Fréttablaðið - 21.05.2011, Side 65
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011
Eitt elsta náttúrugripasafn landsins
fléttar saman listum, náttúru og
vísindum í sýningarhaldi sínu.
„Við erum með fasta grunnsýningu og tvær
til þrjár tímabundnar sýningar á ári. Við
erum nýbúin að opna eina slíka,“ segir Hilm-
ar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúru-
fræðistofu Kópavogs, og bætir við að það sé
sýningin Holað í steininn þar sem sýnd eru
verk eftir Hauk heitinn Einarsson, sem hann
vann í stein, bein og tré. „Guðríður Gísla-
dóttir, ekkja Hauks, gaf Náttúrufræðistof-
unni fyrir skömmu mjög gott safn af íslensk-
um kristöllum og steinum en þegar við sótt-
um safnið kom í ljós að Haukur hafði einnig
unnið mjög áhugaverða listmuni í steinana.“
Hilmar segir að safn Guðríðar og Hauks
hafi innihaldið mjög góð eintök af holufyll-
ingum. „Þar á meðal eru mjög góð eintök af
jaspis og sykurbergi,“ upplýsir Hilmar og
bætir við að Haukur hafi ekki aðeins unnið
í stein heldur einnig skorið muni í hvaltenn-
ur og tré. Hilmar telur að steinverkin, þar á
meðal hestar, álfkonur og huldumeyjar, séu
sérstaklega áhugaverð því fáir listamenn
hafi fengist við að vinna í íslenskt grjót.
Að sögn Hilmars er Náttúrufræðistofa
Kópavogs eina náttúrugripasafn höfuðborg-
arsvæðisins sem opið er almenningi. Þar er
föst grunnsýning auk tímabundinna sýn-
inga. „Við gerum jarðfræði og dýrafræði Ís-
lands skil og einnig erum við með lifandi
verur í fiskabúrum. Hlutverk stofunnar er
að safna, varðveita og sýna náttúrugripi,
standa að fræðslu og rannsóknum í náttúru-
fræðum og stuðla að náttúru- og umhverfis-
vernd,“ útskýrir Hilmar og segir að reynt sé
að flétta saman listum, náttúru og vísindum
í sýningarhaldinu. „Við bendum fólki á þessi
tengsl, sem eru nánari og djúpstæðari en
margir gera sér grein fyrir.“
Hilmar segir að Náttúrustofa Kópavogs
hafi verið opnuð árið 1983. „Þetta er með
eldri náttúrugripasöfnum í landinu. Það
var til húsa í kjallaraíbúð á Digranesvegi
12 fram til 2002, þegar við fluttum í nýtt og
glæsilegt hús í Hamraborg 6a, ásamt Bóka-
safni Kópavogs, við hliðina á Gerðarsafni og
Salnum. Þá varð alger bylting í allri starf-
semi og sýningarhaldi.“
Eina náttúrugripasafnið á höfuðborgarsvæðinu
Hilmar segir að jarðfræði og dýrafræði Íslands séu gerð skil á safninu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVAHilmar segir að aðsókn hafi aukist síðustu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Listasafn Íslands opnar
um næstu helgi tvær nýjar
sýningar. Annars vegar Konu
með verkum eftir listakonuna
Louise Bourgeois og hins
vegar Kjarval með úrvali
málverka og teikninga eftir
Jóhannes Svein Kjarval.
Louise Bourgeois fæddist í París
í Frakklandi árið 1911 og þykir
meðal fremstu listakvenna sög-
unnar. Hún lést í fyrra, 98 ára
að aldri, en hún vann fram á síð-
asta dag. Listasafn Íslands opnar
föstudaginn 27. maí sýningu með
28 verkum sem spanna allan list-
feril Bourgeois.
Halldór Björn Runólfsson safn-
stjóri hefur kynnt sér sögu lista-
konunnar. „Louise Bourgeois gift-
ist Ameríkana árið 1938 og flutt-
ist með honum til New York,“ segir
Halldór, en fyrstu verk listakon-
unnar eru málverk. „Í lok heims-
styrjaldarinnar seinni fór hún að
fikra sig yfir í höggmyndalist.
Ástæðan var sú að henni fannst
málaralistin of fjarlæg og óáþreif-
anleg. Þá tók hún einnig nærri
sér að vera fjarri öllum ættingj-
um sínum í Frakklandi,“ upplýsir
Halldór og telur að höggmyndirn-
ar hafi orðið nokkurs konar stað-
genglar fólks sem Bourgeois sakn-
aði að heiman. Árið 1950 sýndi hún
höggmyndir sínar í innsetningu.
Hún dró sig síðan í hlé í nokkur ár.
Í kringum 1960 steig hún fram
á ný og var þá farin að nota nýjan
efnivið á borð við latex í verk sín.
Halldór segir þá hafa komið í ljós
hversu mikil áhrif upplifanir í
bernsku höfðu á hana, til dæmis
að faðir hennar hélt hjákonu í veik-
indum móður hennar. „Hún vakti
athygli fyrir verk sem þóttu bein-
línis gróf kynferðislega,“ útskýrir
Halldór. Merkilegt er að Bourg-
eois sló í raun ekki í gegn fyrr en
árið 1982 þegar haldin var yfirlits-
sýning á verkum hennar í MoMA
í New York. Tíu árum síðar fékk
hún ómælda athygli á Documenta
9 listsýningunni í Kassel í Þýska-
landi. „Hún sló í gegn með stórum
klefa sem hægt var að ganga inn
í eins og herbergi. Á sýningunni
núna verða tveir klefar; annar frá
árinu 2006 sem hefur aldrei verið
sýndur. Á næstu 15 árum vann
hún fjölda klefa úr ýmsum efni-
viði,“ segir Halldór. Verkin á sýn-
ingunni Konu eru stikkprufur úr
ferli Bourg eois, allt frá málverk-
um til sjö metra köngulóar.
Föstudaginn 27. maí klukkan 20
verður einnig opnuð sýningin
Kjarval. Þar gefur að líta úrval
málverka og teikninga eftir Jó-
hannes Sveinsson Kjarval úr
safni Jóns Þorsteinssonar (1898–
1985) íþróttakennara og konu
hans Eyrúnar Guðmundsdóttur
(1898–1996). Á sýningunni er lögð
áhersla á kúbíska abstraksjón og
fígúrur í lifandi landi. Báðar sýn-
ingarnar standa til 11. september.
Bourgeois og Kjarval
Louise Bourgeois, Klefi (Svartir dagar), 2006. Með leyfi Cheim & Read and Hauser &
Wirth. LJÓSMYND, CHRISTOPHER BURKE.
Jóhannes S. Kjarval, Íslandslag (Hvassárgljúfur), 1949-1959, Listasafn Íslands.