Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 58
19. maí 2011 FIMMTUDAGUR34
Bækur ★★★★
Blindir fiskar
Magnús Sigurðsson
Uppheimar
Gegnum líflínuna sjálfa
Magnús Sigurðsson hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
2008 fyrir fyrstu ljóðabók sína Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu og
hafði árið á undan gefið út þýðingar sínar á
ljóðum eftir Ezra Pound, Söngvarnir frá Písa.
Blindir fiskar bera þess glögg merki að hann
hefur stúderað Pound og fleiri risa í ljóðlist
nákvæmlega og lært af þeim. Kannski má
kalla þetta gáfumannaljóð, en fyrst og fremst
eru þetta þaulhugsuð og þaulunnin ljóð sem
markast af hefðinni án þess að bera nokkurn
keim af stælingum.
Magnús undirstrikar þessa tengingu við
ljóðahefðina með kaflanum Fimm kveðjur +
sjálfsmorð, þar sem hann tekur orð þekktra
skálda og spinnur í kringum þau, auk þess
sem lokaljóðið í kaflanum er myndræn
lýsing á sjálfsmorði Virginiu Woolf árið 1941.
Bókinni er skipt upp í fjóra kafla sem hver
ber sitt sérkenni, fyrsti kaflinn og sá síðasti,
sem báðir eru nafnlausir, kallast á og á milli
er skotið fyrrnefndum kafla um orð skálda
og kaflanum Smáljóð. Undiraldan er nokkuð
þung á hófstilltan hátt, hér er ekki gantast með byrði mannlífsins eða
nálægð dauðans. Maðurinn er einn í glímunni við eigin hugsanir og jafnvel í
fegurðinni miðri skýtur treginn og söknuðurinn upp kollinum:
suðurglugginn
rósirnar
undir skjólveggnum
í vari fyrir
norðangjósti
og gestafiðrildið
bakvið blúndugluggatjöldin
sem boðar komu allra
nema þín
Það sem hrífur mann mest við Blinda fiska er beiting tungumálsins og
virðingin fyrir því. Ekkert orð er valið af handahófi og ekki bruðlað með þau
heldur, stíllinn er meitlaður og knappur, myndirnar beittar og hugsunin skýr.
Barátta mannsins við hlekki hversdagslífsins og vitundin um eigin dauðleika
eru meginstef, en fegurðin alltaf skammt undan. Blýantarnir sem skrá hinar
dapurlegu hugsanir eru þrátt fyrir allt sólgulir og í draumum næturinnar er
ljóðmælandinn
svo fiðrildaléttur í spori
á baðskýlu
með sólhlíf
og blóðrauðan kokteil
Blindir fiskar er hvalreki á fjörur ljóðaunnenda, sönnun þess að ljóðið er við
góða heilsu, þrátt fyrir áralangar andlátsspár, og fyllilega þess megnugt að
koma til skila hvaða hugsun og tilfinningu sem vera skal. Magnús Sigurðs-
son hefur stimplað sig inn sem ljóðskáld sem vert er að hlusta á og fylgjast
með í framtíðinni.
Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Þaulhugsuð og þaulunnin ljóð sem tala bæði til heilans og
hjartans og ættu að gleðja alla ljóðaunnendur.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 19. maí 2011
➜ Tónleikar
20.00 Hljómsveitin Dúndurfréttir heldur
sína árlegu vortónleika í Austurbæ í
kvöld kl. 20. Lög Led Zeppelin, Deep
Purple, Pink Floyd og fleiri verða tekin
fyrir. Aðgangseyrir er kr. 2.500.
20.30 Jazzhátíð Garðabæjar stendur
frá 19.-22. maí. Opnunartónleikar verða
haldnir í kvöld kl. 20.30 í Fjölbrautaskóla
Garðabæjar. Tríó Björns Thoroddsen
spilar. Aðgangur ókeypis.
20.30 Vortónleikar Reykjalundarkórs-
ins fara fram í Guðríðarkirkju í kvöld kl.
20.30. Fjölbreytt efnisskrá. Miðaverð kr.
1.500 en kr. 1.000 fyrir eldri borgara. Frítt
fyrir yngri en 12 ára. Miðar seldir við hurð.
22.00 Hljómsveitin Ensími kemur fram
á Faktorý í kvöld. Spiluð lög af öllum
plötum Ensími. Húsið opnar kl. 21 og
hefjast tónleikarnir kl. 22. Miðaverð kr.
1.500 við hurð. Aldurstakmark 18 ára.
➜ Sýningar
13.00 Myndlista- og handverkssýn-
ing eldri borgara í Kópavogi, verður í
félagsheimilinu að Gullsmára 13 næst-
komandi laugardag. Sýningin hefst kl.
13. Vöfflukaffi á góðu verði.
20.00 Kramhúsið býður til kraftmikillar
danssýningar í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20.
Boðið verður upp á magadans, bolly-
wood, afró, break, hiphop og nútíma-
dans. Miðaverð er kr. 1.500. Miðasala fer
fram á midi.is og tjarnarbio.is
Tíu nemendur útskrifast í fræðum og fram-
kvæmd frá Listaháskóla Íslands í vor. Í tilefni
af því sýna allir útskriftarnemarnir lokaverk-
efni sín frá 21.-27. maí. Þetta er þriðji árgang-
urinn sem útskrifast af brautinni frá því að hún
var sett á laggirnar haustið 2005.
Fræði og framkvæmd er hugsað sem vett-
vangur fyrir bæði fræðilegar og listrænar
rannsóknir á leiklist. Námið er því jöfnum
höndum fræðilegt og verklegt þar sem rýnt er
í sögu, eðli, hlutverk og mörk leiklistarinnar og
snertifleti við aðrar listgreinar.
Nánari upplýsingar um verkin og sýningar-
tíma má finna á lhi.is.
Útskriftarárgangur sýnir lokaverkefni
LOKAVERKEFNI
Útskriftarnemar í fræðum og framkvæmd:
Anna María Tómasdóttir: „Þér er boðið …“
Aude Busson: Svörður fyrir sálina
Ásdís Þórhallsdóttir: Moskva eftir Kristínu
Ómarsdóttur
Björn Leó Brynjarsson: Þurfum Tom Collins
Halldór Halldórsson: Tortímandi
Ingibjörg Huld Haraldsdóttir: Spuni, eða
Kamelljón fjárhirðisins eftir Eugéne Ionesco
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir: Dagskrá um
eldingar
Sigríður Jónsdóttir: L.Í.N. – Lítið, í niðurníðslu.
Heimildar(leysis)leikrit
Tyrfingur Tyrfingsson: Grande
Ugla Egilsdóttir: Auður ÚTSKRIFTARÁRGANGURINN Tíu útskriftarnemar sýna jafn mörg lokaverkefni á næstu dögum. Þetta er í þriðja sinn
sem nemendur útskrifast af braut fræða og framkvæmdar við Listaháskóla Íslands.
ÓKEYPIS AÐGANGUR
já nánar um dagskrá á
www.gardabaer.is
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ
KL. 20:30 URÐARBRUNNUR
Hátíðarsalur Fjölbrautaskólans í Garðabæ
GÍTARVEISLA GARÐABÆJAR
Tríó Björns Thoroddsen
og japanska gítarhetjan
Kazumi Watanabe
Opnunaratriði
Hilmar Jensson
& Ómar Guðjónsson dúó
19. - 22. MAÍ 2011
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ
KL. 14:00 JÓNSHÚS
félags- og þjónustumiðstöð v. Strikið 6
Guitar Islancio
KL. 20:30 KIRKJUHVOLL
safnaðarheimili Vídalínskirkju
ASA tríó
Mafía ríkisins
LAUGARDAGUR 21. MAÍ
KL. 20:30 KIRKJUHVOLL
safnaðarheimili Vídalínskirkju
Nikolaj Bentzon
sóló og kvartett
SUNNUDAGUR 22. MAÍ
KL. 20:30 KIRKJUHVOLL
safnaðarheimili Vídalínskirkju
Anna María Björnsdóttir
& hljómsveit
HILMAR JENSSON &
ÓMAR GUÐJÓNSSON