Fréttablaðið - 21.05.2011, Side 58

Fréttablaðið - 21.05.2011, Side 58
21. maí 2011 LAUGARDAGUR14 Til söluÚtboð Tilkynningar Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is ÚTBOÐ ÚTBOÐ Útboð nr. 15051 - Gervilimir Ríkiskaup fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Landspítalans (LSH) óska eftir tilboðum í gervilimi, íhluti og tilheyrandi þjónustu. Um er að ræða stoðtæki þ.e.a.s. gervihandleggi og hendur, gervifótleggi og fætur ásamt liðum, hulsum og tilheyrandi íhlutum, viðhalds- og viðgerðarþjónustu. Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, (www.rikiskaup. is), eigi síðar en miðvikudaginn 25.maí n.k. Skila skal tilboðum til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð 1. september 2011, kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. ÚTBOÐ – HJÚKRUNARHEIMIL MOSFELLSBÆ. Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu og lagnir nýs Hjúkrunarheimilis við Langatanga 2A í Mosfellsbæ. Helstu verkþættir verksins eru gröftur og uppúrtekt 5.900 m³ og fylling 4.300 m³. Verkinu skal lokið 7. ágúst 2011. Útboðs- gögn verða afhent frá og með miðvikudeginum 18. maí 2011 hjá Mosfellsbæ, einnig er hægt að fá útboðgögn afhent rafrænt af verkefna vef með því að senda beiðni um aðgang á pall@thg.is. Kynningarfundur verður haldinn á verkstað þann 20. maí 2011 kl. 13. Tilboð verða opnuð þann 3. júní 2011 kl. 14 á bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2, 2. hæð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Sýslumaðurinn á Húsavík Útgarði 1, 460 Húsavík, s: 464 5000 UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Aðalbraut 24, fnr. 216-7216, 675 Raufarhöfn, Norðurþingi, þingl. eig. Fasteignafélagið Bær ehf, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf, fimmtudaginn 26. maí 2011 kl. 11:00. Austurvegur 2, fnr. 216-7702, 680 Þórshöfn, Langanesbyggð, þingl. eig. Margrét Anna Hjaltadóttir, gerðarbeiðendur Langanesbyggð og Vátryggingafélag Íslands hf, fimmtudaginn 26. maí 2011 kl. 13:30. Laugasel, jörð 153788, 641 Þingeyjarsveit, þingl. eig. Byggingarfélagið Óseyri 16 ehf, gerðarbeiðandi NBI hf, mánudaginn 30. maí 2011 kl. 14:00. Sýslumaðurinn á Húsavík 20. maí 2011 Innanríkisráðuneytið auglýsir kynningu á skipulagsreglum fyrir Akureyrarflugvöll. Í samræmi við heimild í 59. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum, hefur innanríkisráðherra ákveðið að setja skipulagsreglur fyrir Akureyrarflugvöll. Reglurnar hafa m.a. að geyma fyrirmæli um starfsemi og starfsheimildir innan flugvallarins, reglur um hindranafleti í nágrenni flugvallarins og á aðflugs- og fráflugsleiðum að flugvellinum auk reglna um notkun sýnilegra lasergeisla sem nauðsynlegar eru vegna öryggis flugvallarstarfseminnar. Hindranafletirnir hafa í för með sér hæðartakmarkanir á byggingum og öðrum mannvirkjum á áhrifasvæði vallarins sem nær til Akureyrarbæjar og sveitarfélaganna í nágrenni Akureyrar. Drög að reglunum hafa verið kynnt fulltrúum allra sveitarfélaga í nágrenni vallarins. Tilgangur og markmið reglnanna er: • að marka skýra og gagnsæja stefnu um leyfða starfsemi innan flugvallarins, • að tryggja flugöryggi vallarins með því að binda í skipulag hæðartakmarkanir sem nauðsynlegar eru vegna öryggis flugvallarstarfseminnar, og reglur um notkun sýnilegra lasergeisla sem nauðsynlegar eru vegna öryggis flugvallar- starfseminnar, • að einfalda umfjöllun og ákvarðanatöku um starfsemi innan vallarins og hæðir húsa innan og í nágrenni flugvallarins. Með reglunum er verið að setja nánari reglur um starfsemi innan flugvallarins en gert er í deiliskipulagi. Þá er verið að festa í sessi með skipulagi hindranafleti vallarins, þ.e. takmarkanir á hæðum húsa á tilteknum svæðum, sem unnið hefur verið eftir hingað til. Eru hindranafletir þessir byggðir á skilgreiningum alþjóðlegra skuldbindinga svo sem Chicago samningnum, lögum um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, og reglugerð um flugvelli nr. 464/2007. Tillaga að skipulagsreglum fyrir Akureyrarflugvöll er hér með auglýst til kynningar en tillagan er til sýnis í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli frá og með 23. maí 2011 til og með 20. júní. Hægt er að nálgast tillöguna á heimasíðu Innanríkisráðuneytisins, http://www.innanrikisraduneyti.is, heimasíðu Flugmálastjórnar Íslands, http://www.caa.is, og heimasíðu ISAVIA ohf. http://www.isavia.is . Skorað er á fasteignaeigendur á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu og aðra hagsmunaaðila að kynna sér fyrirliggjandi drög að reglum. Athugasemdir eða ábendingar við tillöguna skulu vera skriflegar og berast innanríkisráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík, ekki seinna en 21. júní 2011. Eftir þann tíma verður ekki tekið við athugasemdum. Litið er svo á að þeir sem gera ekki athugsemdir við tillöguna teljist samþykkir henni. Eftir kynningartíma verða athugasemdir og ábendingar sem berast teknar til ítarlegrar athugunar. Verði ákveðið að ráðast í breytingar á tillögunni vegna athugasemdanna verða slíkar breytingar kynntar hlutaðeigandi áður en gengið verður endanlega frá reglunum. Auglýsing um gildistöku reglnanna verður birt í Lögbirtingablaðinu. Nánari upplýsingar veitir Hermann Hermannsson hjá Isavia ohf., netfang: hermann.hermannsson@ isavia.is, S : 424-4000. Innanríkisráðuneytinu, 18. maí 2011. Atvinnutækifæri Saumastofa til sölu Saumastofa í fullum rekstri til sölu. Saumastofan er vel búin tækjum og selst í einu lagi með vélum, lager, viðskiptasamböndum og öllu sem tilheyrir slíkum rekstri. Laust til afhendingar í lok júní n.k. Upplýsingar í s. 863-9305 eða thorsteinn@vobi.is F.h. Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar: Norðlingaskóli – grunnskólahúsgögn. Útboðsgögn á geisladisk verða seld á kr. 3.000 frá kl. 9:00 þann 25. maí 2011 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1. hæð. Opnun tilboða: 8. júní 2011 kl. 10:00, í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver. 12630 Sæmundarskóli – grunnskólahúsgögn. Útboðsgögn á geisladisk verða seld á kr. 3.000 frá kl. 9:00 þann 25. maí 2011 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1. hæð. Opnun tilboða: 8. júní 2011 kl. 10:30, í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver. 12631 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik. is/utbod F.h. Reykjavíkurborgar: Heimsending á mat – Akstur, EES útboð. Um er að ræða dreifingu á mat frá framleiðslueldhúsi Lindargötu 59, í heimahús og móttökueldhús víðsvegar um Reykjavík, alla daga ársins. Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 3.000 frá og með 24. maí 2011 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Opnun tilboða: 27. júní 2011, kl 10:00, í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver. 12615 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.