmiðlun
milli landa og að eflingu pólitískr-
ar, efnahagslegrar og félagslegrar
þróunar. - jab
Daniel Levin nýr stjórnarformaður Íslandsbanka:
Hefur unnið á
Íslandi um árabil
DR. LEVIN Nýr stjórnarformaður Íslands-
banka er sérfræðingur í endurreisn
landa sem hafa horft upp á efnahags-
hrun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
6
4
9
0
Sláttur í
Eymundsson!
Mikael Lind, starfsmaður Eymundsson
Austurstræti, mælir með bók mánaðarins.
MAÍ
1.999*
TILBOÐ KRÓNUR
Fullt verð 2.699 kr.
*Gildir til 31. maí nk.
“Edda er tuttugu og fjögurra ára Reykvíkingur
sem fór í hjartaskipti fyrir fimm árum. Hún er
forvitin um fyrri eiganda hjartans og sannfærð
um að ýmislegt hafi fylgt því.”
MILLJÓNIR Bandaríkjadala, jafnvirði 2,8 milljarða
króna, er hagnaður Century Aluminium, móðurfélags
Norðuráls, á fyrsta ársfjórðungi. Á sama tíma í fyrra
hagnaðist fyrirtækið um 6,3 milljónir dala.
25
Ivan Glasenberg, forstjóri Glencore International, er helsti hluthafi fyrirtækis-
ins með átján prósenta hlut. Miðað við vænt markaðsverðmæti Glencore
nemur hlutabréfaeign hans um sex milljörðum punda, jafnvirði 1.100
milljarða íslenskra króna. Við það fer hann í hóp með ríkustu mönnum
heims. Aðrir lykilstjórnendur Glencore, sem eiga allt upp undir sex prósent
hver, verða sömuleiðis auðmenn eftir skráninguna. Bloomberg-fréttastofan
bendir á að kvaðir séu lagðar á helstu stjórnendur því þeim er meinað að
selja hlutabréf sín í fyrirtækinu. Hömlurnar eru mislangar eftir goggunarröð,
almennir starfsmenn geta selt hlutabréf sín eftir ár. Þeir sem hærra eru settir
geta ekki gert það fyrr en eftir fimm ár.
Nýir milljarðamæringar
Hópur ríkustu einstaklinga heims stækkar við skráningu Glencore á markað:
Metinn á sjö þúsund milljarða