Fréttablaðið - 21.05.2011, Side 76

Fréttablaðið - 21.05.2011, Side 76
21. maí 2011 LAUGARDAGUR44 Morgun einn þegar kvikmyndagerð- armaðurinn Ragnar Trausti Ragnars- son var að lesa Fréttablaðið fann hann efni sem hann dauðlangaði að mynda. Það fjallar um hljómsveit í Klúbbnum Geysi. „Ég var búinn að leita lengi að efni í heimildarmynd og hafði ekki dott- ið niður á neitt. En þegar ég rakst á nýlega umfjöllun í Fréttablaðinu um hljómsveitina Kela og kiðlingana hjá Klúbbnum Geysi fannst mér hún strax heillandi,“ segir Ragnar Trausti Ragn- arsson kvikmyndagerðarmaður. Það sem honum finnst hvað áhugaverðast er hvernig tónlistin hefur hjálpað þeim sem eru með geðsjúkdóma á bak við sig að takast á við lífið aftur og hvað hún gefur þeim mikið. „Ég hafði sam- band við forsprakka hljómsveitarinnar og fékk að koma í heimsókn. Ég gerði hópnum ljóst að ef einhver vildi ekki vera í mynd gæti ég ekki gert þetta en það voru allir jákvæðir.“ Ragnar Trausti vill hafa myndina þannig að hann verði sem fluga á vegg. „Ég er nú kannski ekki alveg búinn að negla niður hvernig uppbyggingin verður en eins og ég hef lært heimild- armyndagerð fer maður á staðinn og tekur upp eins mikið og maður getur, er með einhverja beinagrind í hugan- um en svo verður myndin til í klippi- herberginu. Við ræddum það að taka upp tónleika og bandinu hefur dottið í hug að semja sérstakt lag fyrir mynd- ina.“ Ragnar Trausti sér fyrir sér 50 mín- útna mynd en kveðst kannski ekki byrja fyrr en í haust og halda svo áfram næsta ár. „Svona heimildarmynd krefst langs tíma. Mér finnst ég þurfa að kynnast fólkinu án þess að vera með myndavélina á því. Svo langar mig að fylgja hverjum og einum eftir og upp- lifa hvernig daglegt líf tvinnast saman við hljómsveitina og Klúbbinn Geysi.“ Eins og er stoppar verkefnið á fjár- magnsskorti. „Ég er ekki með neitt framleiðslufyrirtæki á bak við mig og er búinn að hafa samband við nokkr- ar stofnanir en þar er ekkert að hafa,“ segir Ragnar Trausti. „En þetta er langtímaverkefni og vonandi rætist úr.“ gun@frettabladid.is Heillandi efni í heimildarmynd HLAKKA TIL Ragnar Trausti með Kela og kiðlingunum í Klúbbnum Geysi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Guðmundar Vals Sigurðssonar klæðskerameistara, áður til heimilis Skúlagötu 40. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild V-2, Dvalarheimilinu Grund við Hringbraut, fyrir þeirra frábæru umönnun og aðstoð. Halldóra Ó. Guðlaugsdóttir Arnbjörg Guðmundsdóttir Ólafur Jón Sigurðsson Elín Guðmundsdóttir Sigríður Guðmundsdóttir Finn Sörensen Óli Valur Guðmundsson Jan-Ola Hjelte barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu, langömmu og langalangömmu Elínborgar Maríu Einarsdóttur Ytri-Varðgjá, Eyjafjarðarsveit. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Lerkihlíðar á dvalarheimilinu Hlíð fyrir hlýja og góða umönnun. Tryggvi Harðarson Freyja Guðmundsdóttir Sigríður Harðardóttir Svavar Harðarson Brynhildur Pálsdóttir Birna Harðardóttir og ömmubörnin öll. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Gunnars Hafsteins Bjarnasonar Látraströnd 3, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sólvangs í Hafnarfirði fyrir umhyggju og vinarþel. Magnea Rósa Tómasdóttir Sigríður Erla Gunnarsdóttir Áslaug María Gunnarsdóttir Agnar Darri Gunnarsson Inga Gottskálksdóttir og barnabörn. Elskuleg systir mín og móðursystir Margrét G. Eyjólfsdóttir sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 16. maí, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu, þriðjudaginn 24. maí kl. 13.00. Oddný Eyjólfsdóttir Ólína Ágústa Jóhannesdóttir Kjartan Georg Gunnarsson Jóhannes Ágúst Jóhannesson María Skaftadóttir Anna Margrét Jóhannesdóttir Högni Hróarsson og fjölskyldur Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Guðjón Jónsson bifreiðastjóri Víðivöllum 26, Selfossi, lést af slysförum þriðjudaginn 17. maí. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 27. maí, kl. 13.30. Guðmunda Ólafsdóttir Jón Viðar Guðjónsson Carola Ida Köhler Steinþór Guðjónsson Sigríður Garðarsdóttir Reynir Guðjónsson Soffía Stefánsdóttir Guðbjörg Guðjónsdóttir Sigurður Gunnarsson barnabörn og barnabarnabarn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför Guðmundar Jónssonar Birnustöðum, Skeiðum. Sigrún Kristbjörnsdóttir Valgerður Guðmundsdóttir Þórarinn Óskarsson Guðlaug Guðmundsdóttir Haraldur M. Kristjánsson Kristbjörn Guðmundsson Sigrún Magnúsdóttir Jóna Guðmundsdóttir Gísli Sigurðsson Jón G. Guðmundsson Kristín Guðmundsdóttir Ágúst Guðmundsson Jóhanna Valgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður og afa Hreins Óskarssonar múrarameistara, Mýravegi 113. Sigurjóna Kristinsdóttir Margrét Kristín Hreinsdóttir Sigurður Valur Ingólfsson Agnea Björg H. Sandvold Jon Cristian Sandvold Guðrún Hreindís Hreinsdóttir Kristinn Hreinsson Kolbrún Jónsdóttir og afabörn Hjartkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, Ármann Sigvaldason Borgartúni, Þykkvabæ, lést á heimili sínu miðvikudaginn 18. maí. Útförin fer fram frá Þykkvabæjarkirkju miðvikudaginn 25. maí kl. 14.00. Jóna Katrín Guðnadóttir Sigvaldi Ármannsson Dagný Sigvaldadóttir Eyþór Jónsson Guðni Sigvaldason Sigrún Þorsteinsdóttir Sigurjóna Sigvaldadóttir Emil J. Ragnarsson Margrét Á. Sigvaldadóttir Óskar E. Aðalsteinsson Guðfinna B. Sigvaldadóttir Erlendur R. Guðjónsson og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hulda Klara Svanlaugsdóttir fv. hjúkrunarkona, lést á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 12. maí. Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn 23. maí kl. 13.00. Aðstandendur vilja færa starfsfólki deildar E3 á Hrafnistu þakkir fyrir alúð og góða umönnun. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á líknarfélög. Eva Thorstensen Böðvar Sigvaldason Erna Thorstensen Ágúst Þór Oddgeirsson Óli Viðar Thorstensen Anna Laxdal Agnarsdóttir Svanhildur Thorstensen Baldur P. Thorstensen Halldóra Georgsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.