Fréttablaðið - 05.05.2011, Síða 66
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR54
golfogveidi@frettabladid.is
FL
U
G
A
N
VI
SS
IR
Þ
Ú
?
Black Ghost Sunburst
Þessi útgáfa af Black Ghost flug-
unni hefur gefið mörgum góða
veiði og dýrmætar minningar.
Öngull – Legglangur
Tvinni – Svartur UNI
Haus – Silfurlituð keila með ámál-
uðum augum
Stél – Fanir úr appelsínugulum og
rauðum fönum úr hænufjöður
Vöf – Silfur UNI Tinsel
Búkur – Svört ull
Vængur – Hvítlitaður strimill úr
kanínuskinni og fáeinir þræðir af
Flashabou
Hringvöf – Fanir úr appelsínu-
gulum og rauðum fönum úr hænu-
fjöður eða Schlappen
Mynd og uppskrift af Flugan.is
Góð í urriðann
Veiði í Þingvallavatni hófst að
venju 1. maí síðastliðinn og
stendur til 15. september. Hag-
stæðast er að kaupa Veiðikortið,
sem kostar 6.000 krónur. Einnig
er hægt að kaupa einn dag á
1.500 krónur fyrir manninn. Frítt
er fyrir börn í fylgd með full-
orðnum ef minnst eitt leyfi er
keypt.
Elli- og örorkulífeyrisþegar fá
veiðileyfi fyrir sumarið endur-
gjaldslaust í þjónustumiðstöð.
Minnt er á að einungis er heim-
ilt að nota flugu, spún og maðk
sem agn við veiðar í Þingvalla-
vatni, innan þjóðgarðsins á Þing-
völlum. Notkun annars agns er
alfarið óheimil. Stangveiði má
aðeins stunda frá landi og notkun
hvers konar báta eða flota er
bönnuð.
Veitt frá 1. maí til 15. sept.
Makrílveiði er
alfarið óheimil
114 METRA dýpi er þar sem Þingvalla-vatn er dýpst. 700 TONN var niðurstaða þeirra sem giskuðu á magn veiðanlegs silungs í vatninu.
„Ég hef veitt í Þingvallavatni frá því
ég gat staðið í lappirnar og valdið
stöng,“ segir Sigurður G. Tómasson
útvarpsmaður. „Vatnið á sér enga
hliðstæðu í heiminum í endalausum
fjölbreytileika sínum. Það er gjöfult
og óendanlega fallegt.“
Minniháttar tímamót eru í lífi
Sigurðar því að í fyrsta skipti hefur
hann tekið að sér að að miðla vitn-
eskju sinni um grundvallaratriði
fluguveiðanna. Vettvangurinn er
Tómstundaskólinn í Mosfellsbæ. Á
skólabekk hjá Sigurði fá þátttakend-
ur á námskeiðinu annars vegar að
heyra eitt og annað um hvernig má
tileinka sér listina að kasta en einn-
ig sitthvað um stangir, línur, tauma
og flugur. Þá segir Sigurður frá
Þingvallavatni og leyndardómum
þess. Hápunktur fræðslunnar er að
grænjaxlarnir fá um helgina að taka
nokkur köst á bökkum vatnsins sem
hefur átt hug og hjarta kennarans
frá því hann man eftir sér.
„Ástæðan fyrir því að ég þekki
Þingvallavatn vel er að ég er ætt-
aður úr Þingvallasveitinni og pabbi
var mikill veiðimaður. Hann tók
mig fyrst með þegar ég var fimm
ára og í gegnum tíðina hef ég veitt
langmest í Þingvallavatni.“ Lengi
fór Sigurður til veiða í Þingvalla-
vatni oft í viku, eða „annan hvern
dag eða oftar“, eins og hann orðar
það. „Ég fór oft eftir vinnu, enda
best að veiða í vatninu snemma á
morgnana og á kvöldin.“
Sigurður hefur jöfnum höndum
veitt bleikju og urriða, og segist
aldrei koma að vatninu með það í
huga að finna fisk eftir tegundum.
„Ég hef sett í urriða sem fór með
línuna eins og hún lagði sig og sleit
hana svo eins og tvinna. Ég sá fisk-
inn aldrei. En ég hef auðvitað veitt
fleiri bleikjur, eins og gefur að
skilja. Þær eru fleiri.“
Sigurður segir eitt mesta
skemmdarverk í íslenskri náttúru
hafa verið framið þegar Sogið var
stíflað í virkjunarframkvæmdum í
lok sjötta áratugarins. Hann segir
erfitt til þess að hugsa hve illa hafi
verið gengið um vatnið og umhverfi
þess. „Þá voru stærstu hrygningar-
stöðvar urriðans eyðilagðar. Með
þessum afglöpum gengu menn
nærri stærsta og stór vaxnasta urr-
iðastofni í Evrópu, ef ekki í heim-
inum. Skordýraeitri var meira að
segja stráð á bakka Sogsins, sem
gefur góða mynd af meðvitundar-
leysinu sem þá ríkti,“ segir Sig-
urður, sem hefur skrifað um Þing-
vallavatn og furður þess. Má benda
á grein hans um vatnið sem aðgengi-
leg er á arvik.is. Þar segir: „Við, sem
nú lifum, erum gæslumenn þeirrar
náttúruperlu sem Þingvallavatn er
og verðum að skila því óspjölluðu til
komandi kynslóða.“
Í þeim anda felst vonarglæta í því
að urriðastofninn hefur hjarnað við
á undanförnum árum, en Sigurður
hefur orðið vitni að því þegar urr-
iðinn gerir sig líklegan til hrygn-
ingar í Öxará. „Þá er að sjá urriða
í tuga vís svo sporður er við sporð.
Risafiskar sem tilbúnir eru að gera
skyldu sína. Slík sjón gefur von um
að þessi náttúruperla mæti skilningi
þeirra sem um hana fara höndum.
Þetta eru verðmæti sem við
megum ekki missa,“ segir
Sigurður að lokum.
svavar@frettabladid.is
Náttúruperla án hliðstæðu
Sigurður G. Tómasson er helst þekktur sem útvarpsmaður en færri vita að hann er mikill áhugamaður um
stangveiði. Sigurður leiðbeinir nú Mosfellingum í listinni að kasta flugu – með Þingvallavatn í huga.
VIÐ VATNSKOT Í ÞINGVALLAVATNI Fáir sem á annað borð veiða á stöng geta staðist fegurð vatnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Nei, það hvarflaði ekki að mér
að rota þennan fisk. Félagi minn
sagði að þessi yrði fallegur upp-
stoppaður en það kom aldrei til
greina. Ég hefði aldrei getað
lifað með því að drepa þennan
fisk,“ segir Tómas Zahniser, sem
veiddi 23 punda urriða við opnun
Þingvallavatns hinn 1. maí. Fisk-
urinn er einn stærsti urriði sem
veiðst hefur í vatninu um árabil
og nær örugglega þarf að leita
langt aftur til að finna jafn stóran
fisk sem næst á land með flugu í
kjaftvikinu.
„Þetta er í raun hrikaleg lífs-
reynsla. Þessu má helst líkja
við reiptog. Fiskurinn stjórnaði
þessari viðureign lengst af og
það skipti engu hvað ég tók fast á
móti. Ég var í raun bara heppinn
að hann ákvað að hægja á þegar
hann var kominn með nær alla
línuna út af hjólinu,“ segir Tómas.
Tómas segist ekki gera sér
almennilega grein fyrir hvað
viðureignin stóð lengi. „Ég missti
tímaskynið en ef ég ætti að giska
þá voru þetta um tuttugu mínút-
ur, kannski hálftími.“
- shá
23 punda urriði veiddist á flugu í Þingvallavatni:
Best lýst sem reiptogi
STÓRKOSTLEGUR FISKUR Hængurinn
var 94 sentimetrar á lengd og 59 að
ummáli. Hann var 23 pund og tók
afbrigði af flugunni Black Ghost.
... að þegar mest var veitt af
murtu í Þingvallavatni voru
tekin milli 80 og 90 tonn á ári.
Niðursuðuverksmiðjan ORA
sauð murtuna niður og Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna
seldi hana frysta á Japans-
markað. Eftir að markaðurinn
tapaðist hætti þessi vinnsla og
veiðin hefur ekki verið umtals-
verð síðan.
... að þrjár fisktegundir lifa í
vatninu, urriði, bleikja og horn-
síli. Af bleikjunni eru fjögur
afbrigði. Af hornsíli eru tvö.