Fréttablaðið - 05.05.2011, Page 25

Fréttablaðið - 05.05.2011, Page 25
FIMMTUDAGUR 5. maí 2011 Þjóðir eiga eignir. Þetta eiga allir að geta skilið, enda almælt tíðindi, þótt öðru sé stundum haldið fram nánast eins og til að villa um fyrir fólki. Halldór Laxness skildi þetta, enda hefst Íslandsklukkan á þessum orðum: „Sú var tíð, segir í bókum, að íslenska þjóðin átti aðeins eina sameign sem metin varð til fjár. Það var klukka.“ Alþingismenn skilja þetta svo sem sjá má á fyrstu grein laganna um stjórn fiskveiða: ,,Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðar- innar.“ Gunnar Thoroddsen prófessor, síðar varaformaður Sjálfstæðisflokksins, forsætis- ráðherra og formaður stjórnar- skrárnefndar 1978-1983, skildi þetta, eins og ráða má af þeim drögum að stjórnarskrártexta, sem hann skildi eftir sig og lýst er í nýrri ævisögu eftir Guðna Th. Jóhannesson. Þar er vitnað í tillögur Gunnars um ýmis nýmæli í stjórnarskrá með þess- um orðum: „Þá skuli bundið í stjórnarskrá að „náttúruauðlind- ir landsins“ séu „ævarandi eign Íslendinga“ og „auðlindir hafs og hafsbotns innan íslenskrar lögsögu“ að eilífu „þjóðareign“.“ (bls. 545). Gunnar skildi, að náttúru auðlindir eru samkvæmt eðli máls þjóðareign svo sem hin alþjóðlega mannréttindaskrá Sameinuðu þjóðanna kveður á um. Sama máli gegnir um ýmis menningarverðmæti. Lítum á nokkur dæmi. Þingvellir, Skarðsbók og önnur handrit Í fyrstu grein laga um þjóðgarð- inn á Þingvöllum frá 2004 segir svo: ,,Hið friðlýsta land skal vera undir vernd Alþingis og ævinleg eign íslensku þjóðar- innar. Það má aldrei selja eða veðsetja.“ Ævinleg eign íslenzku þjóðarinnar felur samkvæmt þessari lagagrein í sér, að Þing- velli má aldrei selja eða veð- setja. Þetta er bersýnilega til- gangur þjóðareignarákvæðisins. Vilji löggjafans er skýr. Þessi lagagrein hefur staðið óbreytt frá 1928. Samkvæmt henni deil- um við, sem nú erum uppi, þjóð- garðinum með óbornum kyn- slóðum Íslendinga. Bankarnir keyptu Skarðsbók á uppboði í London 1965, en bókin hafði verið í einkaeigu, ein fornra íslenzkra skinn handrita svo vitað væri, og var hún slegin bönkunum fyrir 36.000 pund eða 6,6 milljónir íslenzkra króna. Bankarnir gáfu íslenzku þjóðinni Skarðsbók og afhentu ríkisstjórn Íslands hana til varð- veizlu, eins og lýst er til dæmis í Öldinni okkar. Bankarnir gerðu Skarðsbók að eign allra Íslend- inga – okkar, sem nú lifum, og einnig ófæddra afkomenda okkar – með það fyrir augum, að Skarðsbók mætti aldrei selja eða veðsetja, af því að hún er þjóðareign. Sama skilning er rétt að leggja í eignarhald íslenzku þjóðarinn- ar á handritunum, sem Danir skiluðu Íslendingum 1971-1996 og eru geymd í Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Handrit- in voru gjöf Dana til Íslendinga. Við afhendingu fyrstu handrit- anna 1971 flutti utanríkisráð- herra Dana, Poul Hartling, síðar forsætisráðherra, ávarp og sagði um handritin: „Við skilum þeim nú til Íslands, ekki vegna þjóð- réttarlegra ákvæða, heldur sem gjöf.“ Ávarpið birtist í Morgun- blaðinu 22. apríl 1971. Jónas Kristjánsson, þá forstöðumaður Árnastofnunar, lýsti eftir því á prenti tíu árum síðar, að senn yrði „tímabært að kveða skýrt á um eignarréttinn yfir þeim.“ (Heimkoma handritanna, fylgi- rit með Árbók Háskóla Íslands 1976-79, 1981, bls. 14.) Listasafn Einars Jónssonar og Leifur heppni Einar Jónsson myndhöggvari arfleiddi íslenzku þjóðina, en ekki ríkið eða Listasafn Íslands, að eigum sínu og safni. Hvers vegna þjóðina? Einstaka muni á Þjóðminjasafninu og Listasafn- inu geta þessi söfn væntanlega veðsett eða selt úr fórum sínum, ef þurfa þykir, en Þingvellir, Skarðsbók og Listasafn Einars Jónssonar verða hvorki veðsett né seld. Þetta er munurinn á þjóðareign og ríkiseign: þjóðin á þessar eignir, ríkið varðveitir þær. Þetta er höfuðinntak hug- myndarinnar og gildandi laga- ákvæða um þjóðareign eins og Þorsteinn Gylfason prófessor rakti í bók sinni Réttlæti og ranglæti (1998). Þorsteinn nefndi eitt dæmi enn. Styttan af Leifi Eiríkssyni á Skólavörðu- holti í Reykjavík er gjöf Banda- ríkjanna til íslenzku þjóðarinnar samkvæmt áletrun aftan á stöpl- inum. Náttúruauðlindir og menningarverðmæti Þjóðfundurinn, stjórnlaganefnd- in og þjóðin hafa kallað einum rómi eftir ákvæði um þjóðareign á auðlindum í stjórnarskrá, og það hafa flestir stjórnamála- flokkar á Alþingi einnig gert. Ætla má, að stjórnlagaráð hlýði þessu kalli. Til álita kemur einnig að setja í stjórnarskrána sambærilegt ákvæði um þjóðar- eignir, sem tilheyra menningar- arfi þjóðarinnar, svo sem hand- ritin. Hliðstæðan er skýr. Menningararfur sem þjóðareign Í DAG Þorvaldur Gylfason Prófessor Sama skilning er rétt að leggja í eignar- hald íslenzku þjóðarinnar á handrit- unum, sem Danir skiluðu Íslendingum 1971-1996 og eru geymd í Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Handritin voru gjöf Dana til Íslendinga. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN FÁÐU BEITTUSTU BRANDARANA Í SÍMANN m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meiri Vísir. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.