Fréttablaðið - 21.05.2011, Page 76
21. maí 2011 LAUGARDAGUR44
Morgun einn þegar kvikmyndagerð-
armaðurinn Ragnar Trausti Ragnars-
son var að lesa Fréttablaðið fann hann
efni sem hann dauðlangaði að mynda.
Það fjallar um hljómsveit í Klúbbnum
Geysi.
„Ég var búinn að leita lengi að efni
í heimildarmynd og hafði ekki dott-
ið niður á neitt. En þegar ég rakst á
nýlega umfjöllun í Fréttablaðinu um
hljómsveitina Kela og kiðlingana hjá
Klúbbnum Geysi fannst mér hún strax
heillandi,“ segir Ragnar Trausti Ragn-
arsson kvikmyndagerðarmaður. Það
sem honum finnst hvað áhugaverðast
er hvernig tónlistin hefur hjálpað þeim
sem eru með geðsjúkdóma á bak við
sig að takast á við lífið aftur og hvað
hún gefur þeim mikið. „Ég hafði sam-
band við forsprakka hljómsveitarinnar
og fékk að koma í heimsókn. Ég gerði
hópnum ljóst að ef einhver vildi ekki
vera í mynd gæti ég ekki gert þetta en
það voru allir jákvæðir.“
Ragnar Trausti vill hafa myndina
þannig að hann verði sem fluga á vegg.
„Ég er nú kannski ekki alveg búinn
að negla niður hvernig uppbyggingin
verður en eins og ég hef lært heimild-
armyndagerð fer maður á staðinn og
tekur upp eins mikið og maður getur,
er með einhverja beinagrind í hugan-
um en svo verður myndin til í klippi-
herberginu. Við ræddum það að taka
upp tónleika og bandinu hefur dottið í
hug að semja sérstakt lag fyrir mynd-
ina.“
Ragnar Trausti sér fyrir sér 50 mín-
útna mynd en kveðst kannski ekki
byrja fyrr en í haust og halda svo
áfram næsta ár. „Svona heimildarmynd
krefst langs tíma. Mér finnst ég þurfa
að kynnast fólkinu án þess að vera með
myndavélina á því. Svo langar mig að
fylgja hverjum og einum eftir og upp-
lifa hvernig daglegt líf tvinnast saman
við hljómsveitina og Klúbbinn Geysi.“
Eins og er stoppar verkefnið á fjár-
magnsskorti. „Ég er ekki með neitt
framleiðslufyrirtæki á bak við mig og
er búinn að hafa samband við nokkr-
ar stofnanir en þar er ekkert að hafa,“
segir Ragnar Trausti. „En þetta er
langtímaverkefni og vonandi rætist
úr.“ gun@frettabladid.is
Heillandi efni í heimildarmynd
HLAKKA TIL Ragnar Trausti með Kela og kiðlingunum í Klúbbnum Geysi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa
og langafa,
Guðmundar Vals
Sigurðssonar
klæðskerameistara,
áður til heimilis Skúlagötu 40.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild V-2,
Dvalarheimilinu Grund við Hringbraut, fyrir þeirra
frábæru umönnun og aðstoð.
Halldóra Ó. Guðlaugsdóttir
Arnbjörg Guðmundsdóttir Ólafur Jón Sigurðsson
Elín Guðmundsdóttir
Sigríður Guðmundsdóttir Finn Sörensen
Óli Valur Guðmundsson Jan-Ola Hjelte
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu, langömmu
og langalangömmu
Elínborgar Maríu
Einarsdóttur
Ytri-Varðgjá, Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Lerkihlíðar á
dvalarheimilinu Hlíð fyrir hlýja og góða umönnun.
Tryggvi Harðarson Freyja Guðmundsdóttir
Sigríður Harðardóttir
Svavar Harðarson Brynhildur Pálsdóttir
Birna Harðardóttir
og ömmubörnin öll.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför mannsins míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
Gunnars Hafsteins
Bjarnasonar
Látraströnd 3, Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sólvangs
í Hafnarfirði fyrir umhyggju og vinarþel.
Magnea Rósa Tómasdóttir
Sigríður Erla Gunnarsdóttir
Áslaug María Gunnarsdóttir
Agnar Darri Gunnarsson Inga Gottskálksdóttir
og barnabörn.
Elskuleg systir mín og móðursystir
Margrét G. Eyjólfsdóttir
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn
16. maí, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu,
þriðjudaginn 24. maí kl. 13.00.
Oddný Eyjólfsdóttir
Ólína Ágústa Jóhannesdóttir Kjartan Georg Gunnarsson
Jóhannes Ágúst Jóhannesson María Skaftadóttir
Anna Margrét Jóhannesdóttir Högni Hróarsson
og fjölskyldur
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðjón Jónsson
bifreiðastjóri
Víðivöllum 26, Selfossi,
lést af slysförum þriðjudaginn 17. maí. Útför hans fer
fram frá Selfosskirkju föstudaginn 27. maí, kl. 13.30.
Guðmunda Ólafsdóttir
Jón Viðar Guðjónsson Carola Ida Köhler
Steinþór Guðjónsson Sigríður Garðarsdóttir
Reynir Guðjónsson Soffía Stefánsdóttir
Guðbjörg Guðjónsdóttir Sigurður Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabarn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför
Guðmundar Jónssonar
Birnustöðum, Skeiðum.
Sigrún Kristbjörnsdóttir
Valgerður Guðmundsdóttir Þórarinn Óskarsson
Guðlaug Guðmundsdóttir Haraldur M. Kristjánsson
Kristbjörn Guðmundsson Sigrún Magnúsdóttir
Jóna Guðmundsdóttir Gísli Sigurðsson
Jón G. Guðmundsson Kristín Guðmundsdóttir
Ágúst Guðmundsson Jóhanna Valgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði,
stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður og afa
Hreins Óskarssonar
múrarameistara, Mýravegi 113.
Sigurjóna Kristinsdóttir
Margrét Kristín Hreinsdóttir Sigurður Valur Ingólfsson
Agnea Björg H. Sandvold Jon Cristian Sandvold
Guðrún Hreindís Hreinsdóttir
Kristinn Hreinsson Kolbrún Jónsdóttir
og afabörn
Hjartkær sonur okkar, bróðir, mágur
og frændi,
Ármann Sigvaldason
Borgartúni, Þykkvabæ,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 18. maí. Útförin fer
fram frá Þykkvabæjarkirkju miðvikudaginn
25. maí kl. 14.00.
Jóna Katrín Guðnadóttir Sigvaldi Ármannsson
Dagný Sigvaldadóttir
Eyþór Jónsson
Guðni Sigvaldason Sigrún Þorsteinsdóttir
Sigurjóna Sigvaldadóttir Emil J. Ragnarsson
Margrét Á. Sigvaldadóttir Óskar E. Aðalsteinsson
Guðfinna B. Sigvaldadóttir Erlendur R. Guðjónsson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hulda Klara
Svanlaugsdóttir
fv. hjúkrunarkona,
lést á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 12. maí.
Útförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn 23. maí
kl. 13.00. Aðstandendur vilja færa starfsfólki deildar E3
á Hrafnistu þakkir fyrir alúð og góða umönnun. Blóm
og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hinnar látnu er bent á líknarfélög.
Eva Thorstensen Böðvar Sigvaldason
Erna Thorstensen Ágúst Þór Oddgeirsson
Óli Viðar Thorstensen Anna Laxdal Agnarsdóttir
Svanhildur Thorstensen
Baldur P. Thorstensen Halldóra Georgsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.