Fréttablaðið - 21.05.2011, Side 6
21. maí 2011 LAUGARDAGUR6
SAMFÉLAGSMÁL Aldrei hafa fleiri
komið í Kvennaathvarfið en á síð-
asta ári. Fjöldi dvalarkvenna var
þó svipaður árið 2010 og 2009 en
viðtölum fjölgaði gífurlega. Þetta
kemur fram í nýrri ársskýrslu
Kvennaathvarfsins fyrir árið 2010.
Skýrslan var kynnt á aðalfundi
samtakanna á fimmtudag.
Árið 2010 voru 864 komur í
Kvennaathvarfið. Árið á undan
voru komurnar samtals 605, sem
gerir fjölgun um tæp 40 prósent.
Viðtölum fjölgaði um meira en
helming á milli ára, úr 487 árið
2009 í 746. Þegar komur og viðtöl
eru tekin saman er fjöldinn alls
864, en þær hafa aldrei verið fleiri
á einu ári. Konurnar sem leituðu
aðstoðar Kvennaathvarfsins voru
375 og komu margar þeirra oftar
en einu sinni.
Sigþrúður Guðmundsdóttir,
framkvæmdastýra Kvennaat-
hvarfsins, segir að þótt konum hafi
fjölgað þar sé það ekkert endilega
vísbending um að fleiri konur verði
fyrir ofbeldi nú.
„Ég held að konur séu frekar
að sækja sér aðstoð nú heldur en
áður,“ segir Sigþrúður. „Nú er fjölg-
unin einnig meiri meðal kvenna
sem eru að flýja andlegt ofbeldi, en
ekki líkamlegt. Það sýnir kannski
að konur eru orðnar ófeimnari við
að skilgreina sig sem fórnarlamb
ofbeldis.“
Hlutfall íslenskra kvenna sem
komu í athvarfið dróst saman á
milli ára, en í fyrra var það 68 pró-
sent, samanborið við 75 prósent
árið á undan. Sigþrúður segir þó
að það skýrist sennilega af því að
árið 2009 hafi erlendum konum
fækkað mikið í athvarfinu, eftir
bankahrunið.
„Á síðasta ári fórum við að sjá
erlendar konur aftur. Og þetta
tiltölulega háa hlutfall erlendra
kvenna er vegna þess að þær hafa
síður í önnur hús að venda en þær
sem eru íslenskar,“ segir hún.
Sigþrúður bendir einnig á að þótt
margar konur komi í athvarfið, sé
það mjög lítill hluti þeirra kvenna
sem búa við ofbeldi á heimili sínu.
sunna@frettabladid.is
Aldrei fleiri komur
í Kvennaathvarfið
Aldrei hafa fleiri komið í Kvennaathvarfið heldur en árið 2010. Konum sem
leituðu þar aðstoðar fjölgaði um helming milli ára. Framkvæmdastýra Kvenna-
athvarfsins segir konur nú vera meðvitaðri um hvað ofbeldi er.
SIGÞRÚÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir að þrátt
fyrir þessa fjölgun kvenna komi þangað einungis lítið brot af þeim konum sem verða
fyrir ofbeldi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Á aðalfundi Samtaka um kvennaathvarf var skorað einróma á Alþingi að
samþykkja frumvarp innanríkisráðherra til laga um nálgunarbann og brott-
vísun af heimili. Í ályktun samtakanna kemur fram að hvatt sé til þess að
lögin verði samþykkt á yfirstandandi þingi.
Í frumvarpi innanríkisráðherra kemur fram að með nálgunarbanni sé átt
við þau tilvik þegar manni er bannað að koma á tiltekinn stað eða svæði,
veita eftirför, heimsækja eða setja sig með öðru móti í samband við annan
mann. Með brottvísun af heimili samkvæmt lögum þessum er átt við þau
tilvik þegar manni er vísað brott af heimili sínu eða dvalarstað og honum
bannað að koma þangað aftur í tiltekinn tíma.
„Sá maður sem misgert er við, brotaþoli, fjölskylda hans eða annar
honum nákominn, getur borið fram beiðni til lögreglu um að maður,
sakborningur, sem brotið hefur gegn honum eða raskað friði hans á annan
hátt, sæti nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili,“ segir meðal annars í
frumvarpinu.
„Ljóst er að væri frumvarpið orðið að lögum hefði hluti þessara kvenna
og barna losnað við að hrekjast af heiman,“ segir í ályktun Samtaka um
kvennaathvarf. Samtökin telja að lögin myndu auka lífsgæði og öryggi
brotaþola ofbeldis í nánum samböndum. „Innan samtakanna hefur jafn-
framt ríkt sú skoðun að óþolandi er að brotaþolar þurfi að víkja af heimilum
sínum en ekki þeir sem ofbeldinu beita,“ segir enn fremur.
Vilja lög um nálgunarbann í gildi
FRAKKLAND Fyrrverandi dóms-
málaráðherra Frakka, Elisabeth
Guigou, segir myndbirtingu af
Dominique Strauss-Kahn, þar sem
hann er leiddur um í járnum, ógeð-
fellda og grimmdarlega. Hún stóð
sjálf fyrir setningu laga í Frakk-
landi sem banna birtingu slíkra
mynda.
New York Times leitaði álits
Evu Joly á ummælum Guigou, en
Joly sótti Strauss-Kahn eitt sinn til
saka fyrir spillingu (sem hann var
sýknaður af) og leiðir flokk Græn-
ingja í Frakklandi. Búist er við því
að hún bjóði sig fram til forseta á
næsta ári.
Joly tekur undir að myndirnar
séu sláandi, en bætir við að mynd-
birting af þessu tagi geti verið
meira áfall fyrir þekkt fólk en
óþekkt. „En bandarískt réttar-
kerfi gerir ekki upp á milli fram-
kvæmdastjóra AGS og annarra
grunaðra. Að baki liggur hug-
myndin um að allir njóti sama rétt-
ar,“ sagði hún við New York Times.
Joly bendir líka á að réttarkerfi
Frakklands og Bandaríkjanna séu
afar ólík. Saksóknarar vestra þurfi
að taka mið af því að þeir þurfi að
sannfæra kviðdóm um sekt við-
komandi. Eins og er notast fransk-
ir dómstólar ekki við kviðdóm, en
það kann þó að breytast gangi
í gegn breytingar sem Nicolas
Sarkozy Frakklandsforseti hefur
lagt til. Þá myndu verða kallað-
ir til kviðdómendur í alvarlegum
afbrotamálum, svo sem nauðgun-
armálum.
- óká
EVA JOLY Búist er við að Joly bjóði sig
fram til forseta í Frakklandi. Dominique
Strauss-Kahn var líka talinn líklegur til
að bjóða sig fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Frakkar furða sig á myndum sem birtar voru af Strauss-Kahn í járnum:
Verra fyrir þekkta en óþekkta
Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040
Sitness
Kr. 39.900,-
Góðir fyrir bakið!
Veltikollar og hnakkstólar
w
w
w
.h
ir
zl
an
.i
s
Body Balance
Kr. 39.900,-
Bonanza
Kr. 65.900,-
svart leður
Tímapantanir í síma 563 1046 og 563 1060.
Ágúst Birgisson lýtalæknir.
www.ablaeknir.is
Hef flutt læknastofu mína úr húsi
Lífssteins yfir í Domus Medica.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.
MENNING Fjöldi mynda hefur birst
á vef Arkitektafélags Íslands á
undanförnum vikum af stál-
virki Hörpu á lokaspretti fram-
kvæmdanna. Á sumum myndanna,
sem teknar voru 17. apríl, gefur
að líta ryð og tæringu á stálinu en
eins og kunnugt er þurfti að taka
niður stálvirki á suðurhlið hússins
þegar upp komst um framleiðslu-
galla í stálinu síðasta sumar.
Það eru arkitektarnir Örnólf-
ur Hall og Guðmundur Kr. Guð-
mundsson sem tóku myndirnar en
með þeim hafa þeir birt pistla þar
sem gerðar eru alvarlegar athuga-
semdir við frágang hússins.
„Ég fylgdist með vinnubrögðun-
um á síðustu metrunum. Þá virt-
ist vera rosalegur hamagangur við
að koma þessu í gagnið fyrir opn-
unina. Ég sem arkitekt myndi ekki
hrósa þessum vinnubrögðum,“
segir Örnólfur. Þá telur hann ein-
kennilegt að stálið hafi ekki verið
galvaníserað og að ljóst sé að mis-
brestur hafi orðið á eftirliti með
framleiðslu þess í Kína eins og
komið hafi í ljós þegar suðurvegg-
urinn var tekin niður.
Sigurður Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri verkefnisins hjá
Íslenskum aðalverktökum, gefur
hins vegar ekki mikið fyrir þessa
gagnrýni. „Þetta stál er allt innan-
hús og ryðgar ekki. Áður en gler-
ið var sett upp stóð stálið bert og
þá ryðgaði það eins og eðlilegt er
en nú þarf engar áhyggjur að hafa
af því,“ segir Sigurður og bætir
við: „Ég fullyrði það fullum fetum
að þetta er ekki áhyggjuefni. Ég
er raunar bara gapandi á þessari
umræðu,“ segir Sigurður og bend-
ir á að víða á Íslandi megi finna
ómeðhöndlað stál innandyra með
fínum árangri, svo sem í Lista-
safni Reykjavíkur. - mþl
Arkitektar gagnrýna fráganginn á stálvirki Hörpu en framkvæmdaaðilar gefa lítið fyrir gagnrýnina:
Segja stálvirki Hörpu vera í himnalagi
RYÐ Á KÖNTUM Myndin var tekin um
miðjan apríl áður en glerhjúpur Hörpu
var að fullu kominn upp. Nú hefur stálið
verið sparslað og málað. MYND/ÖH
Hefur þú fundið brennisteins-
lykt frá Hellisheiðarvirkjun á
höfuðborgarsvæðinu?
Já 50,9%
Nei 49,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Átt þú von á því að heimurinn
farist áður en helgin er á enda?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN