Fréttablaðið - 21.05.2011, Qupperneq 70
21. maí 2011 LAUGARDAGUR38
D
óra Jóhannsdóttir
leikkona er mætt á
heimilislegt kaffi-
hús í miðbænum og
er að fletta tíma-
ritum þegar blaða-
maður mætir á svæðið. Við sitjum
við stóran glugga sem gefur Dóru
gott færi á að fylgjast með barna-
vagninum þar sem frumburðurinn
sefur vært. „Ég ætla að njóta lífsins
í sumar með honum. Ég verð hálf-
gerð grasekkja, Jörundur [Ragn-
arsson leikari] er að fara í tökur á
sjónvarpsseríunni Heimsendi og
verður lítið sjáanlegur á meðan,“
segir Dóra, sem er hæstánægð með
samveruna við soninn. „Ég naut mín
þvílíkt í fæðingarorlofinu, var dug-
leg að hitta fólk, ég held reyndar að
ég hafi sjaldan verið jafn upptekin
því að ég átti svo margar vinkon-
ur sem voru í fæðingarorlofi líka
og við vorum alltaf að hittast. Svo
var ég í kerrupúli í Laugardalnum,“
segir Dóra, sem eignaðist Ragnar
Eld fyrir réttu ári.
Draumur æskuvinkvenna
Á útmánuðum tók leikhópurinn Ég
og vinir mínir, sem Dóra er í, að
leggja drög að sýningunni Verði þér
að góðu. Sýningin er unnin í spuna
af hópnum, sem samanstendur eins
og nafnið gefur til kynna af vinum
og kunningjum. „Ég, Álfrún [Örn-
ólfsdóttir], Margrét [Bjarnadóttir]
og Rósa [Hrund Kristjánsdóttir]
erum æskuvinkonur úr Vesturbæn-
um. Og alveg síðan við vorum ung-
lingar langaði okkur til að gera eitt-
hvað skapandi saman. Álfrún var jú
alltaf í leikhúsinu, Margrét að dansa
og Rósa að sauma kjóla,“ útskýr-
ir Dóra og bætir við að þær hafi
ákveðið að láta slag standa haustið
2007. „Þá ákváðum við að sækja um
styrk og fengum með okkur vini og
vandamenn; þannig varð nafnið á
hópnum til.“
Ég og vinir mínir settu upp sýn-
inguna Húmanimal árið 2009 og
nýverið var frumsýnd sýning hóps-
ins Verði þér að góðu. Í henni er
fjallað um manninn sem félags-
veru. Hópurinn býður í partí og
varpar upp ýmsum myndum af því
hvernig fólk hagar sér í samkvæm-
um. Eins og í Húmanimal er leikur
og dans órjúfanleg heild; í hópnum
eru dansarar, leikarar og aðrir lista-
menn sem allir lögðu sitt af mörk-
um þegar sýningin var samin. „Það
leggja allir í hópnum mikið til þegar
við erum að semja verkið. Það væri
hægt að kalla þetta fullkomið lýð-
ræði, nema að lýðræði er aldrei full-
komið,“ segir Dóra.
Egóin sett til hliðar
„En sýningin er öll okkar og eng-
inn einn er með úrslitavald; þess
vegna erum við öll mjög sátt við
lokaútkomuna. Við eignum okkur
heldur ekki hugmyndir, egóin eru
eiginlega sett til hliðar,“ segir
Dóra, sem segir alla í hópnum til-
búna að gefa eftir til þess að sýn-
ingin verði sem best. „Við þekkj-
umst líka mjög vel og þekkjum
styrkleika og veikleika hinna.
Vitum að ef atriði krefst danshæfi-
leika er stundum betra að annar
dansarinn taki það að sér, en ann-
ars eru skil dansara og leikara
afar lítil. Og þeir sem ekki standa
á sviðinu, Rósa leikmyndahönnuð-
ur og Gísli Galdur tónlistarmað-
ur, vinna líka með okkur í spuna á
æfingaferlinu,“ segir Dóra.
Ekki er hægt að segja annað en
að samvinna hópsins virki vel, því
Verði þér að góðu hefur fengið afar
góða dóma. Dóra segir það mjög
ánægjulegt. „Það er frábært að
gera verk þar sem hópurinn vinnur
út frá eigin hugmyndaflugi, smekk
og innsæi. Og ekki síður ef því er
vel tekið,“ segir Dóra.
Ólétt í fimm leikritum
Dóra útskrifaðist sem leikkona
árið 2006. Hún hefur leikið stór
hlutverk í bæði Þjóðleikhúsinu og
Borgarleikhúsinu, auk þess sem
íslenskir sjónvarpsáhorfendur
muna eftir henni úr sjónvarpsþátt-
unum Hamrinum sem sýndir voru
í Ríkissjónvarpinu. Í haust tekur
hún upp þráðinn í Borgarleikhúsinu
í leikritinu Gyllta drekanum undir
leikstjórn Kristínar Eysteinsdótt-
ur. Áður en hún fór í fæðingaror-
lof starfaði hún í Borgarleikhús-
inu og lék ólétt í fimm hlutverkum.
„Ég lék ólétt í Húmanimal, Heima
er best, Gauragangi, Rautt brennur
fyrir og Góðum Íslendingum. Þetta
fannst mér frábært, það er svo oft
með leikkonur að þær þurfa að
sitja heima þegar farið er að sjást
á þeim. Ég fékk hins vegar að leika
nokkur hlutverk. Í Góðum Íslend-
ingum var óléttan bara skrifuð inn
í verkið. Svo fór reyndar þannig að
þegar átti að frumsýna þá var ég
komin fimm mánuði á leið og það
sást ekkert á mér. Það var meira að
segja verið að spá í að setja á mig
gervibumbu. En það fór nú ekki
svo, og viku síðar poppaði bumban
út,“ segir Dóra að lokum.
Naut mín í botn í
fæðingarorlofinu
Dóra Jóhannsdóttir lét æskudrauminn rætast og lærði leiklist. Hún er
einn forsprakka hópsins Ég og vinir mínir sem sýnir nú leikritið Verði þér
að góðu. Sigríður Björg Tómasdóttir hitti Dóru yfir kaffibolla í vikunni.
■ Hver er eftirminnilegasta
leiksýning sem þú hefur séð? Ég
sá Gauragang þegar ég var 14 ára
og fannst það stórkostlegt. Ég held
að leikkonudraumurinn hafi jafnvel
fyrst kviknað þá.
■ Tekið þátt í? Verði þér að góðu.
Ógleymanlegt ferli og ég er auk
þess mjög stolt af þeirri sýningu.
■ Hvert er draumahlutverkið?
Ég á ekkert svoleiðis. Ég hugsa
frekar um drauma-samstarfsfólk og
drauma-verkefni.
■ Uppá-
haldsstaður
á Íslandi?
Vestfirðirnir
eru magn-
aðir.
■ Uppá-
haldsstaður
í útlöndum?
New York.
■ Mesta
afrekið mitt?
Mesta, mikil-
vægasta og
besta hingað
til er sonur
minn.
■ Uppáhalds-
lagið? Lay
Lady Lay með
Bob Dylan.
■ Ef þú værir einræðisherra í einn
dag hvað myndir þú gera fyrst?
Ég myndi ekki fíla það að vera
einræðisherra, það fyrsta sem ég
myndi gera væri örugglega að koma
á lýðræði.
■ Hvaða listamanns líturðu mest
upp til? Það eru mjög margir. Ég
á til dæmis marga vini og kunn-
ingja sem mér finnst vera frábærir
listamenn og ég lít upp til þeirra út
af ólíkum ástæðum.
■ UPPÁHALDSLAGIÐ ER MEÐ BOB DYLAN
Mikil frjósemi er hjá leikhópnum
Ég og vinir mínir sem standa að
sýningunni Verði þér að góðu. Tvær
leikkvennanna í sýningunni, Álfrún
Örnólfsdóttir og Saga Sigurðardóttir
eru óléttar. Álfrún er raunar komin
rúma sjö mánuði á leið og óléttan er
hluti af hlutverki hennar í sýningunni.
Rósa Hrund Kristjánsdóttir, leik-
mynda- og búningahönnuður, er
einnig ólétt. Dóra Jóhannsdóttir á
ársgamalt barn og Sveinn Ólafur
Gunnarsson leikari eignaðist barn
meðan á æfingaferlinu stóð. Friðrik
Friðriksson leikstjóri á svo von á öðru
barni sínu með Álfrúnu.
Þess má geta að sýningin Verði þér að
góðu er sýnd í Kassanum í Þjóðleik-
húsinu, og eru tvær sýningar fram
undan, 3. og 4. júní.
■ FRJÓSEMI Í LEIKHÓPNUM
DÓRA OG RAGNAR ELDUR Verði þér að
góðu er fyrsta sýningin sem Dóra tekur
þátt i síðan hún eignaðist frumburðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HULDA SIF ÁSMUNDSDÓTTIR
Golfmót VM
Mótið er fyrir félagsmenn VM-Félag
vélstjóra og málmtæknimanna og
má hver félagsmaður bjóða
með sér einum gesti.
Mótsgjaldið er 6.850 kr.
fyrir hvern þátttakanda.
Matur og nestispakki á
völlinn er innifalinn í
þátttökugjaldinu.
Umsjónarmenn mótsins eru:
Ragnar Halldórsson, Hjálmar
Þ. Baldursson og Steingrímur
Haraldsson.
Skráning hefst 18. maí
í síma 575-9800 eða á
netfangið vm@vm.is
Skráningu lýkur 1. júní.
VM-mótið í golfi
verður haldið á
Keilisvellinum
föstudaginn 3. júní kl. 12.
VM-FÉLAG VÉLSTJÓRA OG MÁLMTÆKNIMANNA
Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - 575 9800 - www.vm.is