Fréttablaðið - 21.05.2011, Page 78
21. maí 2011 LAUGARDAGUR46
Af hverju fékkstu áhuga á töfra-
brögðum? Ég sá töframann sýna
töfrabrögð á Glerártorgi á Akur-
eyri. Ég heillaðist upp úr skón-
um og þá ákvað ég að þetta væri
það sem ég þyrfti að læra. Ég
fékk svo töfrabók í jólagjöf frá
Jóel bróður mínum og þá varð
ekki aftur snúið.
Hvenær byrjaðir þú að læra að
töfra? Um jólin 2005, strax eftir
að ég fékk töfrabókina.
Hvert var fyrsta töfrabragðið
sem þú lærðir? Það er svo langt
síðan. Ætli það hafi nú ekki samt
verið úr Töfrabragðabókinni.
Þar lærði ég til dæmis hvernig
á að láta manneskju svífa.
Hvernig getur maður lært
töfrabrögð og getur hver sem
er lært þau? Ég byrjaði á því
að skoða bækur þar sem töfra-
brögð eru kennd, svo
sendu nokkrir félagar í
Hinu íslenska töframanna-
gildi mér nokkur töfrabrögð
sem hjálpuðu mér. Eftir það
fór ég að hitta töframenn sem
hafa hjálpað mér mikið. Það
geta allir lært einföldustu
töfrabrögðin, en þegar
komið er í flóknari brögð
geta aðeins færir töfra-
menn það. En allir
geta komist langt
með miklum
áhuga og mikilli
æfingu.
Hvað æfir þú
þig mikið? Allur
minn frítími
fer í það að æfa
mig. Á venjuleg-
um degi eru þetta
svona 3-4 klukku-
stundir og svo enn
meira um helgar.
Eru töfrar bara plat
eða eru til alvöru
töfrar eins og í Harry
Potter? Þetta eru nátt-
úrulega sjónhverfingar
en mér persónulega finnst
það langt og leiðinlegt orð
svo að ég kýs að kalla sjón-
hverfingar töfra eða töfra-
brögð eða einfaldlega trikk.
Harry Potter fór í Hogwarts
sem er galdraskóli en sjálfur
trúi ég ekki á galdra.
A f hverju
kallar þú þig
Einar ein-
staka? Ég
vi ldi hafa
það
Einar
eitthvað
og spurði
pabba, sem
kom svo
með þetta.
Hvað ætlar
þú að verða
þegar þú
verður
stór?
Að
sjálfsögðu held ég áfram að vera
töframaður. Þegar ég var ungur
langaði mig til þess að vinna á
bensínstöð og svo langar mig
til þess að verða öryggisvörður.
Annars stefni ég á það að læra
íþróttafræði, en ég æfi frjáls-
ar íþróttir hjá Ungmennafélagi
Akureyrar (UFA).
Í hvaða skóla ertu? Ég er að
klára 9. bekk í Síðuskóla á Akur-
eyri.
Hvað finnst krökkunum um
að þú sért töframaður? Ef þú
meina krakkana í bekknum þá
held ég að þeim finnist það bara
fínt án þess að vita neitt um það.
En það eru oft krakkar sem
snúa sér við í búðum og segja:
Þetta er Einar einstaki.“
Hvað tekur þú oft að þér að
sýna fyrir fólk og við hvaða
tækifæri? Ég reyni að taka öllu
sem mér er boðið. Ég hef komið
mikið í vinnustaðaskemmtan-
ir, árshátíðir, stjórnmálakaffi,
stórafmæli, útihátíðir, barnaaf-
mæli og í fyrra sýndi ég í brúð-
kaupi. Ég hef farið í nokkra leik-
skóla en þá tek ég með mér vin
minn Tralla trúð sem ég kynnt-
ist á Húsavík þegar ég bjó þar.
Annars tek ég að mér að sýna
við flest öll tilefni.
Áttu þér einhverja fyrir-
mynd? Pabbi og mamma eru
mínar fyrirmyndir. Þau eru
snilld.
Hver er besti töframaður
heims? Það fer eftir því hvern-
ig töfrabrögð þeir sýna. Lance
Burton er meistari, mín skoð-
un á honum er að hann sé lif-
andi goðsögn.
Áttu einhver önnur áhugamál?
Já, íþróttir. Íþróttir eru æðisleg-
ar.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? Allur matur á að fara upp
í munn og ofan í maga.
Eitthvað að lokum? Já ég vil
minna á heimasíðuna mína
www.einareinstaki.com
krakkar@frettabladid.is
46
Það geta allir
lært einföld-
ustu töfrabrögðin,
en þegar komið er í
f lóknari trikk, geta
aðeins færir töfra-
menn það.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
KANN AÐ LÁTA
MANNESKJU SVÍFA
Einar Aron Fjalarsson, fimmtán ára, æfir töfrabrögð í þrjá til fjóra tíma á dag.
Sviðsnafn hans er Einar einstaki og sýnir hann töfrabrögð við ýmis tækifæri.
Hann segir alla geta lært að töfra.
Þrír ánamaðkar komu upp úr moldinni eftir rigningu og annar
sagði við hinn: „Þú ert svo sætur! Ég elska þig!“
Þá sagði sá þriðji: „Ertu eitthvað ruglaður? Þú ert að tala við
afturendann á þér!“
Einu sinni voru tvö bláber sem voru hjón. Karlinn sagði; „Mér er
kalt.“ „Já, auðvitað,“ sagði þá konan, „þú ert ber.“
Einu sinni var gamall blindur maður sem var úti að labba með
pappakassa í bandi. Lögga ein sá það. „Fallegur hundur sem þú
átt,“ sagði hann, því hann hélt að maðurinn héldi að pappa-
kassinn væri hundur. Þá svaraði sá blindi: „Sérðu ekki að þetta
er pappakassi?“ Löggan roðnaði og fór burt. Þá sagði gamli
kallinn: „Þarna göbbuðum við hann Snati!“
Hver er munurinn á lauk og fiðlu?
Það grætur enginn þegar fiðlan er skorin.
WWW.IKNOWTHAT.COM/ er kennslusíða fyrir krakka þar sem hægt er að velja
sér efni eins og listir, stærðfræði, teiknimyndir og fleira og fræðast um það með því að
leysa ýmsar þrautir tengdar viðkomandi efni.
Var gaman á Eldfærunum? Já,
það var mjög skemmtilegt.
Var eitthvað sem þér fannst
leiðinlegt í sýningunni? Nei,
ekkert sérstakt. Kannski aðeins
of stutt.
Með hverjum fórstu á sýn-
inguna? Pabba, mömmu og
Rönnu, litlu systur minni.
Skemmtu fullorðnir sér jafn
vel og krakkarnir? Ég var ekkert
að fylgjast með því.
Þekktirðu söguna áður? Já.
Ég hef oft heyrt hana. Svo á
ég líka bók með flestum
ævintýrum H.C. Andersen.
Var sýningin lík ævintýrinu
eins og þú þekkir það? Nei,
það var búið að bæta miklu gríni
inn í leikritið, sem var ekki í sög-
unni.
Hvernig leist þér á prinsess-
una? Erfið spurning, en Þröstur
Leó gerði þetta ágætlega. Hann
var fyndin prinsessa.
Hvernig líkaði þér tónlistin?
Hún var skemmtileg.
Varstu einhvern tímann
hræddur? Nei.
Mælirðu með henni við
aðra krakka? Já, ég geri
það.
Valþór Reynir Gunnarsson 10 ára LEIKHÚS
Niðurstaða: Fín sýning sem ég mæli með, sérstaklega fyrir
krakka á aldrinum þriggja til átta ára.
Eldfærin í Borgarleikhúsinu