Fréttablaðið - 21.05.2011, Qupperneq 84
21. maí 2011 LAUGARDAGUR52
Tvær myndlistarsýningar verða
opnaðar í Hafnarhúsi Listasafns
Reykjavíkur í dag; annars vegar
yfirlitssýningin Sjónarmið – Á
mótum myndlistar og heimspeki
og hins vegar Teikningar og vegg-
spjöld eftir Tomi Ungerer.
Jón Gnarr borgarstjóri opnar
báðar sýningarnar, sem eru hluti
af Listahátíð í Reykjavík.
Í Sjónarmið er gerð tilraun til
að nálgast heimspekilegar hug-
myndir í gegnum einstök mynd-
listarverk. Átta sýningarstjórar
völdu verk úr íslenskri samtíma-
list, sem verða skoðuð í nýju sam-
hengi. Sýningarstjórarnir eru allir
heimspekimenntaðir og hafa áður
fjallað um íslenska samtímalist
út frá heimspekilegu sjónarhorni.
Þetta eru þau Aðalheiður Lilja
Guðmundsdóttir, Gunnar J. Árna-
son, Gunnar Harðarson, Hafþór
Yngvason, Jón Proppé, Margrét
Elísabet Ólafsdóttir, Oddný Eir
Ævarsdóttir og Ólafur Gíslason.
Samhliða sýningunni verður
gefið út greinasafn eftir sýning-
arstjórana með myndum af verk-
um á sýningunni. Á sunnudag
efna sýningarstjórarnir til opinn-
ar umræðu með þátttöku gesta í
Hafnarhúsinu.
Seinni sýningin samanstendur
af broti af teikningum og vegg-
spjöldum Toni Ungerer, margverð-
launaðs teiknara og rithöfundar
sem er kunnur fyrir beitta sam-
félagsrýni. Teikningar hans eru
ýmist ætlaðar börnum eða full-
orðnum.
Á mánudag klukkan 17 heldur
Thérèse Willer erindi um Tomi
Ungerer og verk hans í Hafnar-
húsinu. Fyrirlesturinn fer fram
á frönsku og verður þýddur á
íslensku á staðnum.
Sjónarmið og Tomi
Ungerer í Hafnarhúsi
RUGGUSTÓLL Verk eftir Baldur Bragason
frá 2007 er eitt verkanna á Sjónarmið-
um.
ÁN TITILS Sýning með teikningum eftir Tomi Ungerer opnar á morgun.
Mælikvarðar fyrir virkni rannsókna
og nýsköpunar hjá smáþjóðum
Gildi mælikvarða fyrir rannsóknir og nýsköpun
09:00 Opnunarávarp. Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís
09:10 Gagnsemi mælikvarða fyrir rannsóknir þróun og nýsköpun:
um hvað eru þessir mælikvarðar? Luke Georghiou, Institute of
Innovation Research, Manchester University
09:30 Mælikvarðar smáþjóða - reynsla Íslands. Ari Kristinn Jónsson,
rektor Háskólans í Reykjavík
09:50 Sýn stærri fyrirtækja á mælikvarða rannsókna, þróunar
og nýsköpunar. Hilmar Janusson, Össuri
10:20 Kaffi hlé
10:40 ERA-PRISM mælikvarðar. Patricia Laurens og Anna-Leena Asikainen
11:00 Hefðbundnir mælikvarðar fyrir rannsóknir, þróun og nýsköpun.
Þorvaldur Finnbjörnsson, sviðsstjóri greiningarsviðs Rannís
11:15 Þróun mælikvarða fyrir rannsóknir, þróun og nýsköpun
hjá smáþjóðum. Johan Hauknes, Nordisk institutt for studier
av innovasjon, forskning og utdanning
11:40 Umræður um notagildi mælikvarða fyrir rannsóknir, þróun
og nýsköpun hjá smáþjóðum. Gunther Clar og Maria Nedeva
Hönnun og notkun mælikvarða fyrir rannsóknir og nýsköpun
13:00 Hönnun mælikvarða fyrir rannsóknir, þróun og nýsköpun.
Luke Georghiou, Institute of Innovation Research, Manchester University
13:40 Mælikvarðar á færni til rannsókna og nýköpunar. Anna María
Pétursdóttir, Háskóla Íslands
14:00 Hönnun mælikvarða, rannsóknir á rannsóknun, þróun og nýsköpun
lítilla landa. Patricia Laurens, Anna-Leena Asikainen og Stephanie Vella
14:20 Hönnun mælikvarða, gagnsemi fyrir atvinnulíf. Davíð Lúðvíksson,
Samtökum iðnaðarins
14:40 Kaffi hlé
15:00 Vinnuhópar
15:40 Samantekt og niðurstöður. Luke Georghiou, Institute
of Innovation Research, Manchester University
Rannís og Vísinda- og tækniráð efna til opinna funda um mælikvarða fyrir rannsóknir, þróun og nýsköpun hjá smáþjóðum
Föstudaginn 27. maí á Hótel Sögu kl. 9-12 og 13-16
Athugið að fundirnir fara fram á ensku.
Skráning á rannis@rannis.is
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Tenórarnir 3
og einn í útrás
Jóhann Friðgeir Garðar Thór Cortes
Gissur Páll Snorri Wium
Diddú og Óskar Pétursson - Óperukórinn í Reykjavík
Föstudaginn 3. júní kl. 20.00
Miðasala
í Hörpu
og á
harpa.is
aukatónl
eika
r í hörpu
Miðasala
hefs
t kl
.12 á
mán
udagi
nn