Fréttablaðið - 21.05.2011, Side 23
LAUGARDAGUR 21. maí 2011 23
Þann 18. apríl s.l. birtist í Fréttablaðinu grein eftir
Kesöru Anamthawat-Jónsson
prófessor við Háskóla Íslands
um ræktun erfðabreytts byggs
utandyra. Í greininni viðrar Kes-
ara þá hugmynd sína að vísinda-
mennirnir 37 sem nýverið mót-
mæltu tillögu til þingsályktunar
um útiræktun á erfðabreyttum
lífverum hafi byggt álit sitt á
rannsókn sem framkvæmd var
af starfsmönnum Landbúnað-
arháskóla Íslands (1). Ekki er
gott að vita hvort grunur Kesöru
sé á rökum reistur, en þó er rétt
að benda á að umrædd rannsókn
er ekki sú eina sem metið hefur
erfðaflæði frá byggi og skyldum
tegundum og því má telja víst að
skoðun vísindamannanna 37 sé
byggð á fleiri og ítarlegri rann-
sóknum (sjá t.d. 2,3).
Kesara gerir síðan tilrauninni
skil og gagnrýnir þar ýmislegt.
Tvennt er rétt að fjalla um sér-
staklega. Í fyrsta lagi er gagn-
rýnt að notast var við svipgerðir
plantna til að fylgja eftir gena-
flæði (í stað t.d. erfðamarka
eða erfðabreytinga) og gert að
umtalsefni að þessar svipgerðir,
tveggja- og sexraða öx, séu „ólík-
ir hópar innan tegundarinnar
Hordeum vulgare“, en H. vulg-
are er í daglegu tali kallað bygg.
Hér er óljóst hvað Kesara á við
enda hugtakið hópur í þessu sam-
hengi illa skilgreint. Framsetn-
ingin er þó með þeim hætti að
ætla mætti að þarna væru á ferð-
inni tvær ólíkar flokkunarfræði-
legar einingar og að erfðaflæði
milli þessara „hópa“ væri á ein-
hvern hátt takmarkað umfram
það sem gerist almennt á milli
byggyrkja. Svo er hins vegar
ekki raunin. Ítarleg umfjöll-
un Kesöru um erfðafræðilegan
mun á tveggja- og sexraða-byggi
er því í raun óþarfa málalenging
þar sem þetta ákveðna atriði
breytir engu um niðurstöður
rannsóknarinnar.
Síðan segir hún: „Til þess að
fá öruggar niðurstöður um gena-
flæði er nauðsynlegt að greina
tilvist framandi gens eða gena
og meta tjáningu þeirra í við-
tökuplöntum með sameinda-
erfðafræðilegum aðferðum. Mér
er ekki kunnugt um að þetta hafi
verið gert.“ Kesara lýsir hér til-
raun þar sem erfðabreyttar
plöntur eru notaðar sem frjó-
gjafar við mat á erfðaflæði. Til
að gefa raunsanna mynd yrði
slík tilraun að fara fram utan-
dyra. Við þetta er helst tvennt
að athuga. Í fyrsta lagi hefur til-
raun af þessu tagi þegar verið
framkvæmd, sýndi hún lága tíðni
genaflæðis (2) og voru helstu
ályktanir samhljóma þeim sem
settar voru fram í greininni í
IAS (1). Í öðru lagi þá skýtur það
skökku við að leggja til slepp-
ingu á erfðabreyttum plöntum
utandyra til þess að mæla flæði
erfðaefnis í sömu grein og því er
lýst sem „ábyrgðarleysi“ af hálfu
íslenskra vísindamanna að leggj-
ast ekki eindregið gegn slepp-
ingu slíkra plantna. Þó áfram-
haldandi rannsóknir á erfðaflæði
séu góðra gjalda verðar þá væri
rannsókn af því tagi sem hér er
lýst andstæðingum erfðabreyttra
plantna varla að skapi auk þess
sem hugmyndin gengur þvert
gegn megin niðurstöðu greinar
Kesöru.
En grein Kesöru líður ekki
eingöngu fyrir óþarfa málaleng-
ingar og þversagnakenndar til-
lögur að frekari rannsóknum,
heldur einnig óljósa notkun hug-
taka og stóryrði. Hún kallar það
„ábyrgðarleysi hjá vísindamönn-
um að gera ekki kröfur um full-
nægjandi rannsóknir og vísar
hér aftur til 37 menninganna.
Harðari verður gagnrýni á vís-
Hlutverk vísindamanna er að afla nýrrar
þekkingar, en þeir verða einnig að hafa
þor til að túlka fyrirliggjandi niðurstöður
Flæði erfðaefnis, ábyrgðarleysi og fullnægjandi rannsóknir
Umhverfismál
Jón Hallsteinn
Hallsson
erfðafræðingur
indamenn varla, enda ábyrgðar-
laus vísindamaður ekki á vetur
setjandi. Helsta vandamálið í
þessum málflutningi Kesöru
eru þó ekki stóryrðin heldur
það að hún gerir enga tilraun til
að varpa ljósi á hvað geti talist
„fullnægjandi rannsókn“ og enn
síður hver eigi að ákveða hve-
nær þeim mikilvæga áfanga sé
náð að rannsókn teljist fullnægj-
andi. Samkvæmt Kesöru eru það
hvorki vísindamennirnir 37, en á
þeim lista eru margir af okkur
færustu erfðafræðingum, né ráð-
gjafanefnd um erfðabreyttar líf-
verur sem ætlað er að fjalla um
umsóknir um leyfi til sleppingar
á erfðabreyttum lífverum. Því
vaknar sú spurning hvort það
sé ekki miklu fremur ábyrgð-
arleysi hjá vísindamönnum að
sitja hjá í þjóðfélagsumræðunni
og skýla sér á bak við kröfur um
sífellt ítarlegri rannsóknir í stað
þess að taka afstöðu? Hlutverk
vísindamanna er að afla nýrrar
þekkingar, en þeir verða einn-
ig að hafa þor til að túlka fyrir-
liggjandi niðurstöður á hverjum
tíma og draga af þeim ályktanir,
jafnvel þegar um er að ræða jafn
umdeilt efni og erfðatækni.
1. Hermannsson J, Kristjáns-
dóttir TA, Stefánsson TS, Halls-
son JH. Measuring gene flow
in barley fields under Icelandic
sub-arctic conditions using clo-
sed-flowering varieties. Ice-
landic Agricultural Sciences.
2010;23:51-59.
2. Ritala A, Nuutila AM, Aika-
salo R, Kauppinen V, Tammisola
J. Measuring gene flow in the
cultivation of transgenic barley.
Crop Science. 2002;42(1):278-285.
3. Gatford KT, Basri Z, Edl-
ington J, Lloyd J, Qureshi JA,
Brettell R, et al. Gene flow from
transgenic wheat and barley
under field conditions. Euphyt-
ica. 2006;151(3):383-391.
Gjafir sem
auðga lífið
Samfélagssjóðir Auðar
auglýsa eftir styrkumsóknum
Auður hefur frá upphafi lagt áherslu á ábyrga hegðun
í allri sinni starfsemi. Við trúum því að við getum öll
lagt okkar af mörkum til að byggja upp heilbrigt
samfélag. Þess vegna vill Auður leggja þeim lið sem
stuðla að jákvæðri uppbyggingu og framförum.
Umsækjendur eru hvattir til að skilgreina verkefnið
vel, sýna fram á hvernig það fellur að markmiði
viðkomandi sjóðs og tilgreina hversu háa fjárhæð
sótt er um og/eða hverskonar vinnuframlag.
Vinnum saman að betri framtíð
Hvatning til góðra verka
Auður Capital | Borgartúni 29
Sími: 585 6500 | www.audur.is
Umsóknarfrestur er til
mánudagsins 30. maí 2011.
Styrkjum verður úthlutað
þann 19. júní 2011.
Umsóknum má skila á
audur@audur.is
Nánari upplýsingar á
www.audur.is
Dagsverk Auðar er samfélagsverkefni
starfsmanna Auðar. Dagsverkið felst
í því að starfsmenn gefa andvirði
dagslauna á hverju ári í verðugt
málefni. Ennfremur vinna allir
starfsmenn Auðar sem nemur einum
vinnudegi á ári í þágu góðs málefnis.
Starfsmenn Auðar velja verkefni sem
hljóta fjár- eða vinnuframlag.
AlheimsAuður er samfélagssjóður
ætlaður til að hvetja konur til
frumkvæðis og athafna, einkum
í þróunarlöndum. Auður leggur 1%
af hagnaði sínum í sjóðinn og býður
viðskiptavinum að gera slíkt hið sama.
Stjórn AlheimsAuðar tekur ákvörðun
um úthlutun styrkja.
AlheimsAuður
Dagsverk Auðar
Ábyrg arðsemi - mannleg nálgun