Fréttablaðið - 21.05.2011, Page 26
21. maí 2011 LAUGARDAGUR26
1949 Fæddur í Neuilly, rétt hjá
París.
1955 Flutti til Marokkó með
fjölskyldunni.
1960 Fjölskyldan flytur til
Mónakó eftir jarðskjálfta, sem
kostaði 30 þúsund lífið.
1967 Kvæntist Helene Dumas,
fyrstu eiginkonu af þremur.
1975 Doktorspróf í hagfræði.
1975 Gengur í Sósíalistaflokk-
inn.
1986 Kosinn á þing, kvænist
Brigitte Guillemette.
1991 Innanríkisráðherra,
kvænist Anne Sinclair.
1993 Missir þingsæti í
kosningum.
1995 Kosinn borgarstjóri í
Sarcelles.
1997 Kosinn aftur á þing,
verður fjármálaráðherra í stjórn
Lionels Jospin. Skar niður
ríkisútgjöld.
1999 Segir af sér sem ráðherra,
grunaður um fjármálamisferli.
Sýknaður síðar.
2007 Ráðinn framkvæmdastjóri
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
2008 Fær áminningu frá stjórn
sjóðsins fyrir að hafa átt í sam-
bandi við konu sem starfaði hjá
sjóðnum.
2011 Þótti sigurstranglegur í
forsetakosningunum á næsta
ári þar til hann var handtekinn í
New York.
Þegar Dominique Strauss-Kahn tók við yfirmennsku Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins árið 2007 heyrðust strax í Frakk-
landi raddir um, að þarna hafi hann fallið í
gildru sem jafnvel sjálfur Nicolas Sarkozy
forseti, einn helsti óvinur hans úr stjórn-
málum, gæti hafa lagt fyrir hann.
Einar Már Jónsson sagnfræðingur, sem
lengi hefur búið í Frakklandi og fylgst með
stjórnmálum þar, viðraði reyndar þessa
samsæriskenningu í pistli hér í Frétta-
blaðinu tæpu ári eftir að Strauss-Kahn
flutti til Washington. Þá var hann strax
kominn í vandræði vegna kvennamála.
„En um leið og þetta komst á dagskrá,“
skrifaði Einar Már, „fóru blaðamenn einn-
ig að nefna undir rós og í hálfkveðnum
vísum vandamál eitt sem Strauss-Kahn á
við að stríða og almenningur hafði þá lengi
haft á milli tannanna, en það var putta-
vandamálið. Hinn mikli kratabroddur er
nefnilega með þeim ósköpum fæddur, að
ef einhver kona kemur í seilingarfjarlægð,
fara puttarnir ósjálfrátt af stað og byrja
að þreifa á ýmsum líkamshlutum hennar.“
Upp á yfirborðið komu sögur um blaðakonur sem höfðu lent í vægast sagt óþægilegri
aðstöðu hjá honum, en um leið töldu sumir sig sjá að andstæðingar hans í stjórnmálum
væru hæstánægðir með upphefð Strauss-Kahns í Bandaríkjunum, þar sem siðferðis-
kröfur eru aðrar en í Frakklandi: „Fáeinir gátu þess jafnvel til að þarna ætlaði Sarkozy
að leiða Strauss-Kahn í lymskulega gildru, hann teldi ólíklegt að franski kratinn gæti
setið á strák sínum þótt hann væri kominn í þessa háu stöðu, ferli hans vestra myndi
þá lykta með einhverju reginhneyksli, og þá væri hann laus við þennan hættulega and-
stæðing ekki einungis meðan hann væri vestanhafs heldur um aldur og ævi, um það
myndu keppinautar hans innan sósíalistaflokksins sjá,“ sagði Einar Már.
D
ominique Strauss-Kahn
er ekki frjáls maður þótt
hann hafi verið látinn laus
gegn tryggingu. Hann þarf
að dvelja í stofufangelsi í
einkaíbúð í New York og
lýtur þar ströngum skilyrðum um eftirlit.
Hann þarf að bera á sér rafmagnsbúnað,
sem sendir boð til lögreglunnar um leið og
hann yfirgefur íbúðina, auk þess sem vopn-
aður vörður gætir hans allan sólarhringinn
og eftirlitsmyndavélar fylgjast með athöfn-
um hans inni í íbúðinni.
Hann þurfti að reiða fram eina milljón
dala í tryggingafé, en það samsvarar nærri
115 milljörðum króna. Þar að auki þurfti
hann að leggja fram tryggingu upp á fimm
milljónir dala, eða hátt í sex hundruð millj-
ónir króna, sem hann þarf að greiða ef hann
flýr land og mætir ekki til réttarhalda.
Óendanlega dapur
Strauss-Kahn sagði af sér sem yfirmaður
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á miðvikudag. Í
afsagnarbréfi sínu sagðist hann óendanlega
dapur yfir því að þurfa að segja af sér, en
taldi sér ekki annað fært til þess að vernda
stofnunina sem hann hafði veitt forstöðu
síðan í nóvember árið 2007.
Hann var handtekinn um síðustu helgi,
sakaður um að hafa ráðist á þernu á hótel-
herbergi í New York. Lögreglan hafði uppi
á honum á alþjóðaflugvelli borgarinnar, þar
sem hann var kominn um borð í flugvél á
leið til Frakklands.
Neitar ásökunum
Hann neitar öllum ásökunum þernunnar og
heitir því að sanna sakleysi sitt. Lögreglan
segir sannanir gegn honum engu að síður
hrannast upp. Hann hafi meðal annars sést
á myndbandsupptöku hraða sér á brott af
hótelinu strax eftir árásina. Þá hafi lífefni
fundist á vettvangi, sem ótvírætt eru úr
honum, en hann var fluttur á sjúkrahús dag-
inn eftir handtökuna þar sem réttarmeina-
fræðingar rannsökuðu hann og tóku meðal
annars úr honum lífsýni.
Í franskri útvarpsstöð var hins vegar
haft eftir lögfræðingum hans, að hann hafi
greitt reikninga sína og yfirgefið hótelið rétt
áður en þernan segir árásina hafa átt sér
stað. Hann hafi síðan setið að snæðingi með
dóttur sinni á veitingastað á þeim tíma, sem
árásin hafi átt að eiga sér stað. Síðan hafi
hann tekið leigubíl á flugvöllinn.
Hann gleymdi farsíma sínum í hótelher-
berginu, sem bendir til þess að hann hafi
yfirgefið vettvanginn í flýti. Á flugvellinum
hringdi hann hins vegar á hótelið, sagðist
hafa gleymt símanum og bað um að sér yrði
sendur hann á flugvöllinn. Þá hafði þernan
hins vegar sagt yfirmanni sínum frá árás-
inni og lögregla var mætt á vettvang. Í stað
sendils frá hótelinu með símann voru því
lögreglumenn sendir á flugvöllinn þar sem
þeir handtóku hinn grunaða.
Ferillinn fyrir bí
Málið hefur að vonum vakið hörð viðbrögð
víða um heim, ekki síst þó í Frakklandi.
Strauss-Kahn hefur áratugum saman verið
áberandi í frönskum stjórnmálum og þótti
líklegur til að keppa við Nicolas Sarkozy um
forsetaembættið í kosningum á næsta ári.
Margir töldu nánast fullvíst að hann myndi
hreppa forsetaembættið í þeim kosningum.
Fyrir aðeins fáeinum vikum birtist í tíma-
ritinu The Economist grein um Strauss-
Kahn, sem nefndist „Yes he Kahn“, þar
sem hann var sagður afar öruggur um að
ná langt í kosningabaráttunni. Nú í vikunni
birtist önnur grein í sama tímariti, sem
nefnist: „No he Kahnt (Updated)“, þar sem
menn hafa áttað sig á því að vonir hans um
forsetaembættið eru að engu orðnar.
Hrist upp í kosningabaráttu
Þeir Sarkozy eru gamlir fjandvinir úr póli-
tíkinni í Frakklandi, Sarkozy er um þess-
ar mundir helsti leiðtogi hægri manna en
Strauss-Kahn hefur lengi verið í fremstu röð
sósíaldemókrata.
Handtaka Strauss-Kahns hefur því heldur
betur hrist upp í frönskum stjórnmálum og
nú keppast félagar hans í Sósíalistaflokkn-
um um að fylla skarðið, sem hann skilur
eftir sig.
Þar eru fremst í flokki þau Francois Hol-
lande, Segolene Royal og Martine Aubry.
Hollande og Royal eru fyrrverandi hjón,
sem bæði hafa lengi staðið framarlega í for-
ystu Sósíalistaflokksins. Þau hafa bæði áður
sóst eftir að verða forsetaefni flokksins, og
Royal hreppti hnossið síðast en tapaði fyrir
Hneyksli sem lá lengi í loftinu
Frökkum kemur ekki á óvart að Dominique Strauss-Kahn hafi komið sér í vandræði. Þeim svíður hins vegar meðferðin sem
hann fær og eru margir sannfærðir um að hann sé fórnarlamb samsæris. Guðsteinn Bjarnason kynnti sér málið.
Á SAKAMANNABEKKNUM Dominique Strauss-Kahn í réttarsal í New York. NORDICPHOTOS/AFP
FJENDUR Í PÓLITÍK Dominique Strauss-Kahn og
Nicolas Sarkozy. NORDICPHOTOS/AFP
EIGINKONA OG DÓTTIR Anne
Sinclair og Camille Strauss-Kahn
á leið í réttarsalinn í New York á
fimmtudag. NORDICPHOTOS/AFP
■ SAMSÆRI SARKOZYS?
Sarkozy. Þau hafa bæði formlega stimpl-
að sig inn í kosningabaráttuna með því að
sækjast eftir að verða forsetaefni flokksins
á næsta ári.
Martine Aubry er leiðtogi Sósíalista-
flokksins og þykir líkleg til að sækjast
einnig eftir embættinu, þótt ekki hafi hún
tilkynnt það formlega ennþá.
Í skoðanakönnunum undanfarið hefur
Strauss-Kahn jafnan haft yfirhöndina, en
þau þrjú komið nokkuð á eftir honum. Allt
er það breytt núna, þegar hann er væntan-
lega úr sögunni.
Frakkar í áfalli
Franskir stjórnmálamenn hafa margir
hverjir komið Strauss-Kahn til varnar.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem gerð var
fáeinum dögum eftir að hann var handtek-
inn, telja 57 prósent Frakka og 70 prósent
franskra sósíaldemókrata að hann sé fórn-
arlamb samsæris. Umræður í frönskum
fjölmiðlum um málið hafa verið miklar og
stundum heiftarlegar.
Lengst af hafa Frakkar reyndar átt því að
venjast að fjölmiðlar þar í landi hlífi stjórn-
málamönnum að mestu við umfjöllun um
viðkvæm persónuleg málefni, jafnvel þótt
þau séu almælt manna á meðal.
Þeim virðist þó sérstaklega svíða að
farið skuli með Strauss-Kahn, einn virtasta
stjórnmálamann Frakklands, sem ótíndan
glæpamann í bandaríska dómskerfinu – og
um leið í öllum helstu fjölmiðlum heims.
Fyrri hneyksli
Fjölmiðlar vestan hafs og austan hafa nefni-
lega óspart rifjað upp fyrri kynlífshneyksli
tengd Strauss-Kahn, sem hefur ekki orðið til
þess að styrkja stöðu hans. Af fyrri hneyksl-
ismálum yfirmannsins fyrrverandi hafa tvö
vakið mest umtal.
Annað er frá árinu 2008, þegar upp komst
að hann hafði átt í ástarsambandi við gifta
konu að nafni Piroska Nagy, hagfræðing frá
Ungverjalandi sem var undirmaður hans hjá
AGS. Nagy sakaði Strauss-Kahn um að hafa
misnotað aðstöðu sína til að þröngva henni
til sambands við sig. Stjórn sjóðsins fjallaði
um málið, sagði hann hafa gerst sekan um
alvarlegan dómgreindarskort en ákvað að
víkja honum ekki úr starfi.
Hitt málið kom fram í dagsljósið árið
2007 þegar frönsk blaðakona, Tristane
Banon, sagði hann hafa reynt að nauðga
sér árið 2002 þegar hún hugðist taka við
hann viðtal. Hún sagði hann hafa hagað sér
eins og simpansa á fengitíma. Banon kærði
hann ekki þá, en er sögð hafa íhugað að gera
það nú, eftir að hann var handtekinn í New
York.
FERILLINN