Fréttablaðið - 21.05.2011, Síða 90
21. maí 2011 LAUGARDAGUR58
Tónlist ★★★★
Ástin og lífið 1971 - 2001
Magnús og Jóhann
Ástin og lífið 1971-2011 er tvö-
föld ferilsplata með lögum eftir
Jóhann Helgason og Magnús
Þór Sigmundsson. Hún kemur
út í tilefni af því að fjörutíu ár
eru liðin frá því að þeir hófu að
starfa saman, en fyrsta plata
þeirra félaga, sem hét einfald-
lega Magnús og Jóhann, kom út
árið 1972. Þeir eru báðir afburða
lagasmiðir og þess vegna er ekki
erfitt að finna fjörutíu lög eftir
þá fyrir safnplötu af þessu tagi.
Flest lögin á Ástin og lífið eru vel
þekkt og kalla fram minningar
hjá íslenskum hlustendum.
Þeir Magnús og Jóhann hafa
að sjálfsögðu ekki starfað saman
sem dúett samfellt í fjörutíu ár,
en þeir hafa haldið sambandinu
og haldið tónleika og gefið út plöt-
ur saman af og til. Þeir hafa samt
aldrei samið lög saman. Á Ástin
og lífið er jafnvægið fullkomið.
Tíu lög eru á hvorum diski, tíu
eftir Magnús og tíu eftir Jóhann.
Bæði Magnús og Jóhann hafa
samið mörg lög sem hafa náð vin-
sældum í flutningi annarra tón-
listarmanna. Við getum nefnt
sem dæmi Söknuð sem Vilhjálm-
ur Vilhjálmsson söng, Start-lagið
Seinna meir, Í Reykjavíkurborg
sem Þú og ég flutti og Ást sem
Ragnheiður Gröndal söng. Þeir
hafa líka sjálfir sungið marga
smelli, bæði saman sem Magnús
og Jóhann, með Change og á þeim
sólóplötum sem þeir hafa sent frá
sér. Ástin og lífið er hugsuð sem
lagahöfunda- og söngvaraplata
og þess vegna eru þau lög sem
þeir sjálfir sungu hér í sinni upp-
runalegu mynd, en þau sem aðrir
gerðu fræg eru endurhljóðrituð,
nokkur þeirra sérstaklega fyrir
þessa útgáfu.
Þetta þýðir að lög eins og Mary
Jane, Yakety Yak Smackety
Smack, Ástin og lífið, Álfar, Take
Your Time, She‘s Done It Again,
Jörðin sem ég ann og Blue Jean
Queen eru hér í þeim útgáfum
sem allir þekkja, en Söknuður
og Seinna meir í nýjum útgáfum.
Auk þess eru tvö ný lög, eitt eftir
hvorn höfund. Almennt séð er ég
mjög fylgjandi því að uppruna-
legar útgáfur séu notaðar á fer-
ilsplötum af þessu tagi, en sú
millileið sem hér er farin kemur
mjög vel út og gefur pakkanum
sterkari heildarmynd.
Tónlistarlega hafa þeir félagar
komið víða við. Einhvers konar
þjóðlagapopp er áberandi og mis-
dramatískar ballöður, en þarna
er líka tölvupopp frá níunda ára-
tugnum og rokk.
Á heildina litið er þetta frá-
bært safn. Útgáfan er líka glæsi-
leg. Hönnunin er flott og í fjöru-
tíu blaðsíðna bæklingi sem fylgir
eru allir textarnir og upplýsingar
um hvert lag fyrir sig, auk ljós-
mynda og skemmtilegs og fræð-
andi texta um þá félaga eftir
Steinar Berg Ísleifsson. Ómiss-
andi pakki fyrir íslenska popp-
aðdáendur.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Glæsileg ferilsplata
með tveimur af bestu lagasmiðum
Íslandssögunnar.
Melódískir meistarar
Söngkonan Cheryl Cole á að hafa
hætt með kærasta sínum, dansar-
anum Derek Hough. Cole flutti
nýverið til Los Angeles, þar sem
hún sest í eitt dómarasætið í
bandarísku X Factor þáttunum.
„Cheryl tilkynnti Derek að sam-
bandinu væri lokið stuttu eftir að
hún flutti til Los Angeles. Þetta
tók mjög á Derek því hann hafði
stutt hana eftir skilnaðinn hennar
og þegar hún veiktist af mal-
aríu,“ var haft eftir
heimildarmanni.
„Honum finnst
hann svikinn
og finnst sem
Cher yl hafi
notað hann.
Cheryl er mjög
metnaðargjörn
og gullfalleg,
ég held það sé
bara tíma-
spursmál hve-
nær hún verð-
ur komin með
heimsfræga
stjörnu upp á
arminn.“
Laus og liðug HVÍTIR MIÐALDRA KARLAR Í VANDA
CHARLIE SHEEN
(45 ÁRA)
Charlie Sheen blótaði öllum
í sand og ösku, hann trúði
því auðvitað staðfastlega að
sjónvarpsþátturinn Two and
a Half Men gæti aldrei haldið
áfram án hans. Hann gæti því
hagað sér eins og hann vildi.
En Sheen las spilin vitlaust,
honum var sparkað og í ljós
er komið að framleiðendur
þáttanna sýndu honum
einstaka þolinmæði, lánuðu
honum tíu milljónir dala og
þar fram eftir götunum. Svo fór auðvitað að Sheen
fékk sparkið og Ashton Kutcher var fenginn til að
hlaupa í skarðið.
ARNOLD SCHWARZENEGGER
(63 ÁRA)
Arnold Schwarzeneg-
ger var ein dáðasta
kvikmyndastjarna
heims áður en hann
sneri sér, fremur
óvænt, að því að
stjórna áttunda
stærsta efnahags-
kerfi heims. Addi
Svakanaggur, eins
og hann er gjarnan
kallaður í Andrésblöð-
unum, hafði yfir sér
ímynd hins fullkomna
fjölskylduföður, giftur
inn í eina elskuðustu fjölskyldu Ameríku; Kennedy-
fjölskylduna. En Arnold þreifst ekki með einni konu,
egó hans hafði víst taumlausa þörf fyrir að hlaupa af
sér hornin og síðustu fréttir benda til þess að þerna
á heimili þeirra hjóna hafi síður en svo verið eina
ástkona kraftakarlsins.
DOMINIQUE STRAUSS-KAHN
(62 ÁRA)
Framkvæmdastjóri
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
var handtekinn í New York
fyrir að nauðga hótel-
þernu. Hann var leiddur
í járnum fyrir dómara
í New York og látinn
dúsa í einangrunarklefa
á Rikers Island, þeim
alræmda stað, en gengur
nú laus gegn tryggingu. Í
kjölfarið byrjuðu ormarnir
að skríða upp úr gryfjunni
sinni; honum var lýst eins
og kynóðum simpansa, blaðakonur í Frakklandi viður-
kenndu að þær þyrðu ekki að ræða við hann einslega
og loks viðurkenndi dóttir guðdóttur framkvæmda-
stjórans að hann hefði reynt að þröngva henni til
samræðis við sig. Dominique Strauss-Kahn er enginn
venjulegur bankamaður; hann hefur verið heilinn í
baráttunni gegn heimskreppunni og var sterklega
orðaður við forsetaembætti Frakklands.
LARS VON TRIER
(55 ÁRA)
Lars Von Trier
er einn hæfi-
leikaríkasti
leikstjóri
Evrópu.
Kvikmyndum
hans hefur
verið hampað
og hrósað
af elítunni á
kvikmyndahá-
tíðum og
stjörnurnar
frá Holly-
wood sækjast
eftir að
vinna með
honum. En
sá tími gæti
verið liðinn
því Trier er
búinn að koma sér út úr húsi hjá
þeirri hátíð sem hefur dáð hann hvað
heitast: Cannes. Ummæli hans um
nasista, Adolf Hitler og Albert Speer
vöktu sterk viðbrögð og framkvæmda-
stjórnin ákvað loks að henda honum
út.
MEL GIBSON (55 ÁRA)
Mel Gibson og vandræði
hans hafa verið til staðar
síðastliðið ár. Hann hefur
staðið í heiftarlegri for-
ræðisdeilu við fyrrverandi
eiginkonu sína og verið
grunaður um að hafa
beitt hana heimilisof-
beldi. Hann var hand-
tekinn fyrir að keyra fullur
og jós úr skálum reiði
sinnar yfir gyðinga og
þeirra fólk. Gibson stóð
þá á hátindi ferils síns,
var nánast ósnertanlegur
og gat gert kvikmyndir
á óskiljanlegum tungumálum en nú vill enginn ráða
hann nema í b-spennumyndir.
Mel Gibson, Lars Von Trier,
Dominique Strauss Kahn,
Charlie Sheen og Arnold
Schwarzenegger. Allir eiga
þessir menn það sameiginlegt
að hafa haldið, á einum tíma-
punkti, að vald þeirra væri
ótakmarkað, ímynd þeirra
óhagganleg og þeir sjálfir
ósnertanlegir. Annað hefur
komið á daginn.