Fréttablaðið - 21.05.2011, Blaðsíða 102
21. maí 2011 LAUGARDAGUR70
PERSÓNAN
„Lajoie var svo hrifinn af því
hvað við Íslendingar fílum grófan
húmor,“ segir grínistinn Þórhallur
Þórhallsson.
Kanadíski grínistinn og You-
tube-stjarnan Jon Lajoie kom fram
í Háskólabíói í síðustu viku. Þórhall-
ur hitaði upp fyrir Lajoie og fékk
hann einnig til að leika með sér í
stuttu myndbandi sem hann birti á
Youtube. „Ég ákvað að nýta tæki-
færið á meðan hann var hérna og fá
hann til að sprella með mér,“ segir
Þórhallur. „Hann var meira en til
í það. Ekkert vandamál. Þar sem
hann byrjaði feril sinn á Youtube
vissi ég að hann væri til í þetta.“
Lajoie hefur notið gríðarlegra
vinsælda á Youtube og myndbönd
hans hafa fengið hátt í 300 millj-
ón áhorf. Þórhallur segir Lajoie
hafa lofað að benda á myndbandið
sem þeir léku í saman á Youtube-
síðu sinni, sem ætti að tryggja því
mörg áhorf. „Ég er búinn að fylgj-
ast með honum lengi, þannig að ég
er þrælmontinn yfir að hafa náð að
plata hann í þetta,“ segir Þórhallur
stoltur.
Myndbandið er í grófara lagi,
en Lajoie tók þátt í að semja það á
tökustað. „Hugmyndin kemur frá
mér og Hauki Þorsteinssyni vini
mínum, en svo kom margt á staðn-
um frá Lajoie. Hann
er algjör snilling-
ur,“ segir Þórhall-
ur.
En óttastu við-
brögðin, þar sem
myndbandið er
ansi gróft?
„Ég veit alveg
að sumir munu
h neyksl ast , en
maður getur
ekki
þóknast
öllum.“
- afb
Þórhallur tók upp myndband með LajoieFredrik Kristján Jónsson FerrierAldur: 22 ára
Starf: Fyrir-
sæta, háskóla-
nemi og
raunveruleika-
þáttastjarna
Fjölskylda:
Jón Arntor
Ferrier aðstoðarforstjóri og Kat-
herine Ferrier listamaður
Búseta: Flakka á milli London,
Danmerkur og Bristol
Stjörnumerki: Fæddur 16. maí og
er því naut.
Fredrik Ferrier er hálfíslenskur og orðin
stjarna í Bretlandi vegna þátttöku sinnar í
raunveruleikaþáttum. Hægt er að fylgjast
með honum á samskiptavefnum Twitter
twitter.com/#!/FredrikFerrier
GRÍNAST SAMAN Þórhallur Þórhallsson
fékk kanadíska grínistann Jon Lajoie
til að grínast með sér í myndbandi, en
sá síðarnefndi var staddur hér á landi í
síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Já, ég villi á mér heimildir með
þessa hárgreiðslu,“ segir Gunnar
Ben, kórstjóri og hljómborðsleik-
ari í þungarokkssveitinni Skálm-
öld, en hann vakti athygli á opn-
unarhelgi Hörpunnar þar sem
hann stjórnaði Kór Kvennaskól-
ans í Reykjavík með nýstárlegu
sniði ásamt því að skarta íburð-
armiklum hanakambi á höfði.
Hárgreiðslan stakk skemmtilega
í stúf við klassískan söng kórsins.
„Ég byrjaði að raka á mig
hanakamb árið 2007 í tengslum
við leik í áhugaleikhópi en féll
alveg fyrir þessari hárgreiðslu.
Það liðu sex mánuðir og þá var
ég farinn alla leið og byrjaður að
skafa hliðarnar. Það er eitthvað
mjög frelsandi við þetta,“ segir
Gunnar, en hann tók sér pásu
fyrir nokkrum árum og safnaði
hári en saknaði svo kambsins og
rakaði á nýjan leik. „Ég raka mig
einu sinni til tvisvar í viku til að
halda kambinum við.“
Ásamt því að stjórna Kór
Kvennaskólans í Reykjavík er
Gunnar við stjórnvölinn hjá
Karlakórnum Stefni í Mosfellsbæ
og Árnesingakórnum í Reykja-
vík. Einnig sinnir hann ýmsum
tónmenntastörfum í grunnskól-
um borgarinnar.
„Það má segja að fólk van-
meti mig fyrst, heldur að ég sé
að grínast, en ég vona að ég komi
fólki á óvart með tónlistarkunn-
áttu minni,“ segir Gunnar, en
hann er sprenglærður í tónlist
og tónlistarmiðlun, með tvöfalda
BA-gráðu og menntun í skap-
andi tónlistarmiðlun frá Guild-
hall School of Music and Drama
í London.
Hanakamburinn á meira sam-
eiginlegt með þungarokki en
klassískri tónlist en Gunnar vill
meina að honum takist ágætlega
að blanda þessu saman. „Mér
leiðist mjög frasinn „alæta á tón-
list“ en ég hlusta á hvað sem er á
meðan vandað er til verka. Allt
frá kántrí til klassískrar tónlist-
ar. Ég útiloka ekki tónlist eftir
stíl,“ segir Gunnar og bætir við
að það kenni ýmissa grasa í yfir
300 geisladiska safni hans.
„Þungarokkið er fyrir mig og í
rauninni átti plata Skálmaldar að
vera eitthvað sem við gætum státað
af sem gamlir kallar. Okkur óraði
ekki fyrir vinsældunum en það er
bara frábært.“
Þeim sem vilja berja þungarokk-
arann augum er bent á að leggja
leið sína í Langholtskirkju á mið-
vikudagskvöldið þar sem Gunnar
Ben stjórnar Árnesingakórnum í
Reykjavík. alfrun@frettabladid.is
GUNNAR BEN: FRELSANDI AÐ VERA MEÐ HANAKAMB
Þungarokkari í kórastarfi
SPRENGLÆRÐUR Í TÓNLIST Gunnari Ben finnst gaman að blanda saman þungarokkinu og kórstjórastarfinu en segist sjálfur ekki
flokka tónlist eftir stíl. Hann viðurkennir þó að kamburinn veki athygli á kórsamkundum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þetta verður bara alveg frábær
og skemmtileg ferð,“ segir leikar-
inn Jóhannes Haukur Jóhannes-
son, en hann er á leiðinni til Berg-
en í Noregi með leikhópnum sem
stendur á bak við Gerplu.
Jóhannes hoppar eiginlega beint
úr tökum á Svartur á leik til Berg-
en. „Minn síðasti tökudagur er
á þriðjudaginn og svo held ég til
Bergen á miðvikudaginn,“ segir
Jóhannes, en þetta verður í fyrsta
sinn sem hann kemur til Noregs.
„Ég hlakka mikið til að koma
þangað. Mér skilst að við séum
að sýna í gömlu og flottu leikhúsi
í miðbæ Bergen, en ég er mikill
áhugamaður um leikhús.“
Ásamt Jóhannesi Hauki fara
meðal annarra leikararnir Björn
Thors og Brynhildur Guðjónsdótt-
ir, en sýningar á Gerplu eru hluti
af listahátíðinni Nordiske Impuls-
er og verður leikritið sýnt þrisv-
ar sinnum dagana 26. til 28. maí
næstkomandi.
„Ég ætla að drekka í mig list-
menninguna þarna úti enda skilst
mér að það sé stútfullt af áhuga-
verðum viðburðum í boði á þess-
ari hátíð,“ fullyrðir Jóhannes og
þvertekur fyrir að ætla að kíkja
í búðir í Bergen. „Það er nú tak-
markaður áhugi fyrir búðarferð-
um hjá mér. Er ekki Noregur líka
dýrasta land í heimi? Ég ætla
fyrst og fremst að færa Norð-
mönnum íslenska list og gefa af
mér.“
Síðustu vikur hefur Jóhannes
staðið í ströngu í tökum á Svartur
á leik en tökum á myndinni lýkur
formlega í byrjun júní. „Tökur
hafa gengið vonum framar mundi
ég segja. Ég hef aðeins fengið að
líta yfir upptökurnar í lok hvers
dags og útlitið á myndinni kemur
mér skemmtilega á óvart. Það er
mikið af ofbeldi og viðbjóði svo
útlitið er ansi hart og gróft. Það
verður spennandi að sjá hvernig
myndinni verður tekið.“
Beint úr tökum til Bergen
Í FYRSTA SINN TIL NOREGS Jóhannes
Haukur Jóhannesson ætlar að drekka í
sig menninguna á listahátíð í Bergen á
milli þess sem hann flytur Gerplu fyrir
Norðmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
KOMDU Í ÖLL HELSTU
PARTÝIN MEÐ OKKUR
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Sun 29.5. Kl. 20:00
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Sun 5.6. Kl. 20:00 Aukasýn. Lau 11.6. Kl. 20:00 Aukasýn.
Sun 22.5. Kl. 14:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 3.6. Kl. 20:00
Lau 4.6. Kl. 20:00
Fim 9.6. Kl. 20:00
Fös 10.6. Kl. 20:00
Ö
Ö
Ö
Brák (Kúlan)
Fös 3.6. Kl. 20:00 Aukasýn.
Fös 20.5. Kl. 22:00
Lau 21.5. Kl. 22:00
Fös 3.6. Kl. 19:00
Lau 4.6. Kl. 20:00
Verði þér að góðu (Kassinn)
Ö
Haze (Stóra sviðið)
Fim 2.6. Kl. 20:00
Við sáum skrímsli (Stóra sviðið)
Fös 20.5. Kl. 19:00 Lau 21.5. Kl. 20:00
Big Wheel Café (Stóra sviðið)
Subtales – Söngur millistéttarinnar (Kassinn)
Þri 24.5. Kl. 18:00
Ö
Góði dátinn Svejk (Stóra sviðið)
Fim 26.5. Kl. 20:00 Fös 27.5. Kl. 20:00
Ö