Fréttablaðið - 21.05.2011, Side 94
21. maí 2011 LAUGARDAGUR62
sport@frettabladid.is
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN verður samkvæmt heimildum fótbolta.net í landsliðshópi Ólafs Jóhannessonar
fyrir leikinn við Dani í undankeppni EM sem fer fram á Laugardalsvellinum 4. júní. Ólafur hefur ekki valið Eið Smára í
undanförnum tveimur leikjum en Eiður spilaði sinn 63. og síðasta landsleik á móti Portúgal í október síðastliðnum. Eiður
Smári hfur spilað 14 af 34 landsleikjum í boði síðan Ólafur tók við landsliðinu í árslok 2007.
HANDBOLTI „Dagurinn sem maður
hefur forðast að ræða um ansi
lengi er kominn. Fyrir fyrri leik-
inn var ekki neitt talað um þann
leik heldur voru allir að tala um
þennan leik. Maður hefur því
reynt að tala sem minnst um
hann,“ sagði Arnór Atlason, fyr-
irliði AG Köbenhavn, en lið hans
og Snorra Steins Guðjónssonar
vann fyrsta leikinn og getur orðið
meistari með sigri á Parken í dag.
„Þetta verður alveg geggjað. Við
fórum á Parken í dag [í gær] og
þar var enn grænn knattspyrnu-
völlur þannig að það var erfitt að
ímynda sér hvernig þetta verður
þegar handboltavöllurinn er kom-
inn í staðinn,“ sagði Arnór. Starfs-
menn verða á fullu í allan dag að
gera völlinn kláran en leikurinn
hefst klukkan 14 og er í beinni á
RÚV.
Arnór segir að það hafi verið
verk að vinna hjá þjálfarateymi
AGK að halda mönnum við efnið
í vikunni og hugsa um leikinn en
ekki alla þessa umgjörð. Ekki er
skrifað eða rætt um neitt annað en
þetta heimsmet sem verður sett.
Gamla metið er 31 þúsund manns
og var sett í Þýskalandi árið 2004.
„Það var rosaleg pressa á
okkur að vinna fyrsta leikinn
svo það yrði raunhæfur mögu-
leiki að verða meistari á Parken.
Sem betur fer tókst það. Krafan
um sigur í þessum leik er ekki
síðri, enda vilja forráðamennirn-
ir að bikarinn fari á loft í þess-
ari mögnuðu umgjörð. Það væri
leiðinlegt að klúðra leiknum. Það
verður líklega allt brjálað ef við
töpum. Við vitum ekki hvað ger-
ist ef við töpum. Ég veit ekki einu
sinni hvar oddaleikurinn verður
ef það þarf að spila hann,“ sagði
Arnór og bætti við að leikmenn
hefðu hreinlega ekki mátt ræða
um Parken í fjölmiðlum.
„Við erum með reynslumik-
ið lið þar sem menn hafa spila í
úrslitum Meistaradeildar sem og
á Ólympíuleikunum. Þessi sama
reynsla er ekki til staðar hjá and-
stæðingnum, þannig að þessi
umgjörð ætti frekar að hjálpa
okkur en þeim,“ sagði Arnór, en
leikmenn hafa þrátt fyrir allt
ekki getað forðast umræðuna um
þennan merkilega leik enda er
hún mikil.
„Þetta er í öllum blöðum. Svo
er leikurinn sýndur víða um heim
og það segir meira en mörg orð
um hversu stór viðburður þetta
er. Það er nákvæmlega það sem
okkar ágæti eigandi [Jesper Niel-
sen, innsk. blm.] vill. Honum
hefur tekist að gera leikinn stór-
an og félagið þekkt,“ sagði Arnór,
en margir hlógu dátt þegar Niel-
sen sagðist ætla að fylla Parken.
Arnór lék áður með FCK í
Kaupmannahöfn en það félag
sameinaðist AG og úr varð ofur-
liðið AGK. Arnór varð meistari
með FCK fyrir tveim árum og
þá var ekki hægt að fylla 1.500
manna höll í úrslitunum.
Fari svo að AGK vinni leikinn
mun það koma í hlut Arnórs að
lyfta bikarnum enda er hann fyr-
irliði liðsins. Það væri stór stund
fyrir þennan geðuga strák frá
Akureyri.
„Það væri toppurinn. Ég hugsa
ekki um annað enda er það mark-
miðið. Þetta verður rosalega
gaman en ég geri mér grein fyrir
að það þarf að spila sextíu mínút-
ur af handbolta áður en sá draum-
ur rætist. Ég ætla líka að njóta
dagsins enda er þetta stór dagur
fyrir handboltann.“
henry@frettabladid.is
Yrði toppurinn að lyfta bikarnum
Einstakur handboltaviðburður fer fram á knattspyrnuleikvanginum Parken í dag. Þá tekur Íslendingaliðið
AG Köbenhavn á móti Bjerringbro-Silkeborg í úrslitum danska handboltans. Heimsmet verður sett á
leiknum en 38 þúsund áhorfendur munu mæta. Arnór Atlason fær hugsanlega að lyfta bikar í leikslok.
LYFTIR HANN BIKARNUM? Arnór Atlason gæti lyft meistarabikarnum í Danmörku fyrir framan 38 þúsund manns í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN
Fallslagurinn í fyrirrúmi í lokaumferðinni í ensku úrvalsdeildinni:
Fimm lið geta fallið á morgun
SKRAUTLEGUR Ian Holloway, stjóri Blackburn, á erfitt verkefni
fyrir höndum í lokaumferðinni. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fer
fram á morgun og mun athyglin fyrst og fremst bein-
ast að fallbaráttunni. West Ham féll um síðustu helgi
en á morgun ræðst hvaða tvö lið falla með liðinu í
ensku B-deildina.
Spennan er mikil, þar sem aðeins eitt stig skilur að
fimm næstu lið fyrir ofan West Ham. Þau eru Black-
burn og Wolves, sem bæði eru með 40 stig, auk Birm-
ingham, Blackpool og Wigan sem eru öll með 39 stig.
Tvö liðanna, Wolves og Blackburn, mætast innbyrð-
is og ljóst að jafntefli mun duga hvorugu liðinu ef hin
liðin þrjú vinna sína leiki. Þau gætu þó bæði sloppið
ef úrslit annarra leikja verða hagstæð.
Verkefni hinna þriggja liðanna eru mismunandi
erfið en öll eiga þó útileiki. Wigan mætir Stoke, Birm-
ingham fer í heimsókn til Tottenham og Blackpool
þarf að fara á Old Trafford, þar sem Manchester Unit-
ed hefur ekki tapað leik í deildinni á tímabilinu. Það
munar einnig litlu á markatölu liðanna og ekki ólík-
legt að hún muni á endanum hafa mikið að segja.
Stoke hefur að litlu að keppa þar sem liðið siglir
lygnan sjó um miðja deild en Tottenham þarf helst að
vinna sinn leik til að komast í Evrópudeildina á næsta
tímabili. United er vitaskuld þegar orðið meistari og
hefur helst verið rætt um hvort að stjóri liðsins, Sir
Alex Ferguson, muni stilla upp sínu sterkasta liði á
morgun.
„Edwin van der Sar, Darren Fletcher, Patrice Evra,
Paul Scholes, Anderson og Dimitar Berbatov munu
spila,“ sagði Ferguson við enska fjölmiðla í gær en
hann hefur vitaskuld annað augað á úrslitaleiknum
gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu eftir viku.
Hann sagðist þó vilja klára tímabilið í ensku úrvals-
deildinni með sigri.
Leikirnir í lokaumferðinni fara allir fram á sama
tíma en þeir hefjast klukkan 15.00 á morgun.
QPR og Norwich eru komin upp í ensku úrvalsdeild-
ina og annað hvort Swansea eða Reading mun fylgja
þeim í deild þeirra bestu. - esá
Fallbaráttan í lokaumferðinni
Leikirnir:
Wolves - Blackburn
Stoke - Wigan
Tottenham - Birmingham
Manchester United - Blackpool
Staðan (leikir, markat., stig):
Blackburn 37 -14 40
Wolves 37 -19 40
Birmingham 37 -20 39
Blackpool 37 -21 39
Wigan 37 -22 39
West Ham 37 -24 33
FÓTBOLTI Það er áætluð heil
umferð í Pepsi-deild karla á
morgun þótt það sé enn óvissa í
kringum leik Þórs og FH fyrir
norðan vegna slæmra vallar- og
veðurskilyrða. Þór og FH eiga að
hefja umferðina klukkan 17.00.
Valsmenn fá nágranna sína
í Fram í heimsókn en sjö rauð
spjöld fóru á loft þegar liðin
mættust í Lengjubikarnum í
vetur. Valsmenn hafa tapað
tveimur síðustu leikjum sínum og
Fram hefur aðeins náð í 1 stig af
12 mögulegum.
Topplið KR sækir Stjörnuna
heima á gervigrasið í Garðabæ en
Stjörnumenn hafa unnið tvo úti-
leiki í röð og eru í 3. sæti. Liðin
mætast síðan aftur í bikarnum í
næstu viku.
Keflvíkingar taka á móti ÍBV
í beinni á Stöð 2 Sport en það má
búast við miklum markaleik ef
marka má síðustu þrjá leiki lið-
anna í Keflavík í efstu deild en
Keflavík hefur unnið þá alla þrjá
með markatölunni 16-4.
Víkingar taka síðan á móti
Grindavík í Víkinni og Blikar fá
Fylkismenn í heimsókn á Kópa-
vogsvöll. Allir leikirnir hefj-
ast klukkan 19.15 nema Þór-FH
(17.00) og Keflavík-ÍBV sem hefst
klukkan 20.00. - óój
Pepsi-deild karla í fótbolta:
Enn hiti á milli
Vals og Fram?
FENGU RAUTT Guðjón Pétur Lýðsson
og Halldór Kristinn Halldórsson fengu
báðir rautt þegar Valur og Fram mættust
síðast. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN