Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 10
19. maí 2011 FIMMTUDAGUR10 KEPPTI Í SKEGGPRÝÐI Stoltur þátt- takandi í heimsmeistarakeppni skeggprúðra sem haldin var í Þránd- heimi í Noregi um helgina. Alls kepptu 163 menn frá fimmtán löndum um það hver væri með flottasta skeggið. NORDICPHOTOS/AFP SJÁVARÚTVEGUR Útflutningsverð- mæti sjávarafurða árið 2010 nam 220,5 milljörðum króna og jókst um tíu prósent frá fyrra ári. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Hagstofu Íslands sem ber heitið „Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávaraf- urða 2010“. Fram kemur í tilkynningu Hag- stofunnar að í tölunni séu teknar saman útflutningstölur og birgða- breytingar sjávarafurða. Af heildarútflutningi sjávar afurða fóru 73 prósent til Evrópska efnahagssvæðisins, 9,1 prósent til Asíu og 5,3 prósent til Norður- Ameríku. „Framleiðslan mæld á föstu verði jókst um 6 prósent. Flutt- ar voru út sjávarafurðir að verð- mæti 220,5 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 5,7 prósent en dróst saman í magni um 5,5 prósent,“ segir þar. Fram kemur að í fyrra hafi verið flutt út 632 þúsund tonn, en 669 þúsund tonn árið 2009. „Frystar afurðir skiluðu 55 prósentum af heildarútflutnings- verðmæti. Af einstökum afurðum vó verðmæti blautverkaðs salt- fisks úr þorski mest, 13,5 millj- arðar króna.“ - óká 73 prósent íslenskra sjávarafurða fara til Evrópska efnahagssvæðisins: Útflutningsverðmæti jókst um tíund ÞORSKUR Í BALA Frystar afurðir stóðu undir 55 prósentum útflutningsverð- mætis sjávarútvegsins í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN AF VIVAG Í MAÍ20% AFSLÁTTUR VERÐLAUNASKÁLD HÖFUNDAKVÖLD NORRÆNA HÚSSINS Í KVÖLD KL. 20 HÖFUNDAKVÖLD Í NORRÆNA HÚSIN U Þórbergur Þórðarson , Mitt rómantíska æð i. „Bækur eru saklaus ir hlutir, en rithöfundar eru æ gilegar verur.“ neon bjarturBÓKMENNTA- VERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS 2008 GLÆNÝ BÓK Í NEON! KEMUR ÚT Í DAG. HEIÐURSVERÐLAUNGYLDENDAL 2011 Ingunn Ásdísardóttir þýðandi ræðir við verðlaunaskáldið Naju Marie Aidt, höfund Bavíana. „Sorg og lífsgleði, sárs- auki, angist og huggun lýsa í gegnum smásögur Naju Marie Aidts á sígild- an hátt, en jafnframt með nýskapandi röddun.“ Dómefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI? Stærsti frétta- og afþreyingarvefur landsins. RÚSSLAND, AP Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti blés til mikils blaðamannafundar í gær þar sem hann svaraði spurningum í heila klukkustund. Þótt hann hafi engu svarað um það hvort hann ætli að bjóða sig aftur fram til forseta næsta kjör- tímabil má líta á blaðamannafund- inn sem fyrsta skref hans í þá átt- ina að gera sig gildandi í augum þjóðarinnar gegn vini sínum Vladimír Pútín. Hvorki Pútín né Medvedev hafa svarað því hvor þeirra ætli að bjóða sig fram í forsetakosning- unum á næsta ári en þeir hafa þó sagt að þeir muni taka sameigin- lega ákvörðun um það. Pútín var forseti Rússlands í rúmlega tvö kjörtímabil, frá 1999 til 2008, og naut mikilla vinsælda meðal Rússa en mátti ekki bjóða sig fram til þriðja kjörtímabilsins í röð. Hann má hins vegar bjóða sig fram næst og hefur þá mögu- leika á að sitja í tólf ár samtals því kjörtímabilið hefur verið lengt úr fjórum árum í sex. Medvedev lagði áherslu á að þeir Pútín væru að mestu sammála um stefnuna í öllum helstu málaflokk- um en dró samt fram áherslumun í nokkrum veigamiklum málum. Hann sagðist meðal annars ósammála Pútín um það hversu hratt ætti að nútímavæða Rúss- land. „Hann telur að nútímavæðingin sé hægfara ferli sem þróast stig af stigi,“ sagði Medvedev. „En ég tel að við höfum bæði tækifæri og alla burði til að fara hraðar í þá nútímavæðingu.“ Aðspurður sagði Medvedev einnig enga hættu stafa af olíujöfr- inum Mikhaíl Khodorkovskí, þótt hann væri látinn laus úr fangelsi. Hann vildi hins vegar engu svara um það hvort hann hefði í hyggju að náða hann. Lögfræðingur Khodorkovsk- ís fagnaði þessari yfirlýsingu en sagði næsta skref vera að gefa upp hvenær hann yrði látinn laus. Mannréttindafrömuðir og stjórnarandstæðingar í Rúss- landi hafa lengi barist fyrir því að Medvedev náði Khodorkovskí. Margir hafa talið réttarhöldin gegn Khodorkovskí ekkert annað en hefndarráðstöfun Pútíns, sem hafi látið fara svo mjög fyrir brjóstið á sér að Khodorkovskí hafi farið í harða samkeppni við rúss- neskan ríkisrekstur á olíufyrir- tækjum. Erlendis hefur málið þótt hneisa fyrir rússnesk stjórnvöld. Pútín hefur kallað Khodorkovskí þjóf og segir hann eiga ekkert annað skilið en að dúsa sem lengst í fangelsi. Medvedev hefur því greinilega dálítið aðrar áherslur í afstöðu sinni til Khodorkovskís en Pútín. gudsteinn@frettabladid.is Svarar engu um framboð Medvedev segist ósammála Pútín um hve hratt eigi að nútímavæða Rússland. Ólíkt Pútín telur hann enga hættu stafa af olíujöfrinum Khodorkovskí. DMITRÍ MEDVEDEV Stærsti blaðamannafundur forsetans til þessa. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Kynferðisbrotum gegn börnum sem rekja má til samskipta á netinu hefur fjölg- að um helming á síðustu fjórum árum. Yfirleitt villa gerendurnir á sér heimildir. Barnahús fékk á borð til sín tutt- ugu mál í fyrra þar sem gerandi kynntist þolanda á netinu, í mörg- um tilvikum á Facebook. Þá hafa á síðustu tveimur árum komið upp sex mál þar sem eldri menn hafa keypt sér aðgang að grunnskólabörnum í gegnum netið. - mþl Kynnast börnum á Facebook: Fleiri níðingar nýta sér netið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.