Fréttablaðið - 05.05.2011, Qupperneq 70
5. maí 2011 FIMMTUDAGUR58
„Þetta hefur þróast út í það að Sky
hefur sett sig í samband við mig
og athugað hvort ég væri á laus
með tilliti til æfinga- og leikja-
plans,“ segir Eiður Smári Guð-
johnsen, leikmaður enska úrvals-
deildarliðsins Fullham, í samtali
við Fréttablaðið. Eiður fékk lof-
samlega dóma á samskiptasíðunni
Twitter eftir frammistöðu sína
sem gestur í myndveri Sky Sports
fyrir og eftir leik Barcelona og
Real Madrid í meistaradeild Evr-
ópu á þriðjudagskvöld. Eiður lék
auðvitað bæði undir stjórn Pep
Guardiola og José Mourinho hjá
Barcelona og Chelsea.
Eiður þótti ákaflega hnyttinn í
tilsvörum, varpaði fram skemmti-
legum staðreyndum um leikmenn
Barcelona og þá hrósuðu enskir
twitterar honum í hástert fyrir
enskukunnáttuna.
Eiður getur ekki neitað því að
sjónvarpsstarfið kitli eilítið þegar
fótboltaferlinum ljúki, hann hafi
gaman af þessu. „Þetta byrjaði
aðeins í fyrra, þegar ég var hjá
Tottenham. Þá báðu þeir mig um
að koma þegar Barcelona var
að spila. Ég ákvað bara að slá
til, prófa og sjá eitthvað nýtt því
þetta var ekkert sem ég var búinn
að spá í að gera. Menn voru bara
almennt ánægðir með mig eftir
þá frammistöðu og hafa hringt
af og til og athugað hvort ég væri
laus.“ Fyrrverandi landsliðsfyrir-
liði Íslands tekur þó skýrt fram
að takkaskórnir góðu eigi eftir að
vera á grasinu í dágóðan tíma enn,
ferillinn sé síður en svo kominn á
endastöð. „Ég verð hins vegar ekki
í fótbolta endalaust og ef það er
eitthvað sem ég kann og veit eitt-
hvað um þá er það fótbolti.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa aðrar sjónvarps-
stöðvar í Bretlandi sóst eftir
kröftum Eiðs og bandarískar
líka. Íþróttastöð Fox var þannig
með stutt innslag í hálfleik þar
sem Eiður var í viðtali þannig að
hróður leikmannsins fyrir fram-
an tökuvélarnar berst víða. Það
virðist því aðeins vera að stytta
upp hjá Eið eftir erfitt tímabil því
hann hefur einnig spilað síðustu
þrjá leiki Fullham í úrvalsdeild-
inni eftir að verið fastur á bekkn-
um hjá Stoke fyrir áramót. „Þetta
hefur verið mjög erfitt, algjört
leiðindatímabil, ef ég á að vera
alveg hreinskilinn en nú er maður
farinn að brosa á ný,“ segir Eiður.
Hann tekur þó engu sem gefnu og
býr á hóteli þar til hans mál eru
komin á hreint.
freyrgigja@frettabladid.is
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
Kvikmyndaleikarinn Daniel
Craig, betur þekktur sem James
Bond, spurði um bókina Sjálf-
stætt fólk eftir Halldór Laxness
í bókabúð í bænum Oswestry í
Shropshire-sýslu á Englandi fyrir
skömmu.
Craig kom starfsfólki og við-
skiptavinum búðarinnar heldur
betur í opna skjöldu þegar hann
leit þar við. Ein af starfskonunum,
Louisa Jones, sagði að það hefði
verið óraunverulegt að líta upp og
afgreiða þennan fræga leikara.
„Hann kom í búðina í síðustu viku
og ég trúði því ekki þegar ég leit
upp og sá hann,“ sagði hún. „Þetta
er viðkunnanlegur náungi, mjög
venjulegur. Ég trúi því ekki að
ég hafi afgreitt hann,“ bætti hún
við. „Þetta var mjög spennandi
fyrir okkur. Hann er með æðis-
lega rödd og við höfum ekki enn
jafnað okkur á þessu.“
Craig keypti vísindaskáldsög-
una Surface Detail eftir Iain M.
Banks og spurði um Sjálfstætt
fólk, sem var ekki til. Bókabúð-
in hefur þegar brugðist við fyrir-
spurn Craigs og hefur núna redd-
að sér eintaki í von um að hann
snúi aftur til að kaupa hana.
Faðir Craigs, Tim, býr skammt
frá Oswestry, í bænum Whitting-
ton, og talið er að leikarinn hafi
verið í heimsókn. „Þegar hann
gekk út úr búðinni vorum við að
spá í að fá mynd af honum en vild-
um frekar vera svöl og kurteis.
Hann er líklegri til að koma til
baka ef við erum kurteis,“ sagði
Jones.
Bond bað um Sjálfstætt fólk
„Ég henti öllum fötunum sem ég var í við
tökurnar við Tsjernóbyl – tók enga áhættu,“
segir Davíð Charles Friðbertsson.
Davíð og Ólafur Jónsson, félagi hans,
luku ásamt hinum þýska Marcusi Schwen-
zel við stuttmyndina Seven Years of Winter í
lok mars. Myndin gerist að hluta í nágrenni
Tsjernóbyl-kjarnorkuversins í Úkraínu og
var hún frumsýnd í Berlín 19. apríl og í
Árósum 26. apríl, þegar 25 ár voru liðin frá
Tsjernóbyl-slysinu.
„Þetta var mjög sérstök upplifun,“ segir
Davíð. „Það er allt tómt þarna, en einhver túr-
ismi í gangi. Svo veit maður ekki hvort það er
sagt satt og rétt frá geislamengunni á svæð-
inu. Maður fer inn á eigin ábyrgð.“
Myndin hefur vakið talsverða athygli, sér-
staklega í kjölfar náttúruhamfaranna í Japan
sem ollu stóru kjarnorkuslysi. Myndin fékk
umfjöllun í hinu þýska Der Spiegel, en Davíð
segir fólk hafa verið búið að gleyma Tsjernó-
byl. „Svo gerðist þetta í Japan og þá fóru fjöl-
miðlar að sýna áhuga,“ segir hann.
Handrit myndarinnar vann til fjölda verð-
launa og fengu þeir styrk upp á 100.000 evrur
frá þýska fyrirtækinu Solar World. Davíð
býst við að því að þeir sýni myndina hér á
landi, en er ekki viss hvenær hún fer á flakk
um heiminn. „Við erum að spá í að bíða aðeins
og klippa hana betur. Við fengum ákveðinn
frest frá styrktaraðilum til að klára myndina
eftir að við tókum hana upp,“ segir hann. Þeir
félagar eru með enga aðra en Valdísi Óskars-
dóttur með sér í liði við klippinguna. - afb
Tóku upp stuttmynd við Tsjernóbyl
VIÐ TSJERNÓBYL Davíð og Ólafur við hið fræga parísarhjól
í draugaborginni Pripyat í Úkraínu.
BAÐ UM LAXNESS Daniel Craig óskaði
eftir eintaki af Sjálfstæðu fólki eftir
Halldór Laxness en fékk ekki.
„Ég horfi á American Idol og
How I Met Your Mother og
svo stelst maður til að horfa á
Grey´s Anatomy ef konan er að
horfa líka. Síðan horfi ég á allar
íþróttir sem ég kemst í tæri við.“
Sigurður Hrannar Hjaltason,
flugumferðar stjóri og leikari.
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
A
Ð
EI
N
S 2.490 kr.
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
- Beikon og eggjasalat í fínu brauði
- Tikka masala kjúklingur í tómatbrauði
- Reykt skinka og cheddar ostur í grófu brauði
EIÐUR SMÁRI: SJÓNVARPSSTÖÐVAR SÝNA ÁHUGA
Getur hugsað sér sjón-
varpsferil eftir fótboltann
EFTIRSÓTTUR Eiður Smári hefur sýnt flotta takta sem þulur hjá Sky og fór á kostum
í beinni útsendingu fyrir leik Barcelona og Real Madrid í meistaradeild Evrópu á
þriðjudagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
FÁÐU BEITTUSTU
BRANDARANA Í SÍMANN
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi