Fréttablaðið - 05.05.2011, Síða 35
baðherbergi
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2011
Áreiðanleiki, þekking og
þjónusta eru aðalsmerki
Víddar, sem býður hönnun og
gæði á heimsvísu.
„Ítalir eru fremstir meðal jafn-
ingja þegar kemur að hönnun fatn-
aðar, húsgagna, sportbíla eða ann-
ars, og eru vitaskuld líka leiðandi
á heimsvísu í flísum,“ segir Sigrún
Baldursdóttir, annar eigandi Vídd-
ar sem hefur 20 ára reynslu í sölu
flísa og þúsundir vörunúmera í flís-
um og mósaík úr gleri, marmara og
keramik á lager.
„Í Evrópu er smám saman verið
að hverfa frá hörðum stíl naum-
hyggjunnar og endurheimta í stað-
inn mýkt og hlýleika sígildra út-
færslna. Þá hafa æ fleiri hagnýta
hluti að leiðarljósi eftir að kreppti
að og þar koma flísar inn sem álit-
legur og endingargóður kostur,
auk þess sem flísar eru auðveldar
í viðhaldi og þrifum. Á sama tíma
er náttúrusteinn á hröðu undan-
haldi,“ segir Sigrún sem selur ein-
göngu hágæðaflísar frá öruggum
framleiðendum og hefur frá upp-
hafi lagt áherslu á mikið úrval
vandaðrar vöru.
Helstu flísaframleiðendur Vídd-
ar eru Mirage, Atlas Concorde, Eif-
felgres, Cesi, Blustyle og Cæsar;
allir ítalskir.
„Við tókum inn umboð fyrir
Mirage árið 1991, en fyrirtækið
hefur verið brautryðjandi í þróun
og framleiðslu flísa síðustu áratugi.
Þær hafa reynst einstaklega vel og
sem dæmi má nefna utanhúsklæðn-
ingu á veitingastað McDonalds við
Faxafen sem eftir átján ár er enn
eins og ný. Mirage-flísar hafa sann-
að sig á fjölmörgum fleiri bygging-
um eins og Eflingarhúsinu í Sæ-
túni og á Digraneskirkju, en marg-
ar af bensínstöðvum N1 eru einnig
klæddar Mirage-flísum við góðan
orðstír og reynslu,“ segir Sigrún.
Fyrir fáeinum árum hóf Vídd
sölu á þýska parketinu Meister
frá Meisterwerke, sem er eins og
nafnið bendir til, algert meistara-
verk. „Meister-parketið er sér-
staklega hannað með gólfhita í
huga og er alveg níðsterkt, en sér-
stök lakkherðing prýðir parketið en
þá er lakkið bakað með útfjólubláu
ljósi,“ upplýsir Sigrún og nefnir til
sögunnar annan þýskan risa sem
landsmenn hafa getað reitt sig á hjá
Vídd, en það er Henkel sem fram-
leiðir meðal annars lím og aðrar
vinnsluvörur.
„Meðal vinnsluefna Henkel má
nefna ryklaus lím og flot, sund-
laugafúgur og marga liti í fúgum
og kíttum; allt frá hefðbundnum
litum yfir í sterka og óvenjulega
liti. Þá má nefna ýmis efni sem taka
á sérhæfðum viðhaldsmálum, eins
og fúgustrokleðrið sem er banda-
rísk hugmynd,“ segir Sigrún sem
stofnaði Vídd ásamt Árna Yngva-
syni fyrir tuttugu árum.
Vídd er með stóran sýningar-
sal í Bæjarlind 4 í Kópavogi, þar
sem einnig er frábær aðstaða fyrir
börn, og verslun við Njarðarnes á
Akureyri, en á báðum stöðum starf-
ar fólk með áralanga starfsreynslu
á sínu sviði. Heimasíða Víddar er
www.vidd.is, þar sem finna má
gagnlegar upplýsingar og mynd-
bönd um vörurnar sem Vídd býður
upp á.
Hlýleiki í sígildum útfærslum
Sigrún Baldursdóttir og sonur hennar, Hafsteinn Árnason, hjá fjölskyldufyrirtækinu Vídd, þar sem úrval hágæða flísa, parkets og vinnsluvara er ríkulegt og spennandi.
● LISTMÓSAÍK ÚR
MURANOKRISTAL
GLERI FRÁ SICIS Þetta ít-
alska glermósaík hefur verið í
boði hjá Vídd í næstum 20 ár
og hefur verið vinsælt til gerðar
ýmis konar listaverka. Þá hefur
það líka verið talsvert notað í
baðherbergi, til að mynda and-
stæður við stærri flísar.
Sjá nánar á www.vidd.is eða á
www.sicis.com.
● FLÍSAR FRÁ HINUM ÍT
ALSKA OG LITAGLAÐA
CESI Vídd hefur boðið flísar frá
CESI á Íslandi í meira en 15 ár.
CESI er metnaðarfullt og lita-
glatt ítalskt fyrirtæki með einlit-
ar glerjaðar flísar í um 90 litum,
háglans og mattar. Flísarnar eru
í mörgum stærðum: 2,5x2,5,
5x5, 5x20, 7,5x15, 10x10, 10x20,
10x30, 15x15,20x20, 20x60 og
30x30 cm. Þetta eru svokallaðar
módúlstærðir og ganga saman í
lögn, þannig að fúgur geti stað-
ist á.
Þessa línu má skoða á www.
vidd.is eða á www.cesiceramica.
it.
M
YN
D
IR
/A
N
TO
N