Fréttablaðið - 21.05.2011, Page 4
21. maí 2011 LAUGARDAGUR4
GENGIÐ 20.05.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
219,6112
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,92 115,46
186,69 187,59
163,93 164,85
21,978 22,106
20,924 21,048
18,362 18,470
1,4078 1,4160
182,88 183,96
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
TÍMALAUS KLASSÍK
Í ÚTSKRIFTARGJÖF
Skagen
herraúr
kr. 24.900
Skagen
dömuúr
kr. 23.900
www.jonogoskar.is LAUGAVEGUR / SMÁRALIND / KRINGLAN
LÖGREGLUMÁL Afar lítill hluti kæra
almennings á hendur lögreglu-
mönnum endar með dómsupp-
kvaðningu. Þetta sýna tölur yfir
slík mál frá árunum 2005 til 2009.
Fréttablaðið sagði frá því í vik-
unni að lögregluvarðstjóri hefði
verið ákærður fyrir líkamsárás
af gáleysi, en hann ók óvart á
ungan mann sem hafði reynt að
flýja undan honum á bíl með þeim
afleiðingum að ungi maðurinn fót-
brotnaði. Formaður Landssam-
bands lögreglumanna og ritstjóri
lögreglublaðsins hafa gagnrýnt
málið og sagt að það sé erfitt fyrir
lögreglumenn að sitja undir því að
vera gerðir persónulega ábyrgir
fyrir svona atvikum.
Rétt fyrir áramót lagði alþingis-
maðurinn Birgitta Jónsdóttir fyr-
irspurn fyrir innanríkisráðherra
um kærumál almennra borgara
vegna starfa lögreglu á fimm
ára tímabili, á hvaða rökum þær
hefðu verið reistar og hver við-
brögð ráðuneytisins voru. Þá
spurði hún um hvernig málunum
lyktaði.
Í svari ráðherra segir að 112
mál hafi borist ríkissaksóknara,
sem rannsakar mál á hendur lög-
reglu, árin 2005 til 2009.
Kærumálin eru af ýmsum toga.
Í flestum tilvikum, eða 45, kærði
fólk handtökur, til dæmis harð-
ræði og meinta ólögmæta vistun í
fangaklefa. Nokkrum sinnum var
kært fyrir annað harðræði, ólög-
mæta aðferð við líkams- og hús-
leit og upplýsingaleka.
Einu sinni var kært fyrir beit-
ingu úðavopns, í annað sinn fyrir
Mál fellt niður
33
Fallið frá
saksókn
3
Rannsókn
hætt
51
Kæru vísað frá
13
Dómur eða
viðurlagaákvörðun
3
Mál í vinnslu áramótin 2009-2010
9
Kærumál á hendur lögreglu 2005-2009
Eins og sjá má á skífuritinu
enda sárafá kærumál gegn
lögreglumönnum nokkru sinni
með dómi. Einungis þrjú af 112
á fimm ára tímabili fóru alla leið í
kerfinu. Rannsókn flestra málanna
er ýmist hætt eða þau felld niður.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um það
hversu margar kærur voru dregnar til
baka í þeim málum þar sem rannsókn
var hætt, að því er fram kemur í svari
Ögmundar Jónassonar við fyrirspurn
Birgittu Jónsdóttir.
112SAMFÉLAGSMÁL Blindrafélagið
gagnrýnir harðlega úrskurð
úrskurðarnefndar félagsþjónustu
og húsnæðismála um ferðaþjón-
ustu fyrir lögblinda í Kópavogi.
Bærinn segir blindan pilt eiga að
njóta sams konar aksturþjónustu
og aðrir fatlaðir og hafnar að
taka þátt í leigbílukostnaði hans.
Úrskurðarnefndin segir þjónustu
bæjarins samræmast lögum. Þá
niðurstöðu telur Blindrafélagið
ranga og óviðunandi með hlið-
sjón af mannréttindum fatlaðra
og hyggst leita til umboðsmanns
Alþingis. - sv
Úrskurður Kópavogsbæ í vil:
Blindir leita til
umboðsmanns
ÖRYGGISMÁL Landhelgisgæslunni
barst í vikunni tilkynning frá
golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ
um að dínamít hefði fundist í
steinklöppum á golfvelli klúbbs-
ins. Sprengjusérfræðingar Land-
helgisgæslunnar voru kallaðir út
og þegar á staðinn kom reyndist
dínamítið vera í nokkrum bor-
holum og var það meðal annars
tengt í víra.
Sprengjusérfræðingarnir náðu
öllu dínamítinu upp úr holunum
nema úr einni þeirra sem reynd-
ist nauðsynlegt að sprengja. Var
dínamítið síðan flutt á afskekkt
svæði þar sem því var fargað. - shá
Gæslan kölluð til:
Sprengiefni á
golfvellinum
Lítið brot mála gegn
lögreglu endar í dómi
Á fimm ára tímabili rannsakaði ríkissaksóknari 112 mál gegn lögreglunni. Þrjú
þeirra enduðu með dómi eða viðurlögum. Málin vörðuðu meðal annars upp-
lýsingaleka, illa meðferð á fíkniefnahundi og lán á talstöðvum til ljósmyndara.
Þýfi hjá ölvuðum ökumanni
Þrír ökumenn voru teknir fyrir
ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuð-
borgarsvæðinu á fimmtudag. Þetta
voru allt karlar og tveir höfðu þegar
verið sviptir ökuleyfi. Í bíl eins manns-
ins fundust munir sem talið er að
séu þýfi.
LÖGREGLUMÁL
UTANRÍKISMÁL Þróunarsjóður Frí-
verslunarsamtaka Evrópu (EFTA)
hefur fryst frekari fjárframlög til
Grikklands þar sem stjórnvöld þar
hafa ekki staðið við sín fyrirheit í
tengslum við framlögin.
Sjóðurinn fjármagnar ýmis
verkefni sem hafa það að mark-
miði að auka jafnræði í ríkjum í
Mið- og Suður-Evrópu. Um 248
milljónir evra áttu að renna til
Grikklands vegna áranna 2004 til
2009. Um 13 milljónir hafa þegar
verið greiddar, en þær 235 millj-
ónir sem upp á vantar hafa nú
verið frystar. Á vef norska utan-
ríkisráðuneytisins kemur fram að
grísk stjórnvöld hafi ekki staðið
við sínar skuldbindingar vegna
framlaganna. Féð hafi farið seint
eða ekki til þeirra verkefna sem
það hafi verið eyrnamerkt. Þá hafi
verið misbrestur á mótframlögum
frá grískum stjórnvöldum til verk-
efnanna.
Greiðslurnar verða frystar þar
til grísk stjórnvöld sýna fram á að
allt fé hafi runnið til réttra verk-
efna, og að mótframlag hafi borist.
Urður Gunnarsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi utanríkisráðuneytis-
ins, segir ákvörðun um frystingu
framlaga tekna á vettvangi þróun-
arsjóðsins, þar sem Ísland á full-
trúa. - bj
Þróunarsjóður EFTA frystir frekari framlög til verkefna sjóðsins í Grikklandi:
Grikkir ekki staðið við skuldbindingar
SJÓÐUR Stærstur hluti framlaga í
Þróunarsjóð EFTA kemur frá Noregi, en
Ísland og Lichtenstein leggja einnig fé
í sjóðinn.
LÖGREGLUMÁL Tveir meðlimir vél-
hjólasamtakanna Black Pistons
hafa verið úrskurðaðir í áfram-
haldandi gæsluvarðhald til 27.
maí.
Mennirnir, sem eru á þrítugs-
og fertugsaldri, voru handteknir í
Hafnarfirði í síðustu viku eftir að
tilkynning barst um líkamsárás.
Annar hinna handteknu er for-
sprakki Black Pistons hér á landi.
Í tilkynningu frá lögreglunni
segir að sá er ráðst var á hafi
verið nefbrotinn og með áverka
víða um líkamann. Talið er að
honum hafi verið haldið nauðug-
um í meira en hálfan sólarhring.
Á dvalarstað árásarmannanna
var lagt hald á bæði fíkniefni og
ýmis barefli.
Héldu manni nauðugum:
Úrskurðaðir í
áframhaldandi
gæsluvarðhald
LÖGREGLUMÁL Ítölsk kona, sem lög-
reglan á Íslandi lýsti eftir í mars,
er komin í leitirnar í heimalandi
sínu.
Þegar lýst
var eftir kon-
unni, Isabellu
Di Giacobbe,
um miðjan mars
hafði ekkert til
hennar spurst
frá því í fyrra-
sumar. Ekki var
vitað með vissu
að hún væri þá
hér á landi, en
aðstandendur hennar grunaði það
þó. Hún hafði komið hingað með
flugi í júlí en en engar upplýsing-
ar fundust um að hún hefði farið
aftur. En Isabella skilaði sér sem
sé heim til Ítalíu fyrir skömmu. - sh
Saknað mánuðum saman:
Skilaði sér heim
heilu og höldnu
ISABELLA DI
GIACOBBE
SUÐUR-AFRÍKA Meira en 850 manns
slösuðust í lestarslysi í Jóhann-
esarborg í Suður-Afríku í gær.
Þrír hið minnsta lífshættulega
slasaðir.
Farþegalest rakst aftan á aðra
lest af miklum krafti og köstuð-
ust fjölmargir út úr lestunum. Að
sögn sjónarvotta var slasað fólk
á víð og dreif um svæðið og reynt
var að huga að því þar áður en
sjúkrabílar komu á staðinn.
Meira en tvær milljónir manna
ferðast með farþegalestum í Suð-
ur-Afríku á hverjum degi. - þeb
Lestir rákust saman í S-Afríku:
Yfir 850 sárir
eftir lestarslys
refsiverða háttsemi vegna rangr-
ar skýrslugerðar og þá var varð-
stjóri kærður fyrir að hafa mis-
notað stöðu sína og látið aka sér í
forgangsakstri á Keflavíkurflug-
völl.
Einn lögreglumaður var kærð-
ur fyrir brot á dýraverndarlög-
um vegna meðferðar á fíkniefna-
leitarhundi og annar fyrir að láta
aflífa hund manns.
Þá rannsakaði ríkissaksókn-
ari mál gegn lögreglumanni sem
sakaður var um að hafa látið ljós-
myndara hafa tetra-talstöð svo
hann gæti fylgst með fjarskipt-
um lögreglu. Eitt mál til við-
bótar varðaði meinta refsiverða
háttsemi varðandi uppsetningu á
öryggismyndavélum.
Að því er segir í svarinu end-
uðu hins vegar aðeins þrjú þess-
ara mála fyrir dómi eða með við-
urlagaákvörðun. Langstærstum
hluta mála er vísað frá dómi, þau
felld niður, fallið frá saksókn eða
rannsókn málanna hætt.
stigur@frettabladid.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
26°
22°
18°
23°
22°
16°
16°
21°
18°
21°
25°
34°
15°
22°
15°
16°Á MORGUN
Fremur hægur vindur
víða en hvassara NV-til
12
MÁNUDAGUR
Talsverður vindur
V- og A- til.
1 8
1 9
2 5
6 7
8 5
7 8
76
102
-1
-1 10
0 2
2
86
1
3
8
5
0
LITLAR
BREYTINGAR
Áfram verður
vetrarveður norðan
heiða, él og snjó-
koma víða. Ögn
sumarlegra S-lands
og hiti þar 2 til 8
stig. Sunnudagur
verður svipaður,
hvessir vestan-
og austanlands á
mánudag.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður