Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 54
19. maí 2011 FIMMTUDAGUR30 BAKÞANKAR Sigríðar Víðis Jónsdóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Nei, nei nei! Hann fórnar peðinu á C8. Nú er Gagorin í vondum málum! Ívar Þór, þetta gengur ekki Nei, ég veit! Hann er að opna vörnina upp á gátt hjá sér og drottningin er algjörlega óvarin. Við göngum ekki. Við komumst hvorki lönd né strönd! Hvað ertu að tala um? Við erum að fara til Prag á EM í skák í næstu viku. Já... en. Ég hef vonandi ekki keypt hesta og riddarabún- inga bara upp á grínið? Nei, við verðum að sjá hvernig það kemur út. Hahahah! Ég veit. Já! Ég líka. Nei. Svikinn héra. Í alvöru! Palli, þegar við héldum að þú vildir borða með Söru þá … Bíddu, það er einhver frekja að trufla mig. Dómsdagsspá lesblindra Engir farsímar? Ekkert fjölvarp? Ekkert DVD? Engar fartölvur? Engir tölvuleikir? Ef þú vilt vita hversu gömul mamma og pabba eru þá skaltu bara spyrja þau um æsku þeirra. Vá! Þetta er eins og að uppgötva risa- eðlu í stofunnu hjá sér! Hey! LÁRÉTT 2. sjávardýr, 6. hljóm, 8. innanfita í dýrum, 9. endir, 11. aðgæta, 12. mokuðu, 14. digurmæli, 16. í röð, 17. kyrra, 18. annríki, 20. mun, 21. faðmlag. LÓÐRÉTT 1. fita, 3. 999, 4. skáldsaga, 5. bar, 7. árdegi, 10. sönghús, 13. drulla, 15. erta, 16. höld, 19. nudd. LAUSN LÁRÉTT: 2. fisk, 6. óm, 8. mör, 9. lok, 11. gá, 12. grófu, 14. grobb, 16. tu, 17. róa, 18. önn, 20. ku, 21. knús. LÓÐRÉTT: 1. tólg, 3. im, 4. sögubók, 5. krá, 7. morgunn, 10. kór, 13. for, 15. baun, 16. tök, 19. nú. Endinn á mér er nú Hálfsársuppgjör heimilisins liggur fyrir. Með því að eiga ekki bíl hef ég sparað 639.000 krónur frá því í fyrrahaust. Hvert ætti ég að fara í sumar fyrir pen- ingana? ÉG ER búin að spara svo mikið á því að kveikja ekki í laununum mínum við bensín- dæluna að ég gæti auðveldlega leigt mér bíl til að aka hringinn í júlí, skutlast nokkra hringi ef því er að skipta. Leigt jeppa, tjald- vagn, fellihýsi, húsbíl – það má ýmis- legt gera fyrir upphæðina. Síðan er líka hægt að nota skemmtilegt fyrirbæri sem er 20 milljóna króna vagn með launuðum bílstjóra og heitir rúta. Í SUMAR ætla ég að fara til lands sem mörg hundruð þúsund manns heimsækja á ári hverju. Flestir flykkjast þangað út af náttúrunni – sem er alveg geggjuð. Ótrúlegar andstæður þarna, mjög sérstök kvöldbirta og fullt af ósnortnu landi þar sem ekki er netsam- band og allt þetta rugl sem gerir mann svo víraðan allan vetur- inn. Magnaðar perlur þarna: Á Íslandi. Í HREINSKILNI sagt eru íslensku vetrarkvöldin alltof dimm og drungaleg til að ég vilji fara til útlanda í lengri tíma á sumrin. Eftir margra mánaða myrkur tími ég einfaldlega ekki missa af björtu sumarnóttunum. Halló? Glætan. Flestir Íslendinga vinna auk þess innivinnu og sjálf tilheyri ég þeim morkna og loftlausa hópi. Eins og gefur að skilja eyði ég vetr- unum því að mestu leyti … inni við. Þess vegna er frábært að vera úti við á sumr- in. Og þá má alveg rigna mín vegna. Ég nenni ekki heldur að æsa mig yfir roki og hagléli og hvað þetta allt heitir sem auð- veldlega getur komið í hausinn á fólki um hásumar hér á landi – bara að maður fái nógu mikið súrefni eftir allt inniloftið um veturinn. ÍSLENDINGAR eru duglegir við að hreykja sér af náttúrunni sinni og selja hugmyndina um hana til erlendra ferða- manna. Um daginn var ég spurð af einum slíkum hversu duglegir Íslendingar væru við að njóta náttúrunnar sem aðrir ættu að verða svona „inspired by“. Fara sem sé í styttri og lengri göngur, hjóla um landið, skoða það, hlusta á þögnina uppi á hálend- inu, taka inn ferska loftið? Ég ranghvolfdi í mér augunum og sagði að íslenska þjóðin væri sko mjög dugleg við það. ÞEGAR hann var farinn áttaði ég mig á að ég hafði ekki græna glóru um þetta. Hvort Íslendingar væru eitthvað sérlega dugleg- ir við að nýta sér það sem landið hefði upp á að bjóða og njóta náttúrunnar. Inspired by 639.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.