Fréttablaðið - 21.05.2011, Side 82
21. maí 2011 LAUGARDAGUR50 50
menning@frettabladid.is
Hljóðbók með endursögn
Arthúrs Björgvins Bolla-
sonar á Brennu-Njáls sögu
er í öðru sæti á lista yfir
bestu hljóðbækur á þýsku,
sem fimmtán bókmennta-
gagnrýnendur í Þýskalandi
velja einu sinni í mánuði.
Hljóðbókin kom út fyrir skömmu,
ásamt skýringardiskum og endur-
sögn Sigrúnar Valbergsdóttur á
Laxdælu, á vegum þýska forlags-
ins Supposé, sem gefur eingöngu
út „talaðar“ (ekki lesnar) hljóð-
bækur.
„Ég hef að undanförnu ferðast
um með kynningu á nýju hljóðbók-
inni og verið tekið með kostum og
kynjum hjá áhugasömum Þjóðverj-
um,“ segir Arthúr Björgvin.
Endursögnin er rúmlega 60 mín-
útna löng og segir Arthúr því eðli
málsins samkvæmt stiklað á stóru.
„Upptökurnar tóku aftur á móti
tvo daga og svo tók við heilmikil
klippivinna. Í Njálu koma fyrir um
það bil 600 nöfn en í þessari útgáfu
koma 42 nöfn við sögu.“
Hljóðbækur njóta sívaxandi
vinsælda í Þýskalandi að sögn
Arthúrs, sem helgast sumpart af
lífsstílnum.
„Margir Þjóðverjar eyða
löngum stundum á hraðbrautunum
og þá getur hljóðbók verið þægileg
dægrastytting.“
Arthúr segir áhuga Þjóðverja á
fornbókmenntunum mikinn, enda
séu þær álitnar mikilvægur hluti
af hinum germanska menningar-
arfi.
Á næstunni er Egils saga Skalla-
grímssonar væntanleg frá sama
forlagi í endursögn Arthúrs og
síðar Gísla saga Súrssonar. Allar
þessar endursagnir á sögunum
voru teknar upp 2009 og 2010.
Arthúr býr í Frankfurt í Þýska-
landi og tekur meðal annars þátt
í að undirbúa heiðurshlutverk
Íslands á bókamessunni í Frank-
furt í október næstkomandi. Hann
er hins vegar staddur við skriftir
á Akureyri þessa dagana. Spurður
hverju hann sé að vinna að kveðst
Arthúr virða þá hjátrú höfunda að
tala sem minnst um verk í smíð-
um. „Það tengist hins vegar forn-
sögunum – ég er við sama hey-
garðshornið.“ bergsteinn@frettabladid.is
Þýskir hrifnir af hljóð-Njálu
ARTHÚR BJÖRGVIN BOLLASON Hljóðbækur eru vinsælar í Þýskalandi. Á dögunum
kom Njála út í endursögn Arthúrs og von er á Eglu og Gísla sögu Súrssonar.
Jonas Kaufmann, einn fremsti
óperusöngvari heims í dag, kemur
fram á tónleikum með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í Eldborgarsal
Hörpu í kvöld. Tónleikarnir eru
hluti af Listahátíð í Reykjavík.
Kaufmann mun meðal annars
syngja þekktar aríur úr óperunum
Carmen, Lohengrin, Cavalleria rus-
ticana og Tosca auk þess sem Sin-
fóníuhljómsveitin leikur vinsæla
óperuforleiki. Stjórnandi er Peter
Schrottner. Miðar á tónleikana
seldust upp fyrir nokkru.
Jonas Kaufmann er fæddur í
München í Þýskalandi árið 1969
og hóf feril sinn hjá Staatsthea-
ter Saarbrücken árið 1994. Nýver-
ið hlaut hann mikið lof gagnrýn-
enda fyrir túlkun sína á Don José
í Carmen og Cavaradossi í Toscu
Puccinis í Covent Garden og nú
nýlega kom hann fram ásamt
stjörnuliði stórsöngvara í Metro-
politan-óperunni, í uppfærslu
Roberts Lepage á öðrum hluta
Niflungahrings Wagners, Valkyrj-
Kaufmann í Eldborg
KAUFMANN Á ÆFINGU Kaufmann
er talinn einn fremsti óperusöngvari
heims.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
22.00 Lára Rúnars og Rúnar Þórisson
halda tónleika á Græna hattinum í
kvöld. Húsið opnar kl. 21 en tónleikarnir
hefjast kl. 22. Aðgangseyrir er kr. 1500.
➜ Sýningar
13.00 Vorsýning Iðnskólans í Hafnar-
firði opnar í dag kl. 13. Sýningin stendur
frá 21.-29. maí. Allir velkomnir.
➜ Hátíðir
19.00 Heimsslitahátíð Kjöttromm-
unnar verður haldin á skemmtistaðnum
Bakkusi. Dagskráin hefst kl. 19. Aðgang-
ur ókeypis.
Sunnudagur 22. maí 2011
➜ Tónlist
20.30 Jazzpíanóleikarinn Nikolaj Bent-
zon spilar á Jazzhátíð Garðabæjar í kvöld.
Tónleikarnir verða í safnaðarheimilinu,
hefjast kl. 20.30 og aðgangur er ókeypis.
20.30 Söngkonan Anna María Björns-
dóttir heldur tónleika í safnaðarheim-
ilinu á sunnudagskvöld kl. 20.30. Tón-
leikarnir eru liður í dagskrá Jazzhátíðar
Garðabæjar.
➜ Markaðir
12.00 Netverslanirnar Bambus.is,
Kindaknús, Snilldarbörn og Tamezonline
halda taubleiumarkað í dag frá kl.
12-16. Markaðurinn verður á neðri hæð
verslunarinnar Maður lifandi.
➜ Samkoma
14.00 Siglfirðingamessa verður í
Grafarvogskirkju á sunnudag kl. 14. Séra
Vigfús Þór Árnason þjónar fyrir altari.
Ræðumaður er Sæmundur Sigurjóns-
son. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
Laugardagur 21. maí 2011
➜ Tónleikar
14.00 Á sunnudaginn halda kórarnir í
Hamrahlíð tvenna tónleika í tilefni próf-
loka og sumarkomunnar. Fyrri tónleik-
arnir hefjast kl. 14 en þeir seinni kl. 16.
Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir.
17.00 Sönghópurinn Norðurljós heldur
vortónleika sína í Guðríðarkirkju á
sunnudag kl. 17. Miðaverð er kr. 1000
en frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
EINAR RÆÐIR HUGVIT Einar Þorsteinn Ásgeirsson hönnuður ræðir um
yfirlitssýninguna Hugvit á listamannsspjalli í Hafnarborg á sunnudag klukkan 15.
Einar er þekktur fyrir framúrstefnulega hönnun og rannsóknir á margflötungum
sem Ólafur Elíasson hefur til dæmis nýtt við hönnun Hörpu.
Rannís og Samtök iðnaðarins boða til opins fundar um möguleika á að nýta opinber
innkaup sem tæki til að örva nýsköpun í samfélaginu. Fundurinn á erindi jafnt til
opinberra aðila sem starfa við innkaup eða móta innkaupastefnur og fyrirtækja sem
gagn hafa af slíku samstarfi við hið opinbera.
Dagskrá
13:30 Opnunarávarp Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
13:40 European Cooperation on Public Procurement for Innovation
Luke Georghiou, Manchester Institute of Innovation Research, Manchester University
14:25 Opinber innkaup til nýsköpunar á Íslandi
Guðmundur Hannesson, Ríkiskaupum
14:45 Hverjar eru helstu hindranir nýsköpunar í gegnum opinber innkaup á Íslandi?
Svandís Nína Jónsdóttir, sérfræðingur á greiningarsviði Rannís
15:00 Notkun opinberra innkaup til að örva nýsköpun í íslensku atvinnulífi
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
15:50 SBRI and Innovation Platforms
David Golding, Technology Strategy Board, UK
16:20 Options for EU support for Procurement of Innovation
Abby Semple, Local Governments for Sustainability Europe
Skráning á rannis@rannis.is
Miðvikudaginn 25. maí kl. 13:30-17:00 á Hótel Sögu
Public Procurement for Innovation
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Margir Þjóðverjar
eyða löngum stund-
um á hraðbrautunum og þá
getur hljóðbók verið þægileg
dægrastytting.
ARTHÚR BJÖRGVIN BOLLASON
RITHÖFUNDUR OG FJÖLMIÐLAMAÐUR