Fréttablaðið - 24.05.2011, Qupperneq 2
24. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR2
VIÐSKIPTI „Það er langt frá því að
fyrirtækið standi illa,“ segir Jón
Ólafsson, stjórnarformaður Ice-
landic Water Holdings. Fyrirtæk-
ið framleiðir átappað flöskuvatn
undir merkjum Icelandic Glacial
við Þorlákshöfn. Fyrirtækið hefur
lokið við að auka hlutafé fyrirtæk-
isins um fjörutíu milljónir dala,
jafnvirði 4,7 milljarða íslenskra
króna.
Tæp sjötíu prósent af hlutafénu,
28 milljónir dala, um 3,3 milljarð-
ar króna, fólst í breytingu á skuld-
um í hlutafé. Afgangurinn var
nýtt hlutafé.
Við hlutafjáraukninguna fór
eignarhluti bandaríska drykkja-
vörurisans Anheurser-Busch
InBev úr nítján prósentum í
23,3. Nýir hluthafar bættust við,
bandaríski fjárfestingarbankinn
JP Morgan auk tveggja kunn-
ingja Jóns, suður-afríski fjárfest-
irinn Dennis Raeburn og gríski
skipakóngurinn Eiles Mavroleon.
Eignarhluti Jón og Kristjáns sonar
hans fer hins vegar úr 73 prósent-
um í 55 prósent.
Jón bendir á að heildarfjárfest-
ingin nemi nú þrettán milljörð-
um króna, sem er álíka fjárhæð
og hafði verið tryggð fyrir fyrsta
áfanga kísilverksmiðju í Helguvík
árið 2008.
Ársreikningur Iceland Water
Holdings liggur ekki fyrir. Félagið
tapaði 12,5 milljónum dala árið
2009, þar af voru 10,3 milljónir
dala, jafnvirði 1,2 milljarða, beint
rekstrartap. Skuldir námu þá
tæpum 67 milljónum dala, tæpum
7,9 milljörðum króna. Jón segir
hlutafjáraukninguna nú og aukna
sölu á heimsvísu bæta stöðu fyr-
irtækisins verulega, skuldir séu
komnar niður í tuttugu milljónir
dala.
Jón segir söluna aukast jafnt
og þétt í samræmi við aukið land-
nám. Salan jókst um 86 prósent á
fyrstu þremur mánuðum ársins.
Vöxturinn hefur verið mestur í
Kanada en þar jókst salan um 330
prósent frá sama tíma í hittifyrra.
Þá er vatnið jafnframt til sölu í
Kína og Rússlandi. „Áttatíu pró-
sent sölunnar eru í Bandaríkjun-
um. Við stefnum á að þegar fram
líði stundir verði salan jafn mikil
í Bandaríkjunum og í Kína,“ segir
Jón en í undirbúningi er að opna
skrifstofu í Hong Kong á næst-
unni.
jonab@frettabladid.is
milljarðar króna er
heildarfjárfestingin
í átöppunarfyrir-
tækinu í Þorlákshöfn.
13
DÓMSMÁL 37 ára karlmaður var
dæmdur í níu mánaða fangelsi
í gær fyrir ræktun á kannabis-
plöntum og vörslu á fíkniefnum.
Ræktunin fór fram á þremur
stöðum í Reykjavík og voru 504
plöntur gerðar upptækar hjá
manninum auk kannabisstöngla
og laufa. Einnig var hann tekinn í
tvígang með eiturlyf á sér, kóka-
ín, amfetamín og tóbaksblandað
kannabis. Öll brotin voru framin
árið 2009.
Maðurinn játaði brot sitt ský-
laust. Hann hefur oft komist
í kast við lögin og var í fyrra
dæmdur í fimmtán mánaða fang-
elsi, meðal annars fyrir húsbrot
og rán. - þeb
504 plöntur gerðar upptækar:
Kannabisrækt-
andi í fangelsi
Guðlaugur, varstu að æfa
Lögreglukórinn?
„Jú, en ekki benda á mig. Spyrjið þá
sem voru á vakt.“
Lögreglukórinn hefur gefið út plötuna
GAS – Góðir alþýðusöngvar. Á plötunni
syngur kórinn meðal annars lög eftir
Bubba Morthens. Guðlaugur Viktorsson
er stjórnandi kórsins.
LÖGREGLUMÁL Karlmanni á sjö-
tugsaldri, sem úrskurðaður var
í gæsluvarðhald 16. maí síðast-
liðinn, hefur verið sleppt úr haldi
lögreglu.
Maðurinn var handtekinn í
kjölfar þess að eiginkona hans
var endurlífguð á heimili þeirra í
austurhluta Reykjavíkur. Konan,
sem var á fimmtugsaldri, var
flutt á sjúkrahús en lést þar
nokkrum dögum síðar.
Bráðabirgðaniðurstaða krufn-
ingar gaf ekki tilefni til að hafa
manninn áfram í haldi. Rannsókn
málsins heldur áfram en frekari
upplýsingar liggja ekki fyrir. - mþl
Mannslát í austurborginni:
Karlmanni
sleppt úr haldi
JP Morgan fjárfestir
í íslenska vatninu
Hlutafé fyrirtækis vatnskóngsins Jóns Ólafssonar og sonar hans hefur verið
aukið um tæpa fimm milljarða. Grískur skipakóngur og suður-afrískur fjár-
festir keyptu hlut í fyrirtækinu. Heildarfjárfestingin álíka og í kísilverksmiðju.
VATNIÐ FER UM ALLAN HEIM Jón Ólafsson segir fjárfestingu í átöppunarverksmiðju
þeirra feðga álíka mikla og í kísilverksmiðju. Á myndinni sýna þeir Jón og Kristján
Össuri Skarphéðinssyni, þá iðnaðarráðherra, átöppunarverksmiðjuna þegar hún var
ræst í september 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VIÐSKIPTI Stjórn Vátryggingafélags
Íslands (VÍS) hefur fallist á ósk
Guðmundar Arnar Gunnarssonar
um að láta af störfum sem forstjóri
félagsins. Hann hættir jafnframt
sem forstjóri Líftryggingafélags
Íslands.
Er ákvörðun Guðmundar tekin
til að bregðast við úttekt Fjár-
málaeftirlitsins á starfsemi og við-
skiptaháttum VÍS í tíð eldri stjórna
á árunum 2008 til 2010. Friðrik
Bragason, framkvæmdastjóri
vátryggingasviðs, hefur verið ráð-
inn forstjóri tímabundið.
Guðmundur Örn vildi ekki tjá sig
um málið að svo
stöddu en sagði
þó að ákvörð-
unin um starfs-
lok væri tekin
í fullri sátt. Í
fréttatilkynn-
ingu frá VÍS var
eftirfarandi haft
eftir honum:
„Gagnrýni Fjár-
málaeftirlitsins
á störf mín í forstjórastóli félag-
anna kemur mér á óvart og veld-
ur því vonbrigðum. Með ákvörðun
minni um að víkja til hliðar er ég
ekki að fallast á aðfinnslur FME
heldur freista þess að standa sem
fyrr vörð um hagsmuni VÍS og Líf-
tryggingafélags Íslands.“
Í fréttatilkynningunni segir enn
fremur að VÍS standi styrkum fjár-
hagslegum fótum. Heildareignir
félagsins um síðustu áramót hafi
verið 35 milljarðar króna og eigið
fé ríflega ellefu milljarðar.
Gunnar Þ. Andersen, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, sagði í gær
ekki tíðkast að birta úttektir á borð
við þessa opinberlega og gat ekki
varpað frekara ljósi á þá gagnrýni
sem finna má í úttektinni. - mþl
Viðbrögð við gagnrýni Fjármálaeftirlitsins á starfsemi og viðskiptaháttum VÍS:
Guðmundur hættir hjá VÍS
TÆKNI „4G-kerfi hafa verið byggð upp í Bandaríkjun-
um, Noregi, Svíþjóð og víðar. Þetta er allt að gerast
núna,“ segir Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri
farsímafyrirtækisins Nova.
Fyrirtækið sótti í gær um heimild hjá Póst- og
fjarskiptastofnun um leyfi til að prófa innleiðingu
næstu kynslóðar í gagnaflutningstækni hér í sam-
starfi við kínverska tæknifyrirtækið Huawei.
Þessi tækni er næsta skref á eftir þriðju kynslóð
í þráðlausum gagnaflutningum og nefnist í stuttu
máli fjórða kynslóðin, 4G. Afkastageta 4G-kerfisins
er um tífalt meiri en forverans.
Liv segir að tilraunakerfið gefa Nova kost á að
leggja drög að uppbyggingu 4G-kerfisins og meta
kostnaðinn við fjárfestinguna. Nova hóf að byggja
upp þriðju kynslóð í gagnaflutningskerfi fyrir fimm
árum en fékk rekstrarleyfi fyrir fjórum. Kerfið er
nýlegt og telur Liv að ekki þurfi að endurnýja senda.
Liv segir öra þróun í neytendabúnaði kalla á upp-
færslu í gagnaflutningstækni. Máli sínu til stuðn-
ings bendir hún á fjölda tækja sem muni eiga í þráð-
lausum samskiptum í framtíðinni. Þar á meðal eru
eru bílar og spjaldtölvur. „Vöxturinn verður gígan-
tískur,“ segir hún. -jab
Nova sækir um tilraunaleyfi á 4G net- og farsímaþjónustu:
4G byltir þráðlausum samskiptum
SKRIFAÐ UNDIR SAMKOMULAG Liv, sem á myndinni er með
forsvarsmönnum Huawei og Nova, segir mörg tól og tæki eiga
í samskiptum með þráðlausri tækni á næstu árum.
MISSOURI, AP Að minnsta kosti
116 eru látnir í borginni Joplin í
Miss ouri í Bandaríkjunum eftir
að öflugur skýstrókur fór þvert
yfir bæinn á sunnudag. Þá eru
500 slasaðir.
Stór hluti borgarinnar er rústir
einar, þar á meðal stærsti spítali
hennar. Þá hefur neyðarástandi
verið lýst yfir og herinn kallaður
út til aðstoðar. Þrumuveður hefur
þó gert björgunarfólki erfitt
fyrir. - mþl
Skýstrókar í Missouri:
Tala látinna
komin yfir 100
GUÐMUNDUR ÖRN
GUNNARSSON
Atvinnuleitendur hjálpi til
Sveitarfélögum verður boðið að ráða
atvinnuleitendur og námsmenn til
þess að sinna ýmsum störfum til
aðstoðar fólki á áhrifasvæði eldgoss-
ins í Grímsvötnum. Velferðarráðherra
kynnti tillögu þess efnis á ríkis-
stjórnarfundi í gær.
SUÐURLAND
SÍLE, AP Jarðneskar leifar Salv-
adors Allende hafa verið grafnar
upp í Síle til að ganga úr skugga
um hvort hann framdi sjálfsvíg
eða var myrtur í stjórnarbyltingu
árið 1973.
Það var Augusto Pinochet her-
foringi og siðar einræðisherra
sem steypti vinstri stjórn All-
endes forseta af stóli.
Alþjóðlegur hópur réttarmeina-
fræðinga mun nú gera rannsóknir
á leifum forsetans að beiðni fjöl-
skyldu hans og rannsóknardómar-
ans Mario Carroza. - gb
Alþjóðleg rannsókn hafin:
Kista Allendes
var grafin upp
SPURNING DAGSINS
PAKISTAN, AP Pakistanski herinn
náði aftur á sitt vald í gær eigin
herstöð í borginni Karachi eftir
að hópur talibana hafði haft hana
á valdi sínu í 18 klukkutíma.
Talibanarnir, sem líklega voru
ekki nema sex í allt, réðust á her-
stöðina seint á sunnudagskvöld,
eyðilögðu að minnsta kosti tvær
herþotur og drápu tíu manns.
Að minnsta kosti fjórir árásar-
mannanna féllu um síðir í átökum
við herinn, en svo virðist sem
tveir hafi komist undan.
Þetta er þriðja árás talibana í
Pakistan síðan bandarískir sér-
sveitarmenn réðust inn á felustað
Osama bin Laden og drápu hann.
- gb
Talibanar í hefndarhug:
Héldu herstöð
í átján stundir
PAKISTAN Á VERÐI Pakistanskur
hermaður í herstöðinni í Karachi.
NORDICPHOTOS/AFP