Fréttablaðið - 21.05.2011, Blaðsíða 86
21. maí 2011 LAUGARDAGUR54
folk@frettabladid.is
Sjöunda hljóðversplata Gusgus,
Arabian Horse, kemur út á mánu-
daginn. Erlendir dómar um plöt-
una eru byrjaðir að detta inn og á
bresku tónlistarsíðunni Suckingle-
mons fær hún 9 af 10 mögulegum
í einkunn. Þar segir gagnrýnand-
inn plötuna vera magnaða og að
lögin Deep Inside, Over og Arabi-
an Horse séu framúrskarandi góð.
Tíu lög eru á plötunni og syng-
ur Högni Egilsson úr Hjaltalín
í þremur þeirra, eins og Frétta-
blaðið hefur áður greint frá. Daní-
el Ágúst syngur í sex lögum og
Urður Hákonardóttir í þremur.
Undirbúningur fyrir plötuna hófst
í sumar bústað í Grímsnesi þar sem
grunnurinn var lagður og takt-
arnir ákveðnir. Á meðal gestaspil-
ara eru Samúel J. Samúelsson og
Davíð Þór Jónsson, sem spilar á
harmóníku og banjó.
Útgáfutónleikar vegna Arabian
Horse verða haldnir í Hörpunni
seint í júní eða í byrjun júlí. Gus-
gus kemur einnig fram á LungA-
hátíðinni á Seyðisfirði 16. júlí.
Tónleikaferð erlendis er svo fyrir-
huguð haustið 2012.
Magnað hjá Gusgus
SJÖUNDA PLATAN Biggi Veira, Daníel Ágúst og félagar í Gusgus eru mættir með nýja
plötu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kimberly Stewart á von
á barni með leikaranum
Benicio del Toro seinna á
árinu. Stewart ætlar að ala
barnið upp ein og herma
heimildir að del Toro sé
alls ekki ánægður með
fréttirnar.
„Benicio var ekki
ánægður með fréttirn-
ar. Hann hefur engan
áhuga á að festa ráð
sitt og vildi aldrei
eignast börn. Hann
gerði Kimberly það
fullkomlega ljóst að
samband þeirra yrði
aldrei meira en einn-
ar nætur gaman,“ var haft eftir
heimildarmanni. Stewart ætlast
þó ekki til þess að del Toro aðstoði
hana við uppeldið og nýtur mikils
stuðnings fjölskyldu sinnar. Það
má þó spyrja sig af hverju
del Toro heimtaði ekki að
fá að nota verjur fyrst
hann er svo mótfallinn
barneignum.
Vildi ekki barn
EKKI ÁNÆGÐUR Benicio
del Toro er ekki ánægður
með væntanlegan frumburð
sinn ef marka má slúðurfréttir
vestanhafs. NORDICPHOTOS/GETTY
Stórleikarinn Leonardo DiCaprio
sleit nýverið sambandi sínu við
fyrirsætuna Bar Refaeli. Svo
virðist sem DiCaprio hafi verið
fljótur að finna ástina á ný því
hann er orðaður við Blake Lively,
stjörnuna í Gossip Girl.
Aðeins nokkrum vikum eftir
að sambandsslit DiCaprio voru
opinberuð sást hann í Cannes
með Lively. „Hún var hvítklædd
og hann var með derhúfu. Þau
virtust vera par,“ var haft eftir
sjónar votti. Í vikunni birtust
myndir af leikurunum þar sem
þau voru í faðmlögum á skútu
einni í Cannes.
Í janúar á þessu ári birtu ýmis
göturit fréttir af því að DiCaprio
og Lively hefðu daðrað duglega og
látið vel hvort að öðru í afmæli
leikarans Jeremy Renner.
Nýtt Hollywood-par
NÝ ÁST? Leonardo DiCaprio og Blake
Lively hafa sést ítrekað saman eftir að
DiCaprio hætti með kærustu sinni, Bar
Refaeli. NORDICPHOTOS/GETTY
Samband leikaranna Roberts Patt-
inson og Kristen Stewart stendur
völtum fótum um þessar mundir
og á það rætur sínar að rekja til
ágangs Siennu Miller. Tímarit-
ið Star heldur því fram að Mill-
er sé stöðugt að senda Pattinson
smáskilaboð og að það fari fyrir
brjóstið á Stewart.
Pattinson og Miller skemmtu
sér saman í London eftir frumsýn-
ingu kvikmyndarinnar Water for
Elephants þar í landi og var Stew-
art ekki sátt við það. „Kristen og
Robert rifust heiftarlega eftir að
hún frétti af þessu og hún vildi fá
að vita hvort eitthvað hefði gerst
á milli þeirra. Sienna hefur einn-
ig verið dugleg að senda Roberti
smáskilaboð í gríð og erg. Krist-
en er viss um að hún sé hrifin af
Roberti,“ var haft eftir innanbúð-
armanni.
Rífast vegna Siennu
RÍFAST Kristen Stewart og Robert
Pattinson rifust vegna ágangs Siennu
Miller. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikarinn og sjarmörinn Johnny
Depp hefur engan áhuga á að
ganga í hjónaband með kærustu
sinni Vanessu Paradis. Þetta
kemur fram í nýlegu viðtali sem
birtist í breska blaðinu OK.
Depp hefur verið í sambandi
með frönsku söngkonunni Parad-
is í þrettán ár og eiga þau saman
tvö börn. „Við finnum ekki þörfina
til að gefa hvort öðru loforð opin-
berlega. Sumir ákveða að feta þá
braut en ekki við,“ segir Depp en
bætir við að hann sé mikill fjöl-
skyldumaður og sakni hennar
mikið þegar hann er á ferðalögum.
Vill ekki
hjónaband
ENGINN LOFORÐ Johnny Depp segist
ekki hafa þörf fyrir trúlofun og hjóna-
band en hann hefur verið með Vanessu
Paradis í þrettán ár. NORDICPHOTO/GETTY
Það var bjart yfir rauða dregilnum á kvikmyndahátíðinni í
Cannes þetta árið, en hátíðinni lýkur nú um helgina. Þrátt
fyrir að marga fagra kjóla hafi verið að sjá vakti það
athygli að flestar stjörnurnar virtust heillast af hvíta
litnum í ár. Hvítt hefur einnig verið ráðandi á litaspjaldi
sumarsins hjá frægu tískuhúsunum. Leikkonur
á borð við Umu Thurman og Rachel McAdams,
breska söngkonan Cheryl Cole og tísku-
fyrirmyndin Alexa Chung klæddust
allar hvítu í Cannes.
SÆTUR Alexa
Chung í
stuttum kjól
með síðum
ermum
í anda
sjötta
áratugar-
ins.
HÁ KLAUF
Fyrirsætan
Doutzen
Kroes í síð-
kjól.
GRÁTT OG
GLITRANDI
Mexíkóska
leikkonan
Salma
Hayek í
glitrandi
kjól.
FÖLBLEIKT
Leikkonan
Gianna Jun
í róman-
tískum kjól.
GEGNSÆTT Kirsten Dunst í afar
fögrum kjól. NORDICPHOTO/AFP
Útlitið hvítt í Cannes
BLÓM Leikkonan
Rachel McAdams í
stuttum kjól með
blómum á öxlum
og mjöðmum.
FLEGNASTI KJÓLL-
INN Breska söng-
konan Cheryl
Cole var djörf
í flegnum
hvítum síð-
kjól.
GLÆSILEG
Uma
Thurman
tók sig
vel út í
kjól með
mörgum
smáatrið-
um.
3 SINNUM HEFUR ELTIHRELLIRINN David Cocordan mætt heim til leikkonunnar Lindsay Lohan upp á síðkastið. Hún hefur fengið á hann
nálgunarbann, en hann hefur hrellt hana síðustu tvö ár.