Fréttablaðið - 21.05.2011, Síða 38
21. MAÍ 2011 LAUGARDAGUR2 ● kynning ● söfn fyrir alla
Þjóðminjasafnið er tilvalinn
áfangastaður fjölskyldunnar.
Þar má skoða sýningar, fara í
ratleik, kíkja í safnbúðina og fá
sér kaffibolla á Kaffitári.
Í Þjóðminjasafni Íslands eru
fjölmargar sýningar um þess-
ar mundir. Meðal annarra sýn-
ingin „Ekki snerta jörðina! Leik-
ir 10 ára barna“ sem fjallar um
hvernig börn leika sér í dag. Sýn-
ingin „Ljósmyndari Mývetninga
– mannlífsljósmyndir Bárðar Sig-
urðssonar frá upphafi 20. aldar“
hefur verið vinsæl og sömuleiðis
sýningarnar „Stoppað í fat“ sem
sýnir viðgerða muni úr safneign
og „Kistlar og stokkar“ þar sem
sýndir eru kistlar útskornir með
höfðaletri.
Í Bogasal var í febrúar opnuð
sýningin „Guðvelkomnir, góðir
vinir! Útskorin íslensk horn,“ og
mun hún standa út árið. Nafnið
er dregið af áletrun á Fagnaðar-
horninu frá sautjándu öld: Guð-
velkomnir, góðir vinir, gleðjist.
„Á Íslandi hefur lengi verið
sterk útskurðarhefð og aðal-
lega var skorið í tré og horn,“
segir Helga Vollertsen, kynn-
ingarstjóri Þjóðminjasafnsins og
bætir við að íslenskur útskurður
beri auðþekkt einkenni. „Skyld-
leiki var með útskurði hér á landi
og í Noregi á fyrri öldum. Það má
sjá á útskurði í norskum trékirkj-
um og varðveittum íslenskum tré-
skurði,“ segir hún.
Helga segir Íslendinga hafa
þróað einstaka leikni í horn-
skurði. Skrautið hafi einkennst
af stílfærðum og óhlutbundn-
um munstrum en jafnfram verið
skorið myndefni úr Biblíunni, til-
vitnanir, bænir og fangamörk.
„Í heiðni tíðkaðist að drekka
minni Óðins og fleiri guða. Siður-
inn hélst eftir að kristni var lög-
tekin, en þá voru drukkin minni
Guðs, Krists og helgra manna,“
segir Helga, en elstu varðveittu
hornin eru frá miðöldum. Vin-
sældir horna lifðu áfram og sum
fengu önnur hlutverk. Til dæmis
þótti með tilkomu skotvopna gott
að geyma í þeim púður. Helga
segir útskorin horn hafa verið
eftirsótt meðal erlendra ferða-
manna sem komu til Íslands á
átjándu og nítjándu öld. „Því eru
mörg þeirra varðveitt á evrópsk-
um söfnum, enda einstök lista-
verk,“ segir Helga og býður alla
velkomna í Bogasal Þjóðminja-
safnsins að skoða hin fjölbreyttu
horn.
Guðvelkomnir vinir
Á Íslandi hefur lengi verið sterk útskurðarhefð og aðallega var skorið í tré og horn.
Hér eru tvö af mörgum hornum sem eru til sýnis í Þjóðminjasafninu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
● ELSTA SAFN
HEIMS Elsta safn-
ið í heiminum er British
Museum í London. Það
var stofnað árið 1753 en
opnað almenningi 15.
janúar 1759. Fyrstu safn-
gripirnir voru í eigu vís-
indamannsins Sir Hans
Sloane (1660-1753). Í dag
eru í safninu yfir sjö millj-
ónir muna. Þar má finna
forngripi og muni sem
tengjast sögu og menn-
ingu mannkynsins.
● EKKI SNERTA
Söfn hafa breyst nokk-
uð í gegnum tíðina. Í
stað þess að þau séu loft-
lausar geymslur gamalla
muna er nú yfirleitt reynt
að bjóða gesti velkomna.
Þó skal hafa í heiðri nokkr-
ar grundvallarreglur þegar
safn er sótt heim.
Gott er að kynna sér
reglur safnsins við inn-
ganginn.
Skilti eru víða í söfnum
til leiðbeiningar fyrir gesti
og gott er að lesa þau til
að vita hvað má og hvað
ekki.
Sama hvað safnið
geymir eru munirnir yfir-
leitt dýrmætir og því ætti
aldrei að snerta þá nema sérstaklega sé tekið fram að það megi.
Taktu tillit til annarra. Ekki dvelja of lengi við hvert verk, aðrir vilja líka sjá.
Ekki kalla eða tala hátt. Þó að safnið sé ekki kirkja eða bókasafn er
óþarfi að menga umhverfið með hávaða.
Ekki borða mat á safninu.
Steiktar lummur, skoppandi
lömb, gamaldags leikföng og
hestbak tryggir hamingjudag í
Árbæjarsafni í sumar.
„Sumarstarf Árbæjarsafns hefst
að venju 1. júní og á sunnudög-
um í sumar verður boðið upp á
fjölbreytta dagskrá og fasta liði
eins og heyannir, harmóníkuhá-
tíð, handverksdag Heimilisiðnað-
arfélagsins, fornbíladaginn, bún-
ingadag barna og stórmót Ár-
bæjarsafns í skák,“ segir Helga
Maureen Gylfadóttir safnvörður.
Árbær var rótgróin bújörð fram
á tuttugustu öld, en 1957 var þar
opnað útisafn með yfir tuttugu
húsum sem mynda torg, þorp og
sveit. Á sumrin má sjá húsdýr og
mannlíf fyrri tíma í Árbæjarsafni
þar sem leitast er við að gefa hug-
mynd um byggingarlist og lifnað-
arhætti í Reykjavík fyrri tíma.
„Árbæjarsafn er ævintýra-
heimur barna þar sem húsdýr
eru á vappi um tún. Leikfanga-
sýningin Komdu að leika verð-
ur opin í sumar og svo opnum við
sýninguna Buxur, vesti, brók og
skó þar sem sýnd verða heima-
gerð barnaföt. Þá verður frum-
sýning Brúðubílsins í Árbæjar-
safni 7. júní og um helgar steikt-
ar lummur og teymt undir börnum
við gamla bæinn,“ segir Helga, en
því má bæta við að í Dillonshúsi er
ávallt er heitt á könnunni og ljúf-
fengt bakkelsi, ásamt fjölmörgu
gamaldags og freistandi í Kram-
búðinni.
Árbæjarsafn opnar einnig sýn-
inguna Kerruöldina í sumar, þar
sem sýnd verður vagnasmíði í
Reykjavík. Aðrir nýir viðburðir
eru dagur tileinkaður sögu kvenna
í Reykjavík á nítjándu öld og Ár-
bæjarsafn International, þegar
safnið býður Íslendingum af er-
lendum uppruna sérstaklega vel-
komna. Þá er haustmarkaður
safnsins haldinn síðasta sunnu-
dag sumars.
Í sumar er einnig tilvalið
að skoða Landnámssýninguna
Reykjavík 871±2 sem fjallar um
landnám í Reykjavík og geymir
elstu mannvistarleifar sem fund-
ist hafa í Reykjavík. Sýningin
byggir á kenningum fræðimanna
um það sem fornleifar geta sagt
okkur um líf og störf þeirra sem
fyrst settust hér að, en þungamiðj-
an er rúst skála frá tíundu öld sem
fannst 2001. Búið var í skálanum
frá því um 930 til 1000, og norðan
við skálann má sjá veggjar bút frá
því fyrir 871.
Árbæjarsafn er opið alla daga
frá 10 til 17 í júní, júlí og ágúst.
Landnámssýningin er opin alla
daga frá 10 til 17.
Draumaland sumars og liðins tíma
Starfsfólk Árbæjarsafns er ávallt búið klæðum sem tíðkuðust á Íslandi á síðari hluta nítjándu aldar.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Ábyrgðarmaður: Jón Lövdal Umsjónarmenn auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
s. 512 5462 og Þórdís Hermannsdóttir thordis@365.is s. 512 5447 Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is s. 512 5432. Forsíðumynd: d‘Orsay-safnið í París. Nordicphotos/getty
Brúðubíllinn trekkir að unga sem aldna
og mun frumsýna verk sumarsins í
Árbæjarsafni 7. júní.
Landnámssýningin sýnir landnám í
Reykjavík og elstu mannvistarleifar sem
fundist hafa í höfuðstaðnum.