Fréttablaðið - 05.05.2011, Síða 25
FIMMTUDAGUR 5. maí 2011
Þjóðir eiga eignir. Þetta eiga allir að geta skilið, enda
almælt tíðindi, þótt öðru sé
stundum haldið fram nánast
eins og til að villa um fyrir fólki.
Halldór Laxness skildi þetta,
enda hefst Íslandsklukkan á
þessum orðum: „Sú var tíð, segir
í bókum, að íslenska þjóðin átti
aðeins eina sameign sem metin
varð til fjár. Það var klukka.“
Alþingismenn skilja þetta
svo sem sjá má á fyrstu grein
laganna um stjórn fiskveiða:
,,Nytjastofnar á Íslandsmiðum
eru sameign íslensku þjóðar-
innar.“ Gunnar Thoroddsen
prófessor, síðar varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, forsætis-
ráðherra og formaður stjórnar-
skrárnefndar 1978-1983, skildi
þetta, eins og ráða má af þeim
drögum að stjórnarskrártexta,
sem hann skildi eftir sig og lýst
er í nýrri ævisögu eftir Guðna
Th. Jóhannesson. Þar er vitnað
í tillögur Gunnars um ýmis
nýmæli í stjórnarskrá með þess-
um orðum: „Þá skuli bundið í
stjórnarskrá að „náttúruauðlind-
ir landsins“ séu „ævarandi eign
Íslendinga“ og „auðlindir hafs
og hafsbotns innan íslenskrar
lögsögu“ að eilífu „þjóðareign“.“
(bls. 545). Gunnar skildi, að
náttúru auðlindir eru samkvæmt
eðli máls þjóðareign svo sem hin
alþjóðlega mannréttindaskrá
Sameinuðu þjóðanna kveður á
um. Sama máli gegnir um ýmis
menningarverðmæti. Lítum á
nokkur dæmi.
Þingvellir, Skarðsbók
og önnur handrit
Í fyrstu grein laga um þjóðgarð-
inn á Þingvöllum frá 2004 segir
svo: ,,Hið friðlýsta land skal
vera undir vernd Alþingis og
ævinleg eign íslensku þjóðar-
innar. Það má aldrei selja eða
veðsetja.“ Ævinleg eign íslenzku
þjóðarinnar felur samkvæmt
þessari lagagrein í sér, að Þing-
velli má aldrei selja eða veð-
setja. Þetta er bersýnilega til-
gangur þjóðareignarákvæðisins.
Vilji löggjafans er skýr. Þessi
lagagrein hefur staðið óbreytt
frá 1928. Samkvæmt henni deil-
um við, sem nú erum uppi, þjóð-
garðinum með óbornum kyn-
slóðum Íslendinga.
Bankarnir keyptu Skarðsbók
á uppboði í London 1965, en
bókin hafði verið í einkaeigu, ein
fornra íslenzkra skinn handrita
svo vitað væri, og var hún
slegin bönkunum fyrir 36.000
pund eða 6,6 milljónir íslenzkra
króna. Bankarnir gáfu íslenzku
þjóðinni Skarðsbók og afhentu
ríkisstjórn Íslands hana til varð-
veizlu, eins og lýst er til dæmis í
Öldinni okkar. Bankarnir gerðu
Skarðsbók að eign allra Íslend-
inga – okkar, sem nú lifum,
og einnig ófæddra afkomenda
okkar – með það fyrir augum,
að Skarðsbók mætti aldrei selja
eða veðsetja, af því að hún er
þjóðareign.
Sama skilning er rétt að leggja
í eignarhald íslenzku þjóðarinn-
ar á handritunum, sem Danir
skiluðu Íslendingum 1971-1996
og eru geymd í Stofnun Árna
Magnússonar á Íslandi. Handrit-
in voru gjöf Dana til Íslendinga.
Við afhendingu fyrstu handrit-
anna 1971 flutti utanríkisráð-
herra Dana, Poul Hartling, síðar
forsætisráðherra, ávarp og sagði
um handritin: „Við skilum þeim
nú til Íslands, ekki vegna þjóð-
réttarlegra ákvæða, heldur sem
gjöf.“ Ávarpið birtist í Morgun-
blaðinu 22. apríl 1971. Jónas
Kristjánsson, þá forstöðumaður
Árnastofnunar, lýsti eftir því á
prenti tíu árum síðar, að senn
yrði „tímabært að kveða skýrt
á um eignarréttinn yfir þeim.“
(Heimkoma handritanna, fylgi-
rit með Árbók Háskóla Íslands
1976-79, 1981, bls. 14.)
Listasafn Einars Jónssonar
og Leifur heppni
Einar Jónsson myndhöggvari
arfleiddi íslenzku þjóðina, en
ekki ríkið eða Listasafn Íslands,
að eigum sínu og safni. Hvers
vegna þjóðina? Einstaka muni á
Þjóðminjasafninu og Listasafn-
inu geta þessi söfn væntanlega
veðsett eða selt úr fórum sínum,
ef þurfa þykir, en Þingvellir,
Skarðsbók og Listasafn Einars
Jónssonar verða hvorki veðsett
né seld. Þetta er munurinn á
þjóðareign og ríkiseign: þjóðin
á þessar eignir, ríkið varðveitir
þær. Þetta er höfuðinntak hug-
myndarinnar og gildandi laga-
ákvæða um þjóðareign eins og
Þorsteinn Gylfason prófessor
rakti í bók sinni Réttlæti og
ranglæti (1998). Þorsteinn
nefndi eitt dæmi enn. Styttan af
Leifi Eiríkssyni á Skólavörðu-
holti í Reykjavík er gjöf Banda-
ríkjanna til íslenzku þjóðarinnar
samkvæmt áletrun aftan á stöpl-
inum.
Náttúruauðlindir
og menningarverðmæti
Þjóðfundurinn, stjórnlaganefnd-
in og þjóðin hafa kallað einum
rómi eftir ákvæði um þjóðareign
á auðlindum í stjórnarskrá, og
það hafa flestir stjórnamála-
flokkar á Alþingi einnig gert.
Ætla má, að stjórnlagaráð hlýði
þessu kalli. Til álita kemur
einnig að setja í stjórnarskrána
sambærilegt ákvæði um þjóðar-
eignir, sem tilheyra menningar-
arfi þjóðarinnar, svo sem hand-
ritin. Hliðstæðan er skýr.
Menningararfur
sem þjóðareign
Í DAG
Þorvaldur Gylfason
Prófessor
Sama skilning er rétt að leggja í eignar-
hald íslenzku þjóðarinnar á handrit-
unum, sem Danir skiluðu Íslendingum
1971-1996 og eru geymd í Stofnun Árna Magnússonar
á Íslandi. Handritin voru gjöf Dana til Íslendinga.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
FÁÐU BEITTUSTU
BRANDARANA Í SÍMANN
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi