Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 74
19. maí 2011 FIMMTUDAGUR50
golfogveidi@frettabladid.is
Tugþúsundir laxa stefna
að strönd Íslands í leit að
uppeldisánni sinni. Veiði-
menn bíða í ofvæni vitandi
að stutt er í ævintýri við
einhverja af þeim rúmlega
áttatíu ám hér á landi sem
fóstra lax í verulegu magni.
Verndarsjóður villtra laxastofna
(NASF), sem Orri Vigfússon veit-
ir forstöðu, hefur dregið upp þessa
mynd um hvar í hafinu laxinn er í
skjóli frá manninum, meðal ann-
ars þar sem samningar NASF
hafa tryggt að netaveiði hefur
verið aflögð. Kortið sýnir einnig
þá staði sem villtir laxastofnar
eru í mestri hættu, að mati Orra
og hans manna.
Stórtækar fiskveiðar eru stund-
aðar á stórum svæðum þar sem
lax heldur til í hafinu. Veiðarnar, í
Norðursjó og Norðaustur-Atlants-
hafi, ná til sandsílis og loðnu fyrir
fiskimjölsiðnað. Uppsjávarveiðar
eru einnig á makríl og síld á hluta
af þessu svæði, þar sem laxinn er í
fæðuleit í efri lögum sjávar. Marg-
ir óttast að við veiðarnar sé drep-
inn lax af ýmsum stærðum sem
meðafli við veiðar áðurnefndra
tegunda.
NASF, og fjölmargir aðrir, full-
yrðir að fiskeldisiðnaðurinn, og þá
sérstaklega í Noregi, valdi sjúk-
dómum í villtum laxi og að lús
berist frá sjókvíum í göngufisk.
GLÆSIFISKUR „Eins og að togast á við jarðýtu,“ segir Hinrik um viðureignina. „Enda
slagar hann upp í lambsskrokk að þyngd.“ MYND/HINRIK
VEIÐI Hinrik Óskarsson stangveiði-
áhugamaður veiddi tuttugu punda
Öxarárurriða í Þingvallavatni á
dögunum. Urriðinn er sá elsti sem
veiðist eftir merkingu, en númer-
að plastmerki var fest í fiskinn í
Öxará fyrir níu árum. Fiskurinn
var þá þegar sjö ára, svo hann er
sextán ára í dag, en Hinrik gaf
glæsifiski sínum líf.
Urriðinn, sem Hinrik veiddi
á flugu, var 92 sentimetra löng
hrygna. Miðað við holdafar fisks-
ins af myndum að dæma hefur
hann verið tíu kíló hið minnsta að
sögn sérfróðra, en Veiðimálastofn-
un segir frá á heimasíðu sinni.
Hrygnan veiddist fyrst í Öxará
haustið 2002 en var sleppt aftur
merktri í ána. Hún var þá fimm
pund að þyngd.
- shá
Veiddi elsta merkta urriða sem sögur fara af:
Urriði merktur 2002
Alma Rún
Alma Rún er ein af betri sjó-
bleikjupúpunum. Flugan var
fyrst hönnuð við Hlíðarvatn og
hefur gefið góðan afla þar í vor.
Uppskrift.
Öngull - Hefðbundinn votflugu-
öngull
Tvinni - Svartur UNI 8/0
Stél - Appelsínugult Glo-Brite
Búkur - Svart Vinyl Rib Medi-
um
Haus - Gullkúla og appelsínu-
gulur tvinni vafinn framan við.
Uppskrift og mynd af Flugan.is
Góð í sjóbleikjuna
FL
U
G
A
N
„Veiðimenn voru mjög ánægðir
og tókst þetta það vel að við erum
strax byrjuð að hugsa um þetta
sem fastan lið,“ segir Stefán Sig-
urðsson hjá Lax-á, sem um síðustu
helgi bauð tilvonandi veiðimönnum
í Ytri-Rangá og Eystri-Rangá upp
á veiðileiðsögn á bökkum ánna.
Stefán segir alls um tuttugu
áhugamenn hafa mætt á sunnu-
deginum við Eystri-Rangá. „Byrj-
að var uppi á svæði níu, eða efsta
veiðistað, og síðan farið niður ána,
svæði fyrir svæði, og endað við
ármót Eystri-Rangár og Þverár,“
segir Stefán, sem kveður yfirferð-
ina hafa tekið um fimm klukku-
stundir.
Sen fyrr segir býst Stefán við
að leikurinn verði endurtekinn.
„Enda er það alveg einnar veiði-
ferðar virði að fá svona rennsli
með staðarhaldara sem er við veið-
ar alla daga sumarsins í viðkom-
andi á,“ segir hann. - gar
Vorleiðsögn í Rangárnar sögð einnar ferðar virði:
Fastur liður við bakkana
VIÐ EYSTRI-RANGÁ Ólafur Björnsson
yfirleiðsögumaður sýnir mannskapnum
aðstæður við Móbakka í Eystri-Rangá.
Hættur hafsins eru margar
Eins að erfðablöndur frá eldislaxi
sem sleppur úr kvíum ógni gena-
mengi villtra laxa sem hefur þró-
ast í milljónir ára og gerir fiskn-
um kleift að fara um langan veg
frá uppeldisstöðvum, og allt þar til
hann gengur til baka í árnar.
Hagsmunirnir eru miklir en
eldismenn bera fyrir að söguleg
lægð margra laxastofna verði ekki
rakin til eldis sérstaklega. Er nefnt
til sögunnar fjölmargt annað eins
og mengun, virðingarleysi við upp-
eldisárnar sem eyðileggja hrygn-
ingarstaði og veiðiálag. - shá
DVÖL LAXINS Í ATLANTSHAFINU Þessi skýringarmynd dregur fram hvar laxinn lifir í hafinu og hvaða hættur steðja að honum áður
en hann snýr til baka í árnar. MYND/NASF
Örugg svæði
Nokkuð af laxi veiðist sem meðafli
Laxveiði í net.
Grænland
Ísland
Færeyjar
Nýfundnaland
Kanada
Bandaríkin
Írland
Skotland
England
Wales
Frakkland
Spánn
Þýskaland
Danmörk
Svíþjóð
Noregur
Loftlagsbreytingar og fæðu-
skortur hefur leitt til þess að
lax leitar sífellt norðar.
NASF – Staðan í hafinu sumarið 2011
Samningar hafa verið gerðir við 85 prósent
allra sem veiða villtan lax í net.
*Þessi veiði er laxveiði í net þar sem net og lína veiða lax óháð því af
hvaða stofni fiskurinn er; eða tekinn er lax úr mörgum ám. Þetta þýðir að
þessar veiðar drepa lax úr ám þar sem stofninn er fyrir neðan sjálfbær
mörk eða úr ám þar sem lax er jafnvel í útrýmingarhættu.
Netaveiði Norðmanna drepur
lax sem er á leið sinni í rúss-
neskar eða finnskar ár.
Net sem taka
lax sem leitar í
sænskar ár auk
laxa frá ám í
öðrum löndum
á þessu svæði í
Evrópu.
Reknet hafa
verið notuð
á þessu
svæði, og
drepa m.a.
lax.
Skotar stunda netaveiði
sem tekur lax víða að.
Frá fiskeldi berst laxalús og sjúkdómar
sem skaða villtan lax. Því er haldið fram
að fiskeldi sé aðalástæða þess að stofnar í
norskum ám hafa orðið illa úti.
NASF styður fram-
kvæmdir við að fjarlægja
stíflur í þekktum lax-
veiðiám.
Fiskeldi í Fundy-flóa er talið
hafa mjög neikvæð áhrif á
villta laxastofna á svæðinu.
Örugg svæði
Nokku af laxi veiðist sem meðafli
Laxveiði í net*
NASF – Staðan í hafinu sumarið 2011
Samningar hafa verið gerðir við 85 prósent
llra sem veiða villtan lax í net.
Atlantshafslaxinn finnst við strendur Norður-
Ameríku. Hann lifir við suður- og austurströnd
Grænlands, umhverfis Ísland og Færeyjar
og við Bretlandseyjar. Atlanshafslaxinn finnst
einnig við strendur meginlands Evrópu, allt frá
Portúgal norður á Kólaskaga í Rússlandi.
Fréttavefurinn vísir.is hefur
opnað síðu fyrir stangveiðimenn
þar sem fjallað verður um veiði
frá ýmsum sjónarhornum.
Þessi þjónusta fellur undir
íþróttaefni á visir.is og má þar
finna veiðifréttir úr öllum áttum,
hvort sem um er að ræða lax- og
silungsveiði, veiðar á sjóstöng
eða skotveiðar.
Umfjöllun um
veiði á visir.is
49 550 PRÓSENT mælist veiðiálagið á laxastofn Gljúfurár í Borgarfirði, samkvæmt upp-
lýsingum úr nýjum teljara í ánni.
LAXAR gengu í ána sumarið 2010
og veiddist 271 þeirra.