Fréttablaðið - 21.05.2011, Page 58
21. maí 2011 LAUGARDAGUR14
Til söluÚtboð
Tilkynningar
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
ÚTBOÐ ÚTBOÐ
Útboð nr. 15051 - Gervilimir
Ríkiskaup fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands
(SÍ) og Landspítalans (LSH) óska eftir tilboðum í
gervilimi, íhluti og tilheyrandi þjónustu.
Um er að ræða stoðtæki þ.e.a.s. gervihandleggi
og hendur, gervifótleggi og fætur ásamt liðum,
hulsum og tilheyrandi íhlutum, viðhalds- og
viðgerðarþjónustu.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem
verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, (www.rikiskaup.
is), eigi síðar en miðvikudaginn 25.maí n.k. Skila
skal tilboðum til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105
Reykjavík þar sem þau verða opnuð 1. september
2011, kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
ÚTBOÐ – HJÚKRUNARHEIMIL MOSFELLSBÆ.
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu og lagnir nýs
Hjúkrunarheimilis við Langatanga 2A í Mosfellsbæ.
Helstu verkþættir verksins eru gröftur og uppúrtekt 5.900 m³
og fylling 4.300 m³. Verkinu skal lokið 7. ágúst 2011. Útboðs-
gögn verða afhent frá og með miðvikudeginum 18. maí
2011 hjá Mosfellsbæ, einnig er hægt að fá útboðgögn afhent
rafrænt af verkefna vef með því að senda beiðni um aðgang
á pall@thg.is.
Kynningarfundur verður haldinn á verkstað þann 20. maí
2011 kl. 13. Tilboð verða opnuð þann 3. júní 2011 kl. 14 á
bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2, 2. hæð að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Sýslumaðurinn á Húsavík
Útgarði 1, 460 Húsavík, s: 464 5000
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð
á þeim sjálfum, sem hér segir:
Aðalbraut 24, fnr. 216-7216, 675 Raufarhöfn,
Norðurþingi, þingl. eig. Fasteignafélagið Bær ehf,
gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf, fimmtudaginn
26. maí 2011 kl. 11:00.
Austurvegur 2, fnr. 216-7702, 680 Þórshöfn,
Langanesbyggð, þingl. eig. Margrét Anna Hjaltadóttir,
gerðarbeiðendur Langanesbyggð og Vátryggingafélag
Íslands hf, fimmtudaginn 26. maí 2011 kl. 13:30.
Laugasel, jörð 153788, 641 Þingeyjarsveit, þingl. eig.
Byggingarfélagið Óseyri 16 ehf, gerðarbeiðandi NBI
hf, mánudaginn 30. maí 2011 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Húsavík
20. maí 2011
Innanríkisráðuneytið
auglýsir kynningu á skipulagsreglum
fyrir Akureyrarflugvöll.
Í samræmi við heimild í 59. gr. laga um loftferðir,
nr. 60/1998, með síðari breytingum, hefur
innanríkisráðherra ákveðið að setja skipulagsreglur
fyrir Akureyrarflugvöll. Reglurnar hafa m.a. að
geyma fyrirmæli um starfsemi og starfsheimildir
innan flugvallarins, reglur um hindranafleti í nágrenni
flugvallarins og á aðflugs- og fráflugsleiðum að
flugvellinum auk reglna um notkun sýnilegra
lasergeisla sem nauðsynlegar eru vegna öryggis
flugvallarstarfseminnar. Hindranafletirnir hafa
í för með sér hæðartakmarkanir á byggingum
og öðrum mannvirkjum á áhrifasvæði vallarins
sem nær til Akureyrarbæjar og sveitarfélaganna
í nágrenni Akureyrar. Drög að reglunum hafa
verið kynnt fulltrúum allra sveitarfélaga í nágrenni
vallarins.
Tilgangur og markmið reglnanna er:
• að marka skýra og gagnsæja stefnu um leyfða
starfsemi innan flugvallarins,
• að tryggja flugöryggi vallarins með því að binda
í skipulag hæðartakmarkanir sem nauðsynlegar
eru vegna öryggis flugvallarstarfseminnar, og
reglur um notkun sýnilegra lasergeisla sem
nauðsynlegar eru vegna öryggis flugvallar-
starfseminnar,
• að einfalda umfjöllun og ákvarðanatöku um
starfsemi innan vallarins og hæðir húsa innan og
í nágrenni flugvallarins.
Með reglunum er verið að setja nánari reglur
um starfsemi innan flugvallarins en gert er í
deiliskipulagi. Þá er verið að festa í sessi með
skipulagi hindranafleti vallarins, þ.e. takmarkanir
á hæðum húsa á tilteknum svæðum, sem unnið
hefur verið eftir hingað til. Eru hindranafletir þessir
byggðir á skilgreiningum alþjóðlegra skuldbindinga
svo sem Chicago samningnum, lögum um loftferðir
nr. 60/1998, með síðari breytingum, og reglugerð
um flugvelli nr. 464/2007.
Tillaga að skipulagsreglum fyrir Akureyrarflugvöll er
hér með auglýst til kynningar en tillagan er til sýnis
í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli frá og með 23.
maí 2011 til og með 20. júní. Hægt er að nálgast
tillöguna á heimasíðu Innanríkisráðuneytisins,
http://www.innanrikisraduneyti.is, heimasíðu
Flugmálastjórnar Íslands, http://www.caa.is, og
heimasíðu ISAVIA ohf. http://www.isavia.is .
Skorað er á fasteignaeigendur á Akureyri og
á Eyjafjarðarsvæðinu og aðra hagsmunaaðila
að kynna sér fyrirliggjandi drög að reglum.
Athugasemdir eða ábendingar við tillöguna skulu
vera skriflegar og berast innanríkisráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík, ekki seinna en
21. júní 2011. Eftir þann tíma verður ekki tekið við
athugasemdum. Litið er svo á að þeir sem gera
ekki athugsemdir við tillöguna teljist samþykkir
henni.
Eftir kynningartíma verða athugasemdir og
ábendingar sem berast teknar til ítarlegrar
athugunar. Verði ákveðið að ráðast í breytingar
á tillögunni vegna athugasemdanna verða slíkar
breytingar kynntar hlutaðeigandi áður en gengið
verður endanlega frá reglunum. Auglýsing um
gildistöku reglnanna verður birt í Lögbirtingablaðinu.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Hermannsson
hjá Isavia ohf., netfang: hermann.hermannsson@
isavia.is, S : 424-4000.
Innanríkisráðuneytinu,
18. maí 2011.
Atvinnutækifæri
Saumastofa til sölu
Saumastofa í fullum rekstri til sölu. Saumastofan er
vel búin tækjum og selst í einu lagi með vélum, lager,
viðskiptasamböndum og öllu sem tilheyrir slíkum rekstri.
Laust til afhendingar í lok júní n.k.
Upplýsingar í s. 863-9305 eða thorsteinn@vobi.is
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar:
Norðlingaskóli – grunnskólahúsgögn.
Útboðsgögn á geisladisk verða seld á kr. 3.000
frá kl. 9:00 þann 25. maí 2011 í þjónustuveri
Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1. hæð.
Opnun tilboða: 8. júní 2011 kl. 10:00, í Borgartúni
12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver.
12630
Sæmundarskóli – grunnskólahúsgögn.
Útboðsgögn á geisladisk verða seld á kr. 3.000
frá kl. 9:00 þann 25. maí 2011 í þjónustuveri
Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1. hæð.
Opnun tilboða: 8. júní 2011 kl. 10:30, í Borgartúni
12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver.
12631
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.
is/utbod
F.h. Reykjavíkurborgar:
Heimsending á mat – Akstur, EES útboð.
Um er að ræða dreifingu á mat frá framleiðslueldhúsi
Lindargötu 59, í heimahús og móttökueldhús
víðsvegar um Reykjavík, alla daga ársins.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 3.000 frá og
með 24. maí 2011 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar,
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík.
Opnun tilboða: 27. júní 2011, kl 10:00, í Borgartúni
12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver.
12615
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod