Fréttablaðið - 21.05.2011, Síða 84

Fréttablaðið - 21.05.2011, Síða 84
21. maí 2011 LAUGARDAGUR52 Tvær myndlistarsýningar verða opnaðar í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur í dag; annars vegar yfirlitssýningin Sjónarmið – Á mótum myndlistar og heimspeki og hins vegar Teikningar og vegg- spjöld eftir Tomi Ungerer. Jón Gnarr borgarstjóri opnar báðar sýningarnar, sem eru hluti af Listahátíð í Reykjavík. Í Sjónarmið er gerð tilraun til að nálgast heimspekilegar hug- myndir í gegnum einstök mynd- listarverk. Átta sýningarstjórar völdu verk úr íslenskri samtíma- list, sem verða skoðuð í nýju sam- hengi. Sýningarstjórarnir eru allir heimspekimenntaðir og hafa áður fjallað um íslenska samtímalist út frá heimspekilegu sjónarhorni. Þetta eru þau Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir, Gunnar J. Árna- son, Gunnar Harðarson, Hafþór Yngvason, Jón Proppé, Margrét Elísabet Ólafsdóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir og Ólafur Gíslason. Samhliða sýningunni verður gefið út greinasafn eftir sýning- arstjórana með myndum af verk- um á sýningunni. Á sunnudag efna sýningarstjórarnir til opinn- ar umræðu með þátttöku gesta í Hafnarhúsinu. Seinni sýningin samanstendur af broti af teikningum og vegg- spjöldum Toni Ungerer, margverð- launaðs teiknara og rithöfundar sem er kunnur fyrir beitta sam- félagsrýni. Teikningar hans eru ýmist ætlaðar börnum eða full- orðnum. Á mánudag klukkan 17 heldur Thérèse Willer erindi um Tomi Ungerer og verk hans í Hafnar- húsinu. Fyrirlesturinn fer fram á frönsku og verður þýddur á íslensku á staðnum. Sjónarmið og Tomi Ungerer í Hafnarhúsi RUGGUSTÓLL Verk eftir Baldur Bragason frá 2007 er eitt verkanna á Sjónarmið- um. ÁN TITILS Sýning með teikningum eftir Tomi Ungerer opnar á morgun. Mælikvarðar fyrir virkni rannsókna og nýsköpunar hjá smáþjóðum Gildi mælikvarða fyrir rannsóknir og nýsköpun 09:00 Opnunarávarp. Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís 09:10 Gagnsemi mælikvarða fyrir rannsóknir þróun og nýsköpun: um hvað eru þessir mælikvarðar? Luke Georghiou, Institute of Innovation Research, Manchester University 09:30 Mælikvarðar smáþjóða - reynsla Íslands. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík 09:50 Sýn stærri fyrirtækja á mælikvarða rannsókna, þróunar og nýsköpunar. Hilmar Janusson, Össuri 10:20 Kaffi hlé 10:40 ERA-PRISM mælikvarðar. Patricia Laurens og Anna-Leena Asikainen 11:00 Hefðbundnir mælikvarðar fyrir rannsóknir, þróun og nýsköpun. Þorvaldur Finnbjörnsson, sviðsstjóri greiningarsviðs Rannís 11:15 Þróun mælikvarða fyrir rannsóknir, þróun og nýsköpun hjá smáþjóðum. Johan Hauknes, Nordisk institutt for studier av innovasjon, forskning og utdanning 11:40 Umræður um notagildi mælikvarða fyrir rannsóknir, þróun og nýsköpun hjá smáþjóðum. Gunther Clar og Maria Nedeva Hönnun og notkun mælikvarða fyrir rannsóknir og nýsköpun 13:00 Hönnun mælikvarða fyrir rannsóknir, þróun og nýsköpun. Luke Georghiou, Institute of Innovation Research, Manchester University 13:40 Mælikvarðar á færni til rannsókna og nýköpunar. Anna María Pétursdóttir, Háskóla Íslands 14:00 Hönnun mælikvarða, rannsóknir á rannsóknun, þróun og nýsköpun lítilla landa. Patricia Laurens, Anna-Leena Asikainen og Stephanie Vella 14:20 Hönnun mælikvarða, gagnsemi fyrir atvinnulíf. Davíð Lúðvíksson, Samtökum iðnaðarins 14:40 Kaffi hlé 15:00 Vinnuhópar 15:40 Samantekt og niðurstöður. Luke Georghiou, Institute of Innovation Research, Manchester University Rannís og Vísinda- og tækniráð efna til opinna funda um mælikvarða fyrir rannsóknir, þróun og nýsköpun hjá smáþjóðum Föstudaginn 27. maí á Hótel Sögu kl. 9-12 og 13-16 Athugið að fundirnir fara fram á ensku. Skráning á rannis@rannis.is Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Tenórarnir 3 og einn í útrás Jóhann Friðgeir Garðar Thór Cortes Gissur Páll Snorri Wium Diddú og Óskar Pétursson - Óperukórinn í Reykjavík Föstudaginn 3. júní kl. 20.00 Miðasala í Hörpu og á harpa.is aukatónl eika r í hörpu Miðasala hefs t kl .12 á mán udagi nn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.